Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 4

Símablaðið - 01.05.1992, Blaðsíða 4
Leiðari Ragnhildur Guðmundsdóttir Ræða Ragnhildar Guðmundsdóttur, formanns Félags íslenskra símamanna og varaformanns BSRB, á útifundi Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna á Lækjartorgi 1. maí s.l. Það er stundum haft á orði að tímarnir breytist og mennirnir með. Það er sannleikskorn í þessu svo langt sem það nær, en svo nær það bara ekki lengra. Það sem upp á vantar er það að mennirnir hafa afgerandi áhrif á það sjálfir hvernig tímarnir breytast. Þau samfélagslegu skilyrði sem við búum við er nokkuð sem við höfum skapað okkur sjálf. Það er raunalegt að vera fátækur, en raunalegri er sú fátækt sem Iýsir sér í algjöru áhuga- leysi á högum annarra, ekki síst þeirra sem eiga um sárt að binda. Þannig fátækt er fjötr- andi á flesta þætti mannlegs eðlis sem tengdir eru mannúð og mildi. Ef við hugum að lands- málum verðum við fljótt vör við að menn búa við hvers kyns ójöfnuð - hvert sem Iitið er ríkja miklar eiginhagsmunastefnur, og þá um leið völd sem eru á höndum fárra sem hafa gífurleg áhrif á líf og tilveru margra. Af slíku er lítil prýði. Þessi misserin er verið að breyta þjóðfélaginu í veigamiklum atriðum. Ríkisstjórnin hefur forgöngu um að vinda ofan af þeirri samhjálp sem við viljum að sé aðalsmerki íslensks þjóðfélags og vill í staðinn hefja kalda markaðshyggju til vegs. Gallinn er bara sá að þetta er gert að þjóðinni forspurðri. Hver kannast við það - á ársafmæli þessarar ríkisstjórnar - að hafa kosið stórfelldan niðurskurð í heilbrigðiskerfínu? Hver ykkar greiddu því atkvæði að svo grimmilega skuli saumað að skólakerfínu að til upplausnar horfí? Hversu mörg ykk- ar greiddu þeirri skattapólitík atkvæði sitt að sjúklingar og aldrað fólk sé vænlegasti skatt- stofninn? Nei, niðurskurðarmeistararnir í ríkisstjórninni eru ekkert að hafa fyrir því að hafa sam- ráð við þjóðina. Og það er ekki nóg með það: Fyrirætlanir þeirra margar hverjar líkjast meira trúarsetningum en niðurstöðum sem teknar eru að vel athuguðu máli. Þeir trúa því að einkavæðing sé allrameinabót atvinnulífsins, og trú þeirra er sterkari en svo að sporin frá Bretlandi Thatcherismans hræði. Yitaskuld eigum við að skoða með opnum huga allar breytingar sem til framfara geta orðið. Það kann vel að vera skynsamlegt að einkavæða ákveðna þætti í ríkisbúskapnum, en ákvörðun um það á að taka þegar búið er að meta kostina og gallana. Yið gerum ekki kostnaðaráætlun með því að reka puttann upp í loftið eins og yfirsmiðurinn í Perlunni, og eins gleypum við heldur ekki við stórfelldum áformum um einkavæðingu blindandi. I þessum efnum þurfum við að hafa vit fyrir ríkisstjórninni. Við viljum hafa hönd í bagga um gerð þess þjóðfélags sem við lifum í. 2 SÍMABLAÐIÐ

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.