Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 Sport DV Bæði hrósað og gagnrýndur Ljubodrag Bogavac lék sinn langbesta leik í búningi KR þegar liðið vann annan leik undanúrslita Iceland Express-deildar karla gegn Njarðvík. „Ég er búinn að vera slakur og í kvöld náði ég loksins að leika minn leik. Ég er ánægður fyrir hönd liðsins og sjálfan mig og ég mun halda áfram að spila svona og jafnvel betur," sagði Ljubodrag Bogavac í viðtali við heimasíðu KR þar sem hann fékk líka að heyra það en hann lét Njarðvík- inga finna fyrir sér í lok leiksins. „Bogavac lék nú nær körfunni og er það greinilega hans staður því hann tók 14 fráköst og skor- aði 15 stig. Hegðun manns- ins er þó ekki til sóma og verður hann að hugsa sinn gang í þeim efnum," segir á heimasíðu KR. Verður Líver- pool-liðið selt? Liverpool hefur hafið við- ræður við nokkra ijársterka aðila um kaup þeirra 1 hlut- um í enska úrvalsdeildarfé- laginu en með því vonar fé- lagið að fá meiri pening til leikmannakaupa. Svo gæti farið að einn aðili myndi kaupa félagið í einu lagi. „í tile&ú af getgátum íjölmiðla um aðkomu nýrra fjárfesta getur stjóm Liverpool stað- fest að viðræður standa nú yfir við marga aðila um kaup á hlutum í félaginu. Ekki liggur fyrir hvernig þetta muni þróast því tilboð gæti komið um kaup á öllu hluta- fé félagsins," segir í yflrlýs- ingu frá Liverpool sem var send út í gær. Núverandi stjómarformaður Liverpool, David Moorres, á 51 pró- senta hlut. Hann er tilbúinn að selja til þess að fá aukið fjármagn til urnráða. Leikur 2 Skallagrímur og KR náðu bæði að jafna metin í öðrum leik sínum við Keflavík og Njarðvík í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla í körfubolta. Síðast þegar var jafnt í báðum einvígum fóru þau bæði alla leið í oddaleik. 52 STIGA SVEIFLAI EINVIGI _ NJARÐVÍKUR OG KR: Tölfræðiþáttur Fráköst Vfti fengin Fiskaðar villur LeiKur 1 Njarðvík +15 Njarðvfk +5 Niarðvík +1 KR +16 NJarðvfk +6 3ja stiga körfur ummsuT KR +1 Njarðvik +4 Þvingaðir tapaðir boltar Njarðvík +3 KR +2 Njarðvik +22 Stig frá bekk Það hafa verið miklar sveiflur í undanúrslitaeinvígjum Iceland Express-deildar karia en tveimur leikjum er nú lokið í ein- vígjunum og staðan er 1-1 í þeim báðum. Það var 33 stiga sveifla frá 15 stiga sigri Keflavíkur á Skallagrími í fyrsta leiknum til 18 stiga sigurs Borgnesinga í leik tvö. f einvígi Njarðvíkur og KR voru enn meiri sviptingar því KR-ingar unnu leik tvö með 16 stigum eftir að hafa tapað með 36 stigum í Njarðvík. Þetta gerir 52 stiga sveiflu milli sömu liða á aðeins tveimur dögum. Síðast þegar bæði undanúrslita- einvígin voru jöfn eftir tvo leiki fóru þau bæði alla leið í oddaleik en að- eins einn oddaleikur hefur verið í undanúrslitaeinvígjunum undanfar- in tvö tímabil. Árið 2000 voru bæði undanúrslitaeinvígin einnig jöfn, 1-1. Þar léku einnig Njarðvík og KR en í hinu einvíginu áttust við Haukar og Grindavik. Bæði Njarðvík og Haukar unnu fyrsta leikinn á heima- velli, þar af unnu Njarðvíkingar sinn leik með 17 stigum. KR og Grindavík jöfnuðu í næsta leik og svo aftur í 2-2 eftir aðra heimasigra hjá Njarðvík og Haukum. Oddaleikir unnust síðan báðir af útiliðunum og KR vann síð- an Grindavík 3-1 í úrslitunum og varð íslandsmeistari. Nánast öll tölfræðin snérist við Þegar tölfræði leikjanna tveggja, sem eru búnir hjá Njarðvík og KR, eru skoðaðir má sjá að nánast öll töl- fræði snérist við á þessum tveimur sólarhringum sem liðu á milli leikj- anna. NjarðvHdngar tóku þannig 15 fleiri fráköst, hittu úr 6 fleiri þriggja stiga skotum og fengu 22 fleiri stig frá bekknum í fyrsta leiknum, en í öðr- um leiknum voru það KR-ingar sem tóku 16 fráköst, hittu úr fleiri þriggja stiga skotum og fengu 24 fleiri stig frá bekknum. Hér til hliðar má sjá hvemig tölfræði liðanna gerbréyttist milli þessárra tveggja leikja. Spennustigið rétt hjá okkur KR-ingurinn Fannar Ólafsson var með 8 stig og 18 fráköst í öðrum leiknum og hann þekkir vel þessa stöðu eftir að hafa orðið íslands- meistari með Keflavík. „f dag var spennustigið rétt hjá okkur, en á móti var það alltof hátt á sunnudag- inn. Við stigum mun betur út í dag og gáfum þeim lítil tækifæri til að fá annað tækifæri í sókninni," segir Fannar Ólafsson í viðtali á heimasíðu KR og bætir við um leik þrjú sem fer fram á föstudagskvöldið: „Ég á von á svakaleik, fyrstu tveir leikimir í úr- slitakeppninni em oft sveiflukenndir og svo jafnast þetta út þegar liðin em farin að þekkja hvort annað vel. Ég býst við stríði á föstudag." Stoppa Keflvíkingar George Byrd í kvöld? Keflavík tekur á móti Skallagrími í þriðja leik liðanna í Keflavik í kvöld. Keflavík vann 1. leikhluta fyrsta leiksins með 12 stigum, 31-19, en síðan hafa Borgnesingar unnið 6 af 7 leikhlutum liðanna þar ' Hft: STAÐAN EFTIR2 LEIKI UNDANÚRSLITA SÍÐUSTU ÁR 2000 2001 2002 «3: M af alla fjóra í síðasta leik sem Skalla- grímur vann með 18 stigum, 94-76, á heimavelli sínum. George Byrd var með 27 stig og 25 fráköst í öðmm leiknum og lokaði teignum fyrir leikmönnum Keflavíkurliðsins. AJ. Moye skoraði reyndar 25 stig og nýtti 58% skota sinna í öðmm leikn- um en þeir Vlad Boer, lón Norðdal Hafsteinsson og Halldór Halldórs- son sern höfðu skoraði 35 stig sam- an í fyrsta leiknum skomðu aðeins 8 stig í öðmm leiknum og klikkuðu á 21 af 24 skotum sínum. ooj@dv.is Keflavík 2-0 Grindavík (Keflavik vann 3-1) Njarðvík 2-0 KR (Njarðvík vann 3-1) 2003 Grindavík 1-1 rindastóll (Grindavík vann 3-2) Keflavík 2-0 Njarðvik (Keflavík vann 3-0) 2004 Snæfdl 2-0 Njarðvík (Snæfell vann 3-0) Grindavik 1-1 Keflavik (Keflavík vann 2-3) 2005 Keflavfk 1-1 |R (Keflavfk vann 3-1) Snæfeli 2-0 Fjölnir (Snæfell vann 3-0) 2006 Keflavik 1-1 Skallagrímur (3. leikur i Keflavík í kvöld) Njarðvík 1-1 KR (3. leikur í Njarðvík i kvöld) FERMINGARDAGURINN MINN Gestabók • Myndir • Skeyti >cnmuvTAV\'A^urinn mimt Ov*tAl+k vl'yttyMr SktEVlf MÚLALUNDUR $ FÆST í ÖLLUM HELSTU BLÓMA- OG BÓKAVERSLUNUM LANDSINS VINNUSTOFA SlBS • Hétúni lOc • Pósthólf 5137 • 125 Reykjávlk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.