Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.2006, Page 12
12 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2006
Fréttir DV
Dóplistamað-
ur í Hæsta-
rétti
Bjöm Tómas Sigurðsson,
sem hefur verið ötull bar-
áttumaður gegn fíkniefha-
djöflinum, fór fyrir Hæsta-
rétt í gær vegna máls síns
þar sem hann birti nöfn
tveggja lögreglumanna á
lista yfir meinta dópsala.
Björn hélt úti heimasíð-
unni dopsalar.tk. og hélt því
fram á síðunni að lögreglu-
mennimir lækju upplýsing-
um til glæpamanna. Bjöm
sagðist standa við allt sem
á síðunni stóð þegar hann
var leiddur fyrir Héraðsdóm
Reykjavíkur þegar málið var
þingfest á síðasta ári.
Yfirgefinn
jeppi sem
lenti á staur
Lögreglunni í Bolung-
arvík barst tilkynning frá
Vegagerðinni snemma á
fimmtudagsmorgun um
jeppabifreið sem hafði lent
á staur við Ósvör og var
þar yfirgefin. Virðist sama
bifreið hafa lent á vegriði
einnig og bar bifreiðin
ummerki þess. Lögreglan
rannsakar tilurð slyssins og
útilokar ekki að ökumaður
hafi hugsanlega ekið undir
áhrifum áfengis. Bifreiðin
er mikið skemmd.
„Fullt má ganga betur en allt er
þetta í vinnslu," segir
Guðmundur Sævar
Guðjónsson, forseti bæjar-
stjórnar I Vesturbyggð. „Það
stendur fyrir dyrum uppsetning
kalkþörungaverksmiðju á
Blldudal sem á að vera komin I
gagnið í haust og framleiða á
bilinu 50 til 60 þúsund tonn.
Það var slæmt fyrir okkur að
veiöar á rækju voru ekki
heimilaðar I ár. Frystihúsið
hefur verið lokað en það hefur
veriö unnið hörðum höndum
að þvl að koma þessu fyrirtæki
I gang aftur með fulltingi
Byggðastofnunar og annarra
hluthafa.
Byggðastofnun
hefur aðstoðað
við að kaupa til baka húsin
sem voru leigu félags suður
með sjó. Ivegamálunum er
unnið að þvl að fá hnekkt
úrskurði Skipulagstofnunar
sem bannar okkur að fara
niðurmeð sjó I staðinn fyriryfír
heiðarnar. Annars er það að
frétta afmannllfinu að næsta
laugardag verður hér árshátlö
fyrirtækjanna."
Landssíminn
Hanna Andrea Guðmundsdóttir er loksins búin að fá drenginn sinn aftur. Eftir 13 ára
baráttu fyrir því að fá son sinn Albert Þór Benediktsson til sin aftur hefur draumur
hennar ræst. Albert kom til hennar í lok febrúar því henni var dæmt forræði yfir hon-
um þegar hann yrði 16 ára sem var þann 1. mars.
Strokudrengurinn loksins
í inðmi móður sinnar
Hanna Andrea og dóttir hennar
Asrún Fanný.,Wð vorum öllsaman
umjólin og það varyndisleg stund.“
Albert Þór Benediktsson ólst upp hjá fósturforeldrum sínum frá
þriggja ára aldri. Hann var tekinn af móður sinni, sem var dæmd
vanhæf um uppeldi hans vegna þunglyndis. Hanna Andrea Guð-
mundsdóttir þurfti að þola hrottalegt ofbeldi frá bamsföður sín-
um sem hún brotnaði undan og bömin vom tekin af henni. AI-
bert þráði allan tímann að vera hjá móður sinni og móðir hans
reyndi allt sem hún gat til að fá forræði yfir honum en án árang-
urs þar til núna.
ist með hverri hreyfingu hans og
leyfði honum ekki að fara neitt eða
gera neitt," segir Hanna. Hún seg-
ir að það sé erfiður tími framund-
an hjá henni því Albert sé með at-
hyglisbrest og ofvirkur en hún er
samt bjartsýn á framtíðina því það
sem öllu máli skiptir er að þau séu
sam- ... an. „Við erum
reyndar
á göt-
„Loksins er hann kominn til
mín, drengurinn minn," segir
Hanna Andrea Guðmundsdóttir,
móðir Alberts Þórs Benediktssonar
sem margir kannast við undir við-
urnefninu strokudrengurinn. Móð-
ir hans segir að Albert hafi aldrei
verið ánægður hjá fósturforeldrum
sínum og þess vegna strauk hann
ítrekað frá þeim til móður sinnar.
Hönnu tókst ekki að fá forræði yfir
Albert og eftir að drengurinn var
búinn að strjúka mörgum sinnum
frá þeim afsöluðu þau sér for-
ræðinu yfir honum. Hann var þá
sendur á meðferðarheimili fyr-
ir unglinga þar sem hann var í
rúmt ár og er núna kominn heim
til móður sinnar.
Albert í skýjunum
„Hann er í skýjunum að vera
kominn heim til mömmu sinn-
ar því samband okkar hefur alltaf
verið frábært," segir Hanna. Hún
segir að núna ætli Albert að reyna
að klára samræmdu prófin í vor
því hann er kominn í Grunnskól-
ann í Sandgerði en hún segir að
það muni ekki vera auðvelt fyr
ir hann.
Skemmdur eftir
fósturforeldrana
„Hannerskemmd
ur eftir að hafa verið
hjá fósturfor
eldrum sín-
umþvíþau
leyfðu
honum
ekki að
þrosk-
ast og
vaxa
úr grasi
eins og
önnur börn. Fóst-
urfaðir hans fylgd
unni í vor því ég bý núna
hjá fyrrverandi sam-
býlismanni og
veit ekki hvað
ég get gert,
nefndar að skoða okkar mál og út-
vega okkur húsnæði, annars erum
við fjölskyldan á götunni," segir
Hanna.
Fær ekki dótið sitt
„Fósturforeldrar hans segja að
þeir hafi gefið dótið hans í Góða
hirðinn en ég trúi því ekki. Hann
fær ekki einu sinni fermingargjaf-
irnar sínar og við ætlum að kæra
þau fyrir að skila ekki eigum Al-
berts," segir Hanna. Hún segir að
hann eigi hjá þeim meðal annars
sjónvarp sem hann fékk í ferming-
argjöf auk persónulegra muna og
þau neiti að skila honum dótinu
sínu. Hanna og Albert búa ásamt
sex ára dóttir Hönnu og er fjöl-
skyldan hamingjusöm og glöð að
vera sameinuð á ný. „Við héld-
um jól saman í fyrsta sinn um
síðustu jól og það var yndisleg
stund sem ég átti með börn-
unum mínum en elsti son-
ur minn, sem er orðinn
21 árs, var líka með okk-
ur," segir Hanna að lok-
um og ánægjan leynir
sér ekki í rödd hennar.
Hanna Andrea Guðmundsdóttir oq
sonur hennar Albert Þór Benedikts-
son .„Loksins er hann kominn tilmln,
arengurinn minn“
DV-mynd: Pjétur
Smáralind vill afslátt af fasteignagjöldum
Vilja ekki borga 192milljónir í fasteignaskatt
„Við óskum eftir því að bærinn
verði við óskum okkar um afslátt af
fasteignagjöldum," segir Pálmi Krist-
insson, framkvæmdastjóri Smára-
lindar.
Fyrr í þessum mánuði sendi
Smáralind ehf. bréf til Kópavogsbæj-
ar með ósk um afslátt af fasteigna-
gjöldum. í gær tilkynnti félagið um
101 milljóna króna tap af rekstri fast-
eignarinnar sem hýsir fjöldamargar
verslanir.
Eins og af öðru atvinnuhúsnæði
hefur fasteignamat á Smáralind
hækkað mjög mikið á undanförnum
misserum. Fasteignamat Smáralind-
ar er 9,6 milljarðar króna frá og með
síðustu áramótum. Á þessu ári er
Smáralind gert að greiða 192 millj-
ónir í fasteignagjöld til bæjarsjóðs,.
Að sögn Pálma er það hækkun um
25 milljónir króna frá í fyrra. Nú sé
svo komið að fasteignagjöld nema
nálægt 20 prósentum af tekjum fast-
eignafélagsins miðað við 16 til 17
prósent áður.
Erindi Smáralindar hefur verið
lagt íyrir bæjarráð sem vísaði því til
umsagnar hjá fjármálastjóra og bæj-
arlögmanni.
Pálmi segir að í bréfinu sé gerð
grein fyrir því sjónarmiði að félagið
búi við skekkta samkeppnisstöðu.
„Fasteignamatið á að endurspegla
markaðsvirði eigna. Það má vel vera
að þetta sé sannvirði Smáralindar en
þá eru fasteignir samkeppnisaðila
okkar of lágt metnar," segir Pálmi og
útskýrir að þannig séu greidd lægri
fasteignagjöld af sambærilegum
verslunarhúsum armars staðar.
Pálmi vonast eftir jákvæðum und-
irtektum bæjaryfirvalda: „Smáralind
stendur undir 25 til 30 prósentum
af öllum tekjum sem Kópavogsbær
hefur af atvinnuhúsnæði með fast-
eignagjöldum. Við erum aðeins að
benda á að allt sé best í hófi og að
reksturinn hjá okkur verði að standa
undir sér."