Bræðrabandið - 01.03.1966, Side 1
33. árg.
Reykjavlk, marz og apríl 1966 3.,4.tbl.
„Allir eiga þeir að vera eitt
Þegar ég skrifa ykkur þennan boöskap, er þaö meö tilfinningu um
kristinn kærleika og samfélag viö ykkur öll fjær og nær. Viö tilheyrum
hinni miklu fjölskyldu Guös á himni og jöröu. hökk sé Guöi, sem er
faöir okkar allra, aö viö erum eitt I Jesó. Kristi, þótt viö tilheyrum
ýmsum þjóöum og kynflokkum.
Á hljóöum stundum hugsa ég oft um þann einingaranda, sem auökennt
hefur söfnuö okkar frá upphafi vega til dagsins I dag. Eg hef veriö
vitni aö mörgum stórum fórnum, sem færöar hafa veriö. Eg hef séö syni
og dætur safnaöarsystkinanna gefa líf sitt I þolinmóöa þjónustu fyrir
boöskapinn I heimalandi slnu eöa I fjarlægum trúboöslöndum. Eg hefi
staöiö viö grafir sumra, sem létu llfiö vegna Meistarans. Aöventistar
hafa löngum neitað sér um margt, sem aörir telja nauösyn, svo að þeir
gætu gefið til starfsins I heiönum löndum. Allt þetta ber vitni um
kristna einingu.
Gott er til þess aö vita, aö kristin eining er meöal höfuökenninga
þeirra, sem Bibllan flytur. Jesús lagöi mjög áherzlu á þaö aö eining
meðal fylgjenda hans væri alger nauðsyn. Hann sagöi, aö ávöxtur okkar
væri háöur samfélagi okkar við hann. Allir sem trúa eiga aö vera nátengdir
hverjir öörum eins og honn er tengdur fööur slnum. "Hvert það hús, sem
er sjálfu sér sundurþykkt, fær ekki staöizt," sagöi hann. Þótt læri-
sveinar hans næðu skammt I aö fylgja þessum meginreglum, vann hann
stööugt aö velferð þeirra. Einn af lærisveinum hans sveik hann, en hann
sýndi honum samt kærleika. Annar lærisveinn afneitaöi honum, en hann
sagði:"Eg hefi beöið fyrir þér til þess að trú þln þrjóti ekki."
Enginn persónulegur fordómur eöa hefndarhugur komst nokkru sinni aö
milli Jesú og þeirra, sem hann umgekkst - ekkert, sem rauf eininguna.
Þaö er mikilvæg staðreynd að frumherjar okkar lögðu mikla áherzlu
á gildi einingarinnar I söfnuðinum. Þessi hreyfing er þannig, aö hún
hentar öllum trúuöum um víöa veröld. Tilgangurinn meö tilveru safnaöarins
er aö fagnaðarerindið veröi flutt öllu mannkyni á áhrifarlkan hátt
og I anda einingar. Þessi einingarandi hefur veriö ræktaöur og allir
meölimir hafa lotiö stjórn hreyfingarinnar.