Dagblaðið Vísir - DV - 06.03.2006, Side 40
T* Í* £ í CJljjí 0 £ Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jnafnleyndar er gætt. *-* S1 Q r“ (JQ Q
SKAFTAHLlÐ24,105REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910] SlMISSOSOOO 5 690710 111117
• Bachelor-stúlk-
an Jenný Jensdótt-
ir hafði í nógu að
snúast um helgina.
Á föstudaginn sást
til hennar í keppn-
isskapi í Smáralind
að hvetja góðvin
sinn Ingó til dáða í
Idol - Stjörnuleit. Á
laugardaginn hélt síðan starfs-
fólk tískuverslananna Topshop
og Zöru árshátíð sína á Hótel
Loftleiðum og þjónaði Jenný
þar til borðs. Eins og margir
vita vann hún eftirminnilega
hjarta íslenska bachelorsins,
Steingríms Randvers Eyjólfs-
sonar, en ástareldurinn lifði
ekki og leiðir þeirra skildu. Á
Loftleiðum sá Jenný til þess að
tískufólkið fengi nóg af brauði
og veigum og má leiða líkur að
því að ekki hafi vantað pipar-
inn á borðunum hennar...
Aaaaatsjú!
Jet Black Joe í
Ný plata kemur Ot
/
„Upptökum er lokið á plötunni
og hún er bara á leiðinni í vinnslu,"
segir Páll Rósinkranz söngvari.
Ein umtalaðasta rokkhljómsveit
þjóðarinnar, Jet Black Joe, er að gefa
frá sér nýja plötu, sem hefur hlotið
nafnið Fufl Circle. Með því er hægt
að segja að hljómsveitin sé komin í
heilan hring. Á hátindinum var hún
þekkt íyrir mikið rokk og troðfyllti
ófá félagsheimili landsins. Síðan
hætti sveitin störfum tímabundið og
Páll Rósinkranz gaf út rólyndisplöt-
ur sem seldust í stórum stíl. Árið
2000 kom sveitin síðan aftur saman
á Eldborgarhátíðinni við mikinn
fögnuð gesta. Síðan hefur hún leikið
á tónleikum við og við og er nú loks-
ins komin aftur á fullt skrið með
Páli, Gunnári Bjama og öðrum með-
limum.
,Ætli síðasta plata hafi ekki kom-
ið út árið 1994. Eða 1995. Fyrir utan
best of-plötur,“ segir Páll en tals-
verður spenningur er byrjaður að
myndast fyrir plötunni. „Planið er
mars
jet Black Joe íþá gömlu góðu
daga þegar rokkað var sem mest.
Páll Rósinkranz Htjóm-
sveitin hans Jet BlackJoe
gefur út plötuna Full
Circle í marsmánuði.
að koma henni út í mars. Það eru
einhver 11,12 lög á henni." Sum lag-
anna eiga sér mikla sögu og urðu til
á gullaldarárum sveitarinnar en
önnur eru nýrri. öll verða þau þó í
gamla Jet Black Joe-stflnum.
Páll segir að ekkert hafi enn verið
ákveðið með framhaldið. „Við erum
bara að ákveða það í sameiningu
eins og stendur," segir
hann. Enn er því ekki
komið á hreint hvort
draumur margra aðdá-
enda rætist. Að Jet Black
Joe túri í sumar til þess að
kynna plötuna og haldi
dúndurtónleika úti um
allt land.
PVC
Gluggar • Solhysi
Hurðir • Svalalokanir
Frábær lausn í bæði gama.lt og nýtt
Hvítt - Gulleik
Maghagony
Einbýlið, fjölbýlið, sumarhúsið
eða hvar þar sem fegurð
og gæði njóta sín.
Hafðu samband
og við ráðieggjum þér
GLUGGA- 0G
GLERHÖLUN
Ægisbraut 30 * 300 Akranes * Sími: 431 2028 • Fax: 431 3828
Netfang: glerholiin@aknelis • Heímasiða: www.glertioliin.is
Einangrunargler - Öryggisgler - Speglar