Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2006, Blaðsíða 17
1
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 15. MARS 2006 17
Haukastelpur fá afhentan deildarmeistaratitilinn en mest verður þó fagnað í Grindavík
Það má segja að úrslitakeppni kvenna í körfubolta hefjist í
raun þegar lokaumferð Iceland Express-deildar kvenna í
körfubolta fer fram í kvöld. Leikur Grindavíkur og Keflavíkur í
Grindavík ræður því hvort liðið hefur heimavallarrétt í einvígi
liðanna í undanúrslitum úrslitakeppninnar.
Haukastúlkur hafa unnið 18
deildarleiki í röð og geta bætt félags-
met með því að vinna sinn 9. heima-
leik í röð en eftir leikinn fær
Haukaliðið afhentan deildarmeist-
aratitilinn sem þær tryggðu sér 8.
febrúar síðastliðinn. Það er þegar
ljóst að deildarmeistarar Hauka
mæta bikarmeisturum ÍS í úrslita-
keppninni og að íslandsmeistarar
Keflavíkur spila við Grindavík. Það
ræðst hins vegar í kvöld hvort
Grindavík eða Keflavík hreppa annað
sætið og þar með heimavallarrétt í
einvígi liðanna í undanúrslitum úr-
slitakeppninnar. Liðin eiga því eftir
að mætast oft á næstu dögum.
Fyrsti heimaleikurTamöru
Tamara Stocks spilar sinn fyrsta
heimaleik með Grindavík í kvöld en
hún var með 38 stíg, 13 fráköst og 5
varin skot í sínum fyrsta leik gegn KR
en þarf að feta í fótspor Jericu
Watson sem fór mikinn í fjórum
leikjum sem Grindavík lék gegn
Keflavík í vetur. Grindavík vann þrjá
af þessum fjómm leikjum og Watson
var með 36,3 stíg, 24,0 fráköst, 5,5
stoðsendingar, 5 stolna bolta og 3
varin skot að meðaltali í þessum
leikjum. Nú er að sjá hvort Keflavík-
urliðinu gangi betur með að hemja
Stocks en Watson.
Keflavík máttí þola sitt stærsta tap
frá upphafi í síðasta leik sínum sem
var gegn deildarmeisturum Hauka
og það verður forvitnilegt að sjá
hvemig liðið vinnur út úr þeim skelli.
Mikilvægi leiksins í kvöld er gríðar-
lega mikið enda mætast liðin strax
aftur í fyrstu umferð úrslitakeppn-
innar og það lið sem vinnur leikinn í
kvöld hefur heimavöllinn upp á að
hlaupa.
Hvort fellur KR eða Breiðablik?
KR og Breiðablik reyna að forðast
fall í hinum leikjum kvöldins. Breiða-
blik stendur betur að vígi fyrir leiki
kvöldsins en liðið sækir deildar-
meistara Hauka heim. Haukar hafa
unnið 18 leiki í röð í deildinni og fá
deildarmeistarabikarinn afhentan
eftír leik. ÍS tekur á mótí KR í hinum
leikjum, Blikastúlkur bjarga sér ef
bæði liðin tapa en KR þarf að vinna
bikarmeistara stúdína tíl þess að
forðast fallið en þá má Breiðablik
jafnframt ekki vinna sinn leik.
ooj@dv.is
Skilaboð frá Benitez, stjóra Liverpool
Vill sjá meiri karakter hjá sínu liði
Rafael Benitez, stjóri Liverpool,
hefur þurft að horfa upp á Liver-
pool-liðið í vandræðum í undan-
Éj,, fömum leikjum en
| Liverpool hefiir aðeins
^ unnið einn af síðustu
fimm leikjum sínum í
úrvals- og meistara-
deildinni og hefur auk
|j þess aðeins skorað tvö
l mörk til samans í þess-
» um undanfömum
"'nt fimm leikjum.
Þetta slæma
gengi hefur þýtt fall út
i úr meistaradeildinni
i og að Manchester
| United er búið að ná
ffimm stiga forskoti í
fbaráttunni um 2. sæt-
'ið.
„Ég geri mér grein
fyrir því að við vorum
ekki að spiia vel gegn Arsenal og
ekki þann fótbolta sem viljum vera
að spila. Ég hef sagt það við
mína leikmenn að nú er
kominn tími fyrir þá að
sýna meiri karakter í
komandi leikjum. Við j
eigum eftir níu leiki íl
deildinni og svo bikar-
keppnina og við þurf-
um að fara að sýna
styrk okkar inni _
á vellinum.
Það er ekki nóg
að tala um vandamálin,
við þuríúm að fara að;
spila okkar bolta, fara
að skora mörk og fara !
að vinna leiki á ný,‘
sagði Benitez en Liver- j
pool mætir Fulham á i
Anfield í ensku úrvals-
deildinni í kvöld.
ELÍSABET KASKÓTRYGGIR
o
LÍKA GAMLA BÍLA MEÐ LOÐNA
TENINGA í SPEGLINUM.
ER ÞAÐ EKKI SÆTT?
BETRI KJÖR Á BÍLATRYGGINGUM OG BÍLALÁNUM
elisabet.is
Vátryggjandi er TryggingamiÖstÖÖin hf.
I