Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Síða 11
DV Fréttir MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 11 Gerir ísrael loftárásir? Umræðuhópur í Penta- gon hittist reglulega í febr- úar til að meta möguleik- ann á því hvort ísrael mun gera loftárásir á íran og hvernig slík árás yrði fram- kvæmd. Ein af aðalspurn- ingunum sem hópurinn velti fyrir sér er hvort ísrael muni láta Bandaríkin vita áður en árásirnar hefðust og hversu löngu áður. Það eina sem hægt er að segja með vissu er að geri ísrael loftárásir verði það ekki fyrr en eftir þingkosningarnar, en þær fara fram 28. mars. Á síðustu vikum hefur margsinnis komið fram að Bandaríkin ætía ekki að reyna að koma í veg fyrir að ísrael geri loftárásir á íran. Kennirfóst- ureyðingar á netinu tæra ser frafall Milosevic i . Fráfall Slobodans Milosevic hefur nú þegar haft gríðarleg áhrif á serbnesk stjórn- mál. Sósíalistaflokkur Milosevic er í áhrifastöðu og talið er að flokkur róttæklinga muni styrkjast í kjölfar dauða Milosevic. Enn er margt óljóst varðandi dauða hins umdeilda stjórnmálamanns. Sonur hans, Marko Milosevic, segir föður sinn hafa verið myrtan. 1 Sorg í Serbíu Milosevic átti marga stuðningsmenn í heimalandi sinu. 21 árs gömul kona frá Flórída í Bandaríkjun- um, sem gengur undir dulnefninu Molly Blythe, gefur konum frá Suður- Dakóta-fylki leiðbeining- ar um hvernig á að fram- kvæma fóstureyðingu á heimasíðu sinni. Fóstur- eyðingar hafa verið bannaðar undir nánast öllum kringumstæðum í fylkinu. Leiðbeiningar hennar hafa vakið mikla reiði vestanhafs. Konan segir að slíkt bann kalli á að fólki þurfi að fram- kvæma fóstureyðingar sjálft, því konur viti betur hvað gera skuli við líkama sinn en ríkisvald- ið. Bjór ívaskinn Haldis Gundersen ffá Kristiansand í Noregi brá heldur betur í brún þegar hún skrúfaði frá kran- anum í eldhúsi sínu um helgina. Úr honum kom bjór. Eigandi kráar beint fyrir neðan íbúð Gundersen var ekki eins kátur. Úr bjórdælunni hans kom bara vatn. Mistök höfðu verið gerð þegar bjórdælan var tengd. Þessu var snögglega kippt í liðinn í gegnum síma og hélt skemmtunin áfram á kránni. Deilurnar um hvar jarðarför Slobodans Milosevic, fyrrum for- seta Serbíu, eigi að fara fram hafa leitt í ljós völd hans í landinu. Stuðningsmenn hans eru ennþá áhrifamiklir í Serbíu. Jafnvel í haust þegar mál Milosevic var komið fyrir alþjóðlega dómstóla mátti sjá veggspjöld með andliti hans þekja heilu veggina í Belgrad, höfuðborg Serbíu. Serbnesk stjórnmál eru enn á mót- unarstigi og er ljóst að fráfall Milosevic getur haft gríðarleg áhrif á pólitískt landslag í landinu. Sósíalistaflokkur Milosevic, sem gengur tmdir nafninu SPS, var við völd í landinu í áratug áður en Milos- evic var bolað frá völdum þegar hann neitaði að viðurkenna tap sitt í júgóslavnesku forsetakosningunum í október árið 2000. Áður fyrr var SPS þekktur sem kommúnistaflokkur Serbíu, en Milosevic breytti ásýnd flokksins eftir fall kommúnismans víðsvegar um Evrópu á öndverðri 20. öld. Kustunica háður sósíalistum Síðan pólitískum ferli Milosevic lauk hefur SPS verið við það að þurrkast út. Til að mynda hiaut flokk- urinn aðeins rétt rúmlega fimm pró- Slobodan Milosevic Sonurhans heldurþvi fram að hann hafi verið myrtur. „Hann varmyrtur, þetta varmorð." sent atkvæða í síðustu þingkosning- um í Serbíu árið 2003. En þrátt fyrir að hafa einungis 22 þingmenn, af 250 á serbneska þinginu, hefur flokkurinn gríðarleg völd. Flokkurinn gegnir mMvægu hlutverki fyrir minnihluta- stjóm Vojislav Kostunica, forsætis- ráðherra Serbíu. Sósíalistar verja rík- isstjómina frá falli og dragi þeir stuðning sinn til baka er hætta á því að ríkisstjómin verði leyst upp af þinginu. Áhrif sósíalista Stjómmálaspekingar telja að áhrif sósíalista í Serbíu séu gríðarleg: Svo virðist sem að tregi serbnesku rlkis- stjómarinnar til að leita uppi þá sem em grunaðir um stríðsglæpi og fram- selja þá til alþjóðlegra dómstóla sé tii- kominn vegna áhrifa sósíalista. í þessu samhengi er sérstaklega minnst á hvarf Ratko Mladic, hers- höfðingjans umdeilda. Róttækir sterkir SPS er ekki eini flokkurinn í land- inu sem hefur verið stimplaður harð- línuflokkur af stjómmálaspekingum. Flokkur róttæklinga hefur fengið mik- inn stuðning meðal serbnesku þjóð- arinnar. í síðustu kosningum fékk flokkurinn tæp 30 prósent atkvæða. Ekki gleymdur enn Veggspjöld til stuðnings Slobo eru að finna viða iSerbíu. Baráttumál flokksins em meðal ann- ars að serbnesk lög nái aftur yfir Kósóvó-héraðið, sem Serbar telja vera mikilvægt í menningarlegri sögu þeirra. Segja má að þjóðemishyggja einkenni stefnu flokksins: Talið er að róttæklingar muni nýta sér fráfall Milosevic til hins ýtrasta og reyna að höfða enn frekar tU þjóðemiskenndar serbnesks almennings. TU dæmis hafa flokksmenn talað um að eitrað hafi verið fyrir MUosevic og að leið- togi þeirra, Vojislav Seselj, sé einnig í hættu, en hann bíðúr réttarhalda í Haag, vegna stríðsglæpa. „Þetta var morð" I gær tók eftirleikur dauða MUos- evic nýjan snúning. Sonur hans segist viss um að faðir sinn hafi verið ráðinn af dögum. „Hann var myrtur, þetta var rnorð," sagði Marko MUosevic. Lík hans verður aftur krufið á næstu dögum. HoUenski eiturefna- fræðingurinn Daonald Uges sagði á mánudaginn að lyf hefðu fundist í lfk- ama MUosevic sém notuð væm gegn holdsveiki og berklum. mmm BiUKn '_i r J 'J3 bilko.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.