Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006 Fréttir DV Ramsay í fangelsi Knattspyrnumaðurinn Scott Mckenna Ramsay var í gær dæmdur í 18 mánaða fangelsi, þar af 15 mánuði skilorðsbundið, í Hæsta- rétti. Þar með staðfesti Hæstiréttur dóm Héraðs- dóms Reykjaness en Ramsay varð dönskum hermanni að bana með einu hnefahöggi á skemmtistaðnum Traffic. Ramsay var einnig dæmdur til að greiða foreldrum mannsins sem hann sló samtals 1.560 þúsund íslenskar krónur og tæpar 65 þúsund danskar krónur í bætur. Baugur selurekki Baugur mun ekki selja hlut sinn í danska fast- eignafélaginu Keops að því er kemur fram á vef Viðskiptablaðsins. Baugur segir tilkynninguna géfna út í þeim tilgangi að koma á framfæri upplýsingum um fyrirætlanir félagsins þar sem mikið hefur verið rætt um að að íslendingar losi fjárfestingar sínar í dönskum íyrirtækjum. Afkoma Keops mun verða góð á næstu fjóröungum, segir í tilkynningu Baugs. Ráðistá leigubílstjóra Lögreglan á Akureyri var kölluð út í fyrrinótt vegna árásar á leigubílstjóra. Farþegi sem var undir áhrif- um áfengis og einn í leigubílnum var kominn á áfangastað og búinn að greiða fyrir farið þegar hann allt í einu réðst á leigubíl- stjórann og veitti honum minniháttar áverka. Ekki er vitað hver tilgangur árásarmannsins var en hann var fluttur í fanga- geymslur Lögreglunnar á Akureyri og látinn sofa úr sér áfengisvímuna. Þau tíðindu urðu á ritstjórnarskrifstofum tímaritaútgfáfunnar Fróða i gær að gerður var starfslokasamningur við Kristján Þorvaldsson sem ritstýrt hefur Séð & heyrt frá upphafi siðstliðinn tiu ár. Ritstjóri Séð on hevrt hættir Kristján Þorvaldsson Ritstjórirm hérígóðum félagsskap. Kristján Þorvaldsson hefur sagt upp störfum og er hættur sem ritstjóri tímaritsins Séð og heyrt. Tíu ára tímabili í lífi ritstjórans er lokið: „Ætli ég fari ekki að elda hafra- graut, skreppa í sund og narta í gul- rætur," segir Kristján, inntur eftir framtíðaráformum. „Og svo er aldrei að vita nema ég skreppi til Afríku og Seyðisfjarðar með viðkomu í Grinda- vík. Það helgast af því að ég á systur á öllum þessum stöðum," segir hann. Uppsögn Kristjáns bar brátt að. Hann hafði ákveðið að tak sér stutt frí fram að mánaðamótum en þegar á reyndi fann hann að tími var kom- inn á endanlegri lausn: Burt úr bransanum „Ég sagði upp með hefðbundn- „Mér er mikið létt. Ég hefði átt að hætta fyrir hálfu öðru ári" um uppsagnarfresti en það er þannig í þessum bransa að þegar menn hætta, þá eru þeir hættir. Það varð því að samkomulagi á milli mín og stjórnenda fyrirtækisins að gerður var starfslokasamningur. Mér er mikið létt. Ég hefði átt að hætta fyrir hálfu öðru ári," segir Kristján sem rit- stýrt hefur Séð og heyrt frá upphafi; í heil tíu ár við hlið Bjarna Brynjólfs- sonar. Kristján á eins von á því að hann hætti endanlega í blaða- mennsku eftir 20 ár í faginu með við- komu á Morgunblaðinu, Pressunni, Rás 2 og Alþýðublaðinu. Eins og Saga Class „Það hefur alls ekki verið siítandi að vera á Séð og heyrt. Eiginlega eins og að vera á Saga Class en það getur líka verið þægilegt að vera einn síns liðs á sjettu en það er austfirska og þýðir árabátur. Svo er það líka þannig að ég hef ekki getað sinnt mínum Pulitzer-verkefnum og sný mér kannski að þeim núna. Ég skulda þjóðinni það," segir Kristján með feginsbros á vör. Á ýmsu hefur gengið á þeim tíu árum sem liðin eru frá því að Kristján og félagar hans sendu frá sér iyrsta eintakið af Séð og heyrt. Og margt minnisstætt: Saklaus biskup! „Ætli startið hafi ekki verið minn- isstæðast og þá forsíðan á fyrsta blaðinu. Þar stóð einfaldlega: Ólafur er saklaus, og visaði til Ólafs Slcúla- sonar fyrrverandi biskups. Fréttin byggði á viðtali við eiginkonu hans sem að sjálfsögðu var sannfærð um sakleysi eiginmanns síns sem lenti í hremmingum sem mönnum eru enn í fersku minni," segir Kristján Þorvaldsson sem nú rær á ný mið. Með sjálfum sér en ekki þjóðinni eins og verið hefur síðasta áratug. Okkar maður reddaði Frökkum fyrir ríkisstjórnina Geir Haarde var orðinn svolítið einmana þegar hann hitti franska ráðamenn og sjá: hann fann vini í stað. Svarthöfði varð svolítið hissa á þessu líka, rétt eins og Geir. Svart- höfði hefur alltaf tekið þátt í almenn- um ótta við allt sem franskt er, eins og þjóðin öll. Einkum hefur Svarthöfði litið þá hornauga sem kunna eitthvað í frönsku og viðra sig upp við Frakka. Svarthöfði hafði þetta eftir lang- ömmu sinni sem leit á franska ein- hleypa karlmenn sem siðspilltustu verur tvífættar sem hér gátu stigið á land, verstir voru þeir sem fóru um í matrósafötum og drógu stúlkur undir lögaldri á tálar í skítugum og myrkum kompum í skipum sínum. Hvernig hefur þú það' 1 Svo var þetta allt sullandi í víni, át illa lyktandi osta og stundaði frjálsar ástir. Enn verra var þó jafnréttið og bræðralagið sem Svarthöfði vissi að hafði lokast inni í frímúrararegl- unni. Og við vitum öll hvemig hún er. Verra var með frelsið: Svart- höfði hafði alltaf trúað að frelsið kæmi að vestan - ekki var það franskt? En hvað hafði breyst? Hvernig höfðu Frakkar snúist - aldrei voru þeir áberandi í okkar vinahópi? Þeir voru að dandalast hér á fyrri „Ég hefþað mjög gott, ég eráferð um alla borg núna að hitta borgarbúa," segir Svandís Svavarsdóttir sem skiptar 1. sæti á lista vinstri grænna fyrirnæstu borgarstjórnarkosn- ingar. „Ég búin aö vera uppi á Kjaiarnesi, i Grafarvogi og Árbæ og verð I Breiðholti á laugardag og Grafarholti á sunnudag. Þessir fundir hafa verið vei sóttir og þar skapast góðar umræður. Þannig að maður getur ekki annað en verið í miklu stuði." öldum, seldu sjávarbændum brandí og biskví. Hurfu bak við hól með glaðbeittum stúlkum sem hrifust af dekkri litarhætti en við mörlandar þeirra bárum og voru fegnar tilbreyt- ingu í fagurgala á frönsku. Nú - eftir aldalangt menningarsamband í mál- leysi og kurteislegu samræði fór loks að fjölga dökkleitu fólki. Voru Frakk- ar að bæta fyrir ógoldin meðlög, hugsaði Svarthöfði. Eftir langa umhugsun fann Svart- höfði aðeins tvær mögulegar ástæð- ur: jakann sem bráðnaði á dýru skemmti- og menningarvikunni sem erindrekar okkar héldu þar ytra ekki fyrir löngu og svo - Tómas Inga Olrich sem hefur komið á annarri þíðu í samskiptum okkar. Tómas Ingi hefur örugglega reddað þessu. Eftir að pilsavargur- inn Sigríður Snævarr lauk keppni í París settist loks sívíliseraður karlmaður með slaufu í sendi- ráð okkar. Þar var skýringin á breyttu fasi Frakka. Svarthöfði and- aði léttar: loksins, loksins, loksins hafði Tómas Ingi komið að gagni. Verst ef það fyllist allt suður á Mið- nesheiði af ffönskum hermönnum. Svarthöfði Tómas Ingi Olrich sendiherra Snjall maður kom loks að gagni og reddaði sambandin u við Frakka.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.