Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2006, Blaðsíða 31
DV Síðasten ekki síst FIMMTUDAGUR 30. MARS 2006 31 Spurning dagsins Ætlar þú til útlanda í sumar? Ferínámsferð „Já, ég ætla til Danmerkur í námsferð." Ingunn Viktorsdóttir nemi. Allavega til Spánar, kannski Bretlands. Ýmir Kristins- son verka- Ég ætla til Spánarað skemmta mér. Ögri Kristins- son nemi. Égerað fara með tíunda bekk til Danmerkur. Helga Karen Kjartansdóttir . nemi. , Ferðaskrifstofurnar eru í óða önn að selja ferðir til útlanda og fslendingar skipuleggja einnig ferðir innanlands. Hvert ætlar fólkið á götunni í sumar? Danska Moggakreppan ía'ffl Heimurinn er allt- af að snúast á hvolf. í gamla daga voru það kommarnir sem voru hræddir við hagnað og nýja pen- inga og sáum skratt- ann gægjast úr andlits- dráttum sérhvers sem hagnaðist. í dag er það Mogginn. Það er engu líkara en Mogginn sjái ofsjónum yfir að það er nýtt fólk, sem ekki tilheyrir gömlu ættar- veldunum, sem er orð- inn drifkraftur efna- hagslífsins í gegnum bankana. Hann fer á taugum ef einhver græðir sem ekki er í liðinu. [...] Gamall ritstjóri veit nokk hvað menn eru að hugsa þegar rekið er upp „gól“ á for- síðu, og hvaða afleiðingar það getur haft í för með sér. Heims- endaforsíða Mogg- ans var að minu viti ábyrgðarlaus og inni- stæðulítil - einsog er að koma á daginn, en ekki án tilgangs. Hælbítur á bankana Hún náði því hins vegar að skelfa litla fjárfesta sem flykktust með fé sitt í hrönnum út úr bönkun- um, svo verðið á þeim hríðféll um sinn, og væntanlega hafa það verið fjárfestingardeildir stóru bankanna sem komu í kjölfarið og hirtu upp hlutabréf á tomb- óluprís. Þannig að hafi það verið „litli maðurinn" sem Mogginn var í orði kveðnu að verja þá sá blaðið til þess að það var einmitt hann sem tapaði mestu. Ég tek það fram að ég á sjálfur enga hluti í þessum bönkum og því síst um sárt að binda. En ég dái Össur Skarphéðinsson alþingismaður skrifar á ossur.hexia.net framtak bankanna og finnst þeir standa sig mjög vel, og skil ekki þetta sífellda hælbit Moggans. Væri hann samkvæmur sjálfum sér ætti hann einsog einn dag að snúa sér að efnahags- stefnu ríkisins og reikna út hvað yfirvofandi verðbólgu- skot vegna viðskiptahalla og afleiðinga hans munu kosta almenna landsmenn á næstu misserum. Lesblindur Moggi Auðvitað skrifar Mogg- inn ekkert um það. Hann er lesblindur þegar kem- ur að því að gagnrýna það sem raunverulega er að í efnahagskerfinu, en skrif- ar af gamalli og óskiljanlegri heift um KB og Landsbankann, sem helst er tekið mark á af af- dönkuðum dönskum bankastjór- um sem kunna ekki að reka sina eigin banka - enda verða þeir vonandi orðnir íslenskir fyrr en seinna. Dyggir lesendur Mogg- ans geta svo örugglega á næstu dögum séð lagt út af þessum pistli í vand- lætingartóni í pólitískri skolp- rás blaðsins á næstöftustu síðu, og þar verður þeim örugglega gerð grein fyrir þvi að bankarn- ir séu líklega líka búnir að kaupa Össur Skarphéðins- son. Þannig er Danski Moggi í dag. Greining mín á efnahagsástandinu Hér á eftir fer greining mín á efnahagsástandi landsins. Mikilvægt er að þetta lesist upphátt og þá hægt og ekki með of miklum tilþrifum. Greiningin hljómar svona: Allt mun fara vel ef menn spila skynsamlega úr sínum spilum. Það er hins vegar hætta á því að allt fari til fjandans ef farið er of geyst. Gott er að skulda ekki of mikið, því þá er erfiðara að fá lán. Betra er að geta fengið lán, en verra ef menn nýta sér það. Vont er að tapa á fjárfestingum, altént ef til langs tíma er litið. Það er í lagi ef menn fara síðan að græða. Það kostar jú alltaf peninga að afla peninga. Menn þurfa að passa sig á að taka ekki of mikla áhættu. Áhætta getur þó borgað sig einstaka sinnum. Lífið er jú ein allsherjar áhætta og ef enginn tekur neina áhættu er hætt við að mönnum verði lítið úr verki. En vont er að taka áhættu sem ekki borgar sig. Hinni gullni meðalvegur er svar- iðíþessusem öðru. Bankar verða að gæta hófs í útlánum. Ef landsmenn taka of mikil lán verða þeir skuld- ugir. Ef þeir verða of skuldugir hætta þeir að geta borgað skuldirnar og verða gjaldþrota Slíkt kostar þjóðarbúið marga peninga. Mikil- vægt er að almenningur gæti hófs í þessu sem öðru. Ef almenningur borðar of mikið, leiðir það til offitu sem kostar samfélagið ótæpileg útíát. Sama er með misnotkun áfengis. Áfengis er best neytt í hófi. Mikilvægt er að allir þegnar lands- ins hafi vinnu svo þeir eigi fyrir skuld- um. Einnig er líklegra að sá sem hef- ur vinnu eignist böm og börnin eru jú einu sinni framtíðin. Mikilvægt er þó að eignast ekki of mörg börn, þ.e. ekki fleiri en hver og einn tel- ur sig hafa efni á að ala upp. Ann- ars er hætta á ómegð og slíkt getur kostað samfélagið ómælda pen- inga. Sá sem ekki nær endum sam- an um mánaðamót vegna ómegðar eða of lágra launa verður skuldugur og að lokum gjaldþrota. Slíkt getur kostar samfélagið... já, já, það þarf ekki að segja það aftur. Svo við súmmerum þetta upp, þá má segja að greiningin sé einhvern veginn svona: Bankarnir þurfa að passa sig á að skulda ekki of mikið og lána ekki þeim sem ekki geta borgað. Ef það gerist er hætta á að hagvöxtur minnki. Bankastjórar verða líka að passa sig á að drekka ekki of mikið og borða ekki of mikið. Þeir eru fyrirmynd fyrir almenning í land- inu. Ef allir gerðu eins og þeir (þ.e. ef bankastjórar drykkju mikið og ætu mikið) þá gæti það kostað sam- félagið ómælt fé. Það er hins vegar fátt sem fær greiningaraðila til að halda það að banka- stjórarnir lifi óhóflega (og ef þeir gerðu það hefðu þeir efni á því) og þess vegna má halda því fram að allt gæti farið vel ef ofangreinds er gætt. Líklegt má telja að dollar- inn fari niður J 65 krónur eftir birt- ingu þessarar grein- 1 Sigurjón Kjartansson hugleikur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.