Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Qupperneq 10
10 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
Fréttir DV
Eysteinn Jonsson
Kostir & Gallar
Eysteinn ermjög fylginn sér,
góður samstarfsfélagi og
ieggur hart að sér við aðná
sínum markmiðum.
Hann á þaO til aö vera of
ákafur þegar hann ræðir um
málefnin sin. Hann stendur
stundum heldur fast á
skoðunum sínum.
„Kostir Eysteins
eruþeirað hann
ergríðarlega
fylginn sér. Hann
erskipulagður og
traustur. Ef
Eysteinn segir
eitthvaö, þá stendurþað og
hann hættir ekki fyrr en hann
hefur náð þvi markmiði sem
hann setur sér. Hann er fljótur að
greina aðalatriðin frá aukaatrið-
unum og er fljótur að læra. Það
er bara einn galli á Eysteini.
Vegna þess hve áhugasamur
hanner um það sem hann er að
f/alla um, þá á hann til að tala
um það afsvo miklum ákafa að
sumum finnststundum eins og
hann sé reiöur “
Kjartan Mdr Kjartansson bæjarfulltrúi.
„Hvað kostina
varðar, þá er
Eysteinn mjög
fylginn sér. Hann
er vinnusamur
og mjög
hugmyndarikur.
Svo má ekki gleyma því að hann
Eysteinn er skemmtilegur og
góður félagi. Hann er mjög
góður samstarfsmaður. Gallinn
við Eystein er að hann er svo
harður á þvl að flytja flugvöllinn
frá Reykjavik til Keflavlkur. Síðan
á Eysteinn það til aö vera
harðdrægur á eigin skoðanir“
Magnús Stefánsson alþlnglsmaöur.
„Kostirnir við
Eystein Jónsson
eru margir. Hann
er til að mynda
hörkuduglegur
maður. Eysteinn
er drifandi og
skemmtiiegur og ekki síst góður
félagi. Eysteinn stendur við sitt
og velþað. Hvaö gallana hans
Eysteins varöar, þá hefég bara
ekki fundið neinn ennþá."
Brynja Llnd Sævarsdóttlr, formaöur FUF í
Reykjanesbæ.
Eysteinn Jónsson er fæddur 8.
júll 1970. Hann er úr Reykjanes-
bæ og starfar sem aðstoðar-
maður Guðna Ágústssonar
landbúnaðarráðherra. Eysteinn
leiðir A-listann I Reykjanesbæ
sem ersameiginlegt framboð
Framsóknarflokksins og
Samfylkingarinnar. Pólitíkin er
Eysteini I blóð borin en afi
Eysteins er hinn þekkti
framsóknarmaður Eysteinn
Jónsson. Faöir Eysteins, Jón
Eysteinsson, er sýslumaður í
Keflavík. Hann erlærður
rekstrarfræðingur frá Álaborg-
arskóla.
Leiðrétting
Sú villa varð í mynd-
texta með frétt DV af
drykkjukeppni á Barnum
á Sauðárkrók að sagt var
að myndrinar hefðu ver-
ið teknar eftir að keppn-
inni lauk. Hið rétta er að
myndirnar voru teknar
þetta kvöld fyrir keppnina
og sýna frá afmælisfagn-
aði sem þar var haldinn.
Tengjast því myndirnar
keppninni ekkert.
Sigtryggur Magnússon. fyrrverandi leigubílstjóri, og Poul-Henrik Pedersen, bæjar-
stjóri í Nyköbing-Falster, kynntu kaup Sigtryggs á Energicentret á Lálandi á blaða-
mannafundi ytra. Sigtryggur lét gamminn geisa á fundinum sem var fjölsóttur af dönsku
fjölmiðlafólki. Hann var ítrekað spurður um íslensku útrásina í Danmörku.
f f
Ksemi ekki a ovart ef
Islendingar keyptu
lívolí og Legoland
Danskt fjölmiðlafólk fjölmennti á blaðamannafund í Nyköbing-
Falster í gærmorgun þar sem Sigtryggur Magnússon, fyrrverandi
leigubílstjóri, og Poul-Henrik Pedersen bæjarstjóri kynntu kaup
Sigtryggs á Energicentret í bænum en því ætlar Sigtryggur að
breyta í hótel og heilsuhæli. Sigtryggur lét gamminn geisa á fund-
inum en hann var ítrekað spurður um íslensku útrásina í Dan-
mörku. „Það kæmi mér ekki á óvart ef íslendingar keyptu bæði
Tívolí og Legoland," sagði Sigtryggur meðal annars á fundinum.
Fram kom á fundinum að kaup-
verðið á húsinu og risastórri lóð sem
fylgir því nemur 47 miffjónum DKK,
eða háifúm milljarði íslenskra króna,
og jafnframt að Sigtryggur muni
leggja fram aðra eins upphæð tii að
endurgera og breyta húsnæðinu í
hótel og heilsuhæli. Poul-Henrik
Pedersen, bæjarstjóri Nyköbing,
segir að áætlanir Sigtryggs feli í sér
„...stórkostlega möguleika fyrir Lá-
iand-Falster svæðið" og hann fagnar
áformum Sigtryggs.
140 herbergi
Fram kom á fundinum að í fyrsta
áfanga uppbyggingarinnar myndu
140 herbergi verða endumýjuð á
hótelinu auk þess að komið verð-
ur upp leikfimisal, saunaböðum og
annarri aðstöðu til iíkamsræktar og
meðhöndlunar. „Ég er afar ánægður
yfir því að loksins skufi þessi fallega
FOLKETIDENDE
í fffpfgpl,.
|#l»ndlnge pá Energlc*ete|f
5S.S S3SSS
Forsíðan Staðarblaöiö I Nyköbing Fjallaöi
nýlega Itarlega um Sigtrygg og byggöi
umfjöllun slna á grein um málið i DV
bygging komast í notkun og það af
fjárfesti sem hefur spennandi og
áhugaverðar áætíanir," segir Poul-
Henrik og bætir því við að ekki bara
íbúar Nyköbing-Falster heldur all-
ur landshlutinn muni njóta góðs af.
Áform Sigtryggs muni skapa fjölda
manns atvinnu og auka fjölbreytni í
ferðaþjónustu á svæðinu.
Einfaldur leigubílstjóri
Sigtryggur var spurður um feril
sinn á
íslandi
fram að
þessu og
svaraði
hann því
til að hann
væri aðeins
einfald-
ur leigubíl-
stjóri sem
hefði hagn-
ast vel á
eignavið-
skiptum á
undanföm-
um árum. Fram kom að hluti af fjár-
magni hans til hótelsins hefði komið
frá sölu á fasteignafélagi, sem hann
átti, til Stoða sem aftur eiga Atías
Ejendomme A/S í Danmörku. Hann
hefur svo stofnað félagið ABH Bygg-
ir ehf. utan um framkvæmdimar í
Nyköbing.
40-50 starfsmenn
Sigtryggur áformar að opna hót-
elið/heúsuhælið í október í ár en
það verður í stíl við Krung Siam St.
Carlos á Taílandi sem margir ís-
lendingar þekkja. Reiknað er með
nuicliu jviþjiiiyi iuii iiu iiwiuniu/iiwuu
hælinu sem Sigtryggur hefur keypt. Á
meöal eigna á lóöinni er húsfrál 8. öld
sem notaö verðursem veitingastaður.
menn verði
40-50 ásjálfú
hótelinu auk
þess að um
15 starfs-
menn muni
sinna heilsuhælishlutan-
um.
„Ég á von á að gestir
komi ekki aðeins frá Dan-
mörku og norðurhluta
Þýskalands heldur einnig
frá ijarlægari löndum," seg-
ir Sigtryggur.
Mfe&it
Jón Baldvin á fundi í Odda
Póst- og fjarskiptastofnunin
Kallaði bandarísk
yfirvöld lygara
Magnús Þorkell Bernharðsson,
lektor í Miðausturlandafræðum
við Williams-háskóla, hélt erindi í
Odda í gær um ástandið í Miðaust-
urlöndum. f spurningum og svörum
að erindinu loknu tók fyrrverandi
sendiherra íslands í Bandaríkjunum,
Jón Baidvin Hannibalsson, fyrstur
til máls. f inngangi að spurningunni
sem hann beindi til Magnúsar kall-
aði hann bandarísk stjórnvöld lyg-
ara. Var Jón Baldvin að vísa til þess
að hann teldi raunverulegu ástæð-
una fýrir innrásinni í frak vera olíu
íraka en ekki gjöreyðingarvopn.
Sendiherrann fyrrverandi hef-
ur verið harðorður í garð Banda-
ríkjanna að undanfömu. Jón hefur
meðal annars sagt að Bush hafi með
kenningum og
aðgerðum sín-
um gegn öðrum
löndum sagt sig
úr lögum við al-
þjóðlega sam-
félagið. f fyrir-
lestri sínum sagði
Jón Baldvin
Hannibalsson
Magnús að borgarastyrjöld geisaði
í írak. Hún hafi í raun og veru hafist
árið 2004. Magnús sagðist telja það
ólíklegt að Bandaríkin myndu ráð-
ast á Iran en útíokaði ekki að fsrael
myndi gera árás. f framhaldi af inn-
slagi Jóns Baldvins benti Magnús á
að upphaflega átti herferð Banda-
ríkjanna að heita Operation Iraqi
Libration, skammstafað O.I.L., en
nafnið þótt óheppilegt á þeim tíma.
SkuldarSímanum um30
milljónir
Úrskurðamefnd um fjarskipta- og
póstmál hefur úrskurðað í ágreinings-
máli Símans og Póst- og fjarskipta-
stofnunar vegna rekstrargjalds sem
stofriunin lagði á Símann síðustu fjög-
ur árin. Úrskurðurinn er Símanum í
hag og skuldar stofnunin Símanum
nú um 30 milljónir kr. Eva Magnús-
dóttir, upplýsingafulltrúi Símans, seg-
ir að gerð verði krafa un endurgreiðslu
á fyrrgreindri upphæð. Úrskurðar-
nefndin komst að þeirri niðurstöðu
að Póst- og fjarskiptastofnun hefði
brotíð gegn jafnræðisreglu Stjómar-
skrár fslands, helsm meginreglum
stjómsýslulaga og lögum sem gilda
um Póst- og fjarskiptastofnun og of-
tekið rekstrargjald af Símanum.
Fjarskiptafýrirtæki skulu árlega
greiða Póst- og fjarskiptastofnun
Eva Magnúsdóttir „Gerum kröfu um aö fá
þetta endurgreitt."
rekstrargjald sem nemur 0,20% af
bókfærðri veltu af fjarskiptastarf-
semi. Ágreiningurinn á milli Símans
og Póst- og fjarskiptastofnunar stóð
aðallega um hvort telja skyldi svokall-
aða innri veltu sem hluta af bókfærðri
veltu félagsins. Póst- og fjarskipta-
stofnun taldi innri veltu með í rekstr-
argjaldstofni og hækkaði þar með
stofninn sem því nemur. Þessu hefur
nefridin hafitað.