Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 17
r DV Sport FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 17 11 þristaríein- um leikhluta Skyttur Milwaukee Bucks voru í miklu stuði í 132-110 sigri á Phoenix í NBA-deild- inni í körfubolta. Bucks setti nýtt félagsmet með því að skora 18 þriggja stiga körfur í ölium leiknum en með því að skora 11 þriggja stiga körfur í þriðja leikhluta setti liðið nýtt met í allri NBA-deildinni. Michael Redd skoraði 6 þrista og Charlie Bell var með fimm auk þess að ná þre- faldri tvennu (19 stig, 13 stoðsend- ingar og 10 frá- köst). Tony Kukoc skoraði ijórar þriggja stiga körfur. Bucks vann þriðja leikhlut- ann 46-26 og hitti þá úr 16 af 18 skotum sínum. Guðbjörg sleit krossband Guðbjörg Gunnarsdóttir markvörður Vals í knatt- spymu sleit krossband í leik Vals og Stjörnunnar í deildar- bikamum á dögunum og með því missir hún af tímabilinu. Guð- björg verður frá keppni í að minnsta kosti sjö mánuði en þetta er mikið áfall fyrir liðið þar sem Guðbjörg var eini markmaður þess. Á heimasíðu Vals kemur fram að Meistaraflokksráð kvenna mun reyna að finna lausn á markmannsleysi liðsins í samvinnu við stjórn knatt- spymudeildar. Kristín Birna nálgast ís- landsmetið Kristín Bima Ólafsdóttir sjöþrautarkona úr ÍR bætti sinn besta árangur um 164 stig á sínu fyrsta sjöþrautar- móti í ár í Tuscon í Arizona og er nú aðeins 118 stigum frá íslandsmeti Birgittu Guð- jónsdóttur. Kristín Bima fékk 5086 stíg og að- eins þtjár íslensk- ar konur hafa náð betri árangri í sjö- þraut, 5204 Birgitta Guðjóns- dóttir úr HSK (5204 stíg, 1985), Bryndís Hólm úr ÍR (5153 stíg, 1985) og Sunna Gestsdóttír úr USAH (5151,1995). | Maður leiksins CescFabrega kom út updan skugga Patricki Vieira og átti frábæran leik i s ig Arsenal ú Juventu s. H Arsene Wenger vissi að hann mátti missa Patrick Vieira siðasta sumar því hann hafði Cesc Fabregas til að taka við stöðu hans í Arsenal. Fabregas brást ekki tausti franska þjálfarans þegar hann og Vieira mættust í fyrsta sinn í Meistara- deildinni í fyrrakvöld. Hver MPMSt Fabregas kemur Arsenal í 1 -0 Cesc Faþfegas sést hér skora og fagna marki sfnu, DVmyndir NúrclicPhotos/Oetty Patrick Vieira hefrir líklega sjaldan átt erfiðara kvöld en einmitt á Highbury í fyrrakvöld. Vieira mætti þá í fyrsta sinn á Highbury eft- ir að hafa yfirgefið liðið síðasta sumar og niðurstaðan var öll á einn veg. Vieira og félagar hans í Juventus vom niðurlægðir af frábæm liði Arsenal, gömlu smðningsmenn hans púuðu á hann allan leik- inn og gula spjaldið sem Vieira krækti sér í þýðir að hann verður í banni í seinni leiknum. Til að kóróna niðurlæginguna var eftir- maður Vieira á Highbury, Cesc Fabregas, maður leiksins. Cesc Fabregas steig endanlega undan skugga Patricks Vieira með frammistöðu sinni í fyrrakvöld. Það var ekki nóg með að hann stjórnaði miðjunni með glæsibrag, hann skoraði fýrra mark Arsenal og lagði upp það síðara fyrir Thi- erry Henry. Fabregas lék í tvö tímabil með Patrick Vieira hjá Arsenal og naut þar góðrar leið- sagnar Frakkans snjalla og það voru þó nóg af efasemdum þegar Vieira yfirgaf Arsenal fyrir Juvent- us síðasta sumar. Þær tilheyra for- tíðinni eftir þennan leik. Það var kannski táknrænt um nýja tíma að í marki Fabregas voru það mistök Patricka Vieira sem gáfu Arsenal tækifæri á skyndi- sókn sem Fabregas batt enda á með því að koma Arsenal í 1-0 eft- ir 40 mínútna leik. „Fabregas var frábær í þessum leik og hann var ekki bara að spila gegn Patrick Vieira heldur einnig gegn Emer- son, Camoranesi og Adrian Mutu,“ sagði Thierry Henry um frammistöðu Fabregas. Verðum betri og betri „Ég tel að allir hafi spilað af 100% styrk í þessum leik og við erum að verða betri og betri með hverjum leik. Það er samt bara hálftími og því verðum við að bíða og sjá hvað gerist í seinni hálfleik, sagði Cesc Fabregas og bætti við. „Ég reyni alltaf að gera mitt besta, ekki bara af því ég var að spila á móti Patrick. Það er alltaf hægt að bæta sig þegar maður spilar gegn svona góðum leikmönnum, ekki bara Patrick heldur líka mönn- um eins og Emerson sem er að fara að spila með Brasilíu á HM. Þetta var frábært kvöld og hlýtur að hafa gefið stuðningsmönnum okkar mikið en það er mikið eftir enn til að við komumst í undanúrslitin,“ sagði Fabregas. Öguð frammistaða „Ég gat ekki óskað mér betri úr- slit. Þetta var öguð frammistaða, við spiluðum vel vamarlega og þetta var fótbolti eins og við viljum spila hann,“ sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal eftir leikinn. „Ég er sérstaklega ánægður með að mínir leikmenn eru að hafa gam- an að því að spila og þeir gefa ekkert eftir inni á vellinum. Það var líka flott að sjá þá Fabregas og Thierry skora mark og leggja einnig upp mark hvor fyrir annan. Þetta er dæmi um hvernig mínir menn eru allir að spila fótbolta á jákvæðan hátt og vinna hver fyrir annan," bætti Wenger við en hann sagði að góð frammistaða Arsenal-liðsins hafi séð til þess að Patrick Vieira áttí erfitt kvöld í end- urkomu sinni á Highbury. Nýtt lið er fætt án hans „Patrick Vieira er frábær leik- maður að mínu mati en hann átti erfitt uppdráttar þar sem við höfðum þessa yfirburði í leiknum. Ég efast ekkert um hæfileika hans,“ sagði Wenger. „Það var ekki markmiðið hjá mér að sýna það og sanna að sal- an á honum hafi verið réttmæt. Lið finna alltaf fyrir því þegar þau missa leikmann eins og hann en nýtt lið er fætt án hans," sagði Wenger sem tal- aði ekki við Vieira eftir leikinn. „Ég talaði ekki við Patrick því hann er sigurvegari og vill vera í friði þegar hann tapar." ooj@dv.is Takk fyrir leikinn Patrick Vieira faömarhér Arsene Wengerum leið og Imnri gengur af velli. neuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.