Dagblaðið Vísir - DV - 24.03.2006, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 24. MARS 2006
Fréttir DV
Tveirteknir
með fíkniefni
Tveir ungir menn voru
teknir í Reykjavík í fyrrinótt
með fíkniefni í fórum
sínum. Annar maðurinn var
stöðvaður við reglubundið
eftirlit lögreglunnar og
fannst á honum lítilræði af
kannabisefnumn. Hinn
maðurinn var með ólæti á
skemmtistað og hringt var á
lögregluna. Þegar hún kom
á staðinn var maðurinn
handtekinn og hafði hann
einnig í fórum sínum
lítilræði af kannabisefnum.
Segir Lögreglan í Reykjavík
að mikil aukning sé á þeim
tilfellum sem lögreglan
hefur afskipti af þar sem
fólk er með fíkniefni í fórum
sínum.
Auglýsinga-
herferð
Glitnis
Ólafur Ingi Ólafsson,
hjá Islensku auglýsingastofunni.
„Þetta erótrúleg tilviljun en
ég þekki sambærileg dæmi
bæði hérá landi og erlendis
en ætla samt ekki að nefna
það. Ég veit það líka að
íslenskir auglýsingamenn
eru ekki svo vitlausir að láta
sér detta I hug að fá svona
að láni vlsvitandi og hvað þá
að leita til Noregs. Auglýs-
ingaherferð Clitnis er
fagmannlega unnin en
ótrúleg tilviljun. Það er
alþekktí auglýsingabrans-
anum að menn fái eitt og
annað að láni og oft eru
sömu aðilum veitt verðlaun
fyrirþað."
Hann segir/Hún segir
„Mér finnst auglýsingaher-
ferðin nokkuð skemmtileg.
Ég hefekki séð þessa norsku
herferð, þetta getur gerst fyrir
tilviljun en mér finnst það
dálítið undarlegt. Ég veitaf
því að lógó fyrirtækja hafa
orðið mjög svipuð fyrir
tilviljun. Það er búið að gera
allt undir sólinni 100 sinnum.
Það ersamt svo einkennilegt
að þegar maður fær
einhvérja hugmynd, og áður
en maður framkvæmir hana,
þá sér maður kannski að
önnur útgáfa afhugmynd-
inni er komin út, þó svo að
maður hafi ekki sagt neinum
frá því. Það er eins og
hugmyndirnar liggi I
tíðarandanum!'
Gufirún Anna Magnúsdóttir
auglýsingateiknari.
Sigurjón Sighvatsson hefur í hyggju að byggja heljarinnar skemmtigarð í Laugardaln-
um. Hann vinnur nú að því í samstarfi við fasteignafélagið Fasteign og Klasa ehf, sem er
í eigu íslandsbanka, að þvi að þróa hugmyndir í tengslum við verkefnið. Þeirri vinnu á
að vera lokið innan 6 vikna.
„Jú, það er rétt. Ég er í hugmyndavinnu núna með þetta verkefni,
segir Sigurjón Sighvatsson athafnamaður en hann ásamt hóp fjár-
festa vinnur nú að undirbúningi risa skemmtigarðs í Laugardal."
Verkefnið vinnur Sigurjón ásamt
fasteignafélaginu Fasteign og Fast-
eignafélaginu Klasi, sem er í eigu ís-
landsbanka. Ragnar Atli Guðmunds-
son leiðir vinnuna fyrir Klasa. Hann
er nýkominn heim frá Los Angeles.
Þar var hann meðal annars ásamt
Sigurjóni Sighvatssyni og Ingvari
Sverrissyni, formanni íþrótta- og
tómstundaráðs Reykjavíkur. Þre-
menningarnir skoðuðu skemmti-
garða og viðuðu að sér hugmyndum
sem nýst gætu í verkefnið í Laugar-
dalnum. Það er samkvæmt heimild-
um DV risavaxið.
Menntun og skemmtun
Fjárfestahópur leiddur af Sigur-
jóni Sighvatssyni og íslandsbanka
bar sigur úr býtum í hugmyndasam-
keppni sem haldin var af Reykja-
víkurborg um framtíð Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins. Samkvæmt
hugmyndum þeirra mun hópurinn
byggja nýjan skemmtigarð norð-
austur af þeirri lóð þar sem Fjöl-
skyldu- og húsýragarðurinn stend-
ur nú. Fjárfestahópurinn mun vera
„Við erum að vinna að
ýmsum nýstárlegum
hugmyndum sem
viljum hrinda þarna í
framkvæmd."
tilbúinn að leggja miklar fjárhæðir
í verkefnið. Mottó hópsins við hug-
myndavinnuna mun vera menntun
og skemmtun.
Ekki venjulegur
skemmtigarður
„Við viljum vinna þetta í tengsl-
um við þá aðila sem fyrir eru í daln-
um, Fjölskyldugarðinn og Húsdýra-
garðinn," segir Sigurjón. Hann segist
þó vilja útvíkka þá starfsemi veru-
lega.
Hvernig skemmtigarður verður
þetta?
„Þetta verður ekki skemmtigarð-
ur eins og þeir þekkjast annars stað-
ar. Við erum að vinna að ýmsum
nýstárlegum hugmyndum
sem við viljum hrinda þarna
í ffamkvæmd. Við munum
leggja mikla áherslu á ffæðslu í
bland við skemmtilegheitin,"
segir Siguijón.
Sigurjón Sighvats
son Leiðirhið
risavaxna verkefni.
Metnaðarfullt verkefni
Hugmyndirnar sem
Sigurjón Sighvatsson
nefnir verða dregnar sam-
an og svo kynntar fyrir borg
aryfirvöldum innan sex vikna.
Þar verður síðan tekin
ákvörðun um ffamhald-
ið. Sigurjón segist bjart-
sýnn á að vel verði tek-
ið í hugmyndir sínar.
Hann vill ekki segja
hvað verkefnið muni
kosta, það sé allt of
snemmt að gera
það.
„Enþað ersamt
mikll vilji af okkar
hálfu til að gera
þetta af metnaði,"
segir Sigurjón
Sighvatsson, at-
hafnamaður í
Los Angeles
andri@dv.is
Hadda Pitt gert að hætta eftir umdeildan þátt Kallanna
Sautjánveldinu blöskrar kynlífssenur
Hörður Reynir Þórðarsson, eða
Haddi Pitt eins og hann er betur
þekktur, segir að honum hafl verið
gert að hætta hjá fataversluninni
Companys í Kringlunni vegna þess
að hann lék í þættinum Köllunum á
Sirkus sem Egill Gilzenegger stjórn-
ar.
„Þau sögðu að þetta samræmdist
. ekki ímynd fyrirtækisins," segir
Haddi Pitt en í þættinum er Egill og
Partý Hanz að reyna að taka viðtal
við hann, hinsvegar virðist Haddi
vera svo mikið kyntákn að þeim tekst
aldrei að ljúka viðtalinu því Haddi
endar sífellt á því að sofa hjá konum.
Þátturinn sýnir Hadda að sofa hjá
konu í gufunni í Sundhöll Reykjavík-
ur og einnig á bókasafni þar sem
hann reynir að sannfæra kallana um
að bækur séu ekki algjör vitleysa.
„Þau náðu bara ekki djóknum,"
segir Haddi sem var fljótur að finna
nýja vinnu en hann starfar við múr-
verk þessa stundina. Haddi segir að
óánægja hefði verið með framkomu
hans í þættinum og því hafi honum
verið boðið að fara vinna á lager en
hann gat ekki unað því. Hadda
bauðst þó að vinna hjá Outlet aðra
hverja helgi sem hann og þáði.
„Þetta fólk þarf að snáfa upp á
Stórhöfða 22 þar sem Pampco er til
húsa og skeina sér," segirEgill Gilzen-
egger og bætir við að Haddi Pitt sé
heilbrigður strákur sem hugsar um
útlitið. Egill segir að þetta hafi nátt-
úrlega verið húmor og að hann hafi
ekki búist við því að Kompaní væri
svona húmorslaust.
„Ég hvet fólk til þess að sniðganga
NTC," segir Egill, sótillur út í örlög
Hadda Pitts.
„Hann hætti að mæta að lokum,"
segir Lára Ingadóttir verslunarstjóri
Kompaní en hún heldur því fram að
ástæðan fyrir að Haddi hafi verið
boðið starf á lagernum séu margvís-
islegar. Hún segir það
alls ekki rétt að ástæð-
an hafi verið þáttur-
inn hjá Köflunum.
„Mér finnst
þetta skemmtileg-
ur og fyndinn þátt-
ur og við höfum
húmor fyrir öllu svona,"
segir Lára og vísar ásökun-
um Hadda Pitt alfarið á
bug.
valur@dv.is
Haddl Pitt Fallegasti
maður norðan Alpafjalla
samkvæmt Gilzenegger.