Bræðrabandið - 01.05.1966, Síða 1
33. árg.
Reykjavik, mai 1966
5.tbl.
A
fíSFUNDUfí
27-30. MAÍ
Prá miöstöð Norður-Evrópudeildarinnar var að berast skeyti, sem
tilkynnti komu formanns hennar, br. Roenfelts hingað föstudaginn 27. mal.
Mun br. Roenfelt dvelja hér nokkra daga til aðstoðar á ársfundinum og
stjórnarfundum, en siðan heldur hann för sinni áfram til Bandarikjanna
vegna heimsmótsins, sem háð verður í júni.
Vera má að einhver annar af bræðrunum stanzi hér og táki þátt í
ársfundi okkar - um það er ekki fyllilega vitað ennþá.
Samkvæmt ofansögðu mun fundurinn standa yfir um hvitasunnuna. Vonum
við að það geti hentað safnaðarsystkinunum, þótt sá tími sé ekki sá, sem
við ætluðum að nota, en vegna kringumstæðnanna og til þess að spara tima
og íerðakostnað þess eða þeirra, er frá útlöndum koma, hefur þessi timi
verið valinn.
Undirbúningur fundarins er þegar hafinn. Allt mun verða gert til
þesis að hér verði andleg hátið er glæði og styrki andlegt líf allra, sem
koma. Nú er það svq, að sköpun lífs er ekki á valdi okkar mannanna.
Hinsvegar getum við greitt lífinu veg. Þeir, sem gera það meö árvekni og
hyggindum, hljóta mikinn ávoxt.
Nú erum við kölluð til að eiga þátt i þvi að lif Guðs veitist okkur
t komandi hátíð. Með það i huga skulum við koma til ársfundarins. Meðan
sumir eru beðnir að undirbúa sérstök atriði fundarins skulum við öll
eiga þátt í undirbúningi hans og blessun með bæn fyrir honum og verki Guðs
i heild, Einungis í anda sannrar bænar getum við vænzt þess að koma
einhverju til leiðar verki Guðs til eflingar.
Væntum við þess að sjá marga hér á ársfundinum og aö hann veiti okkur
öllum nýtt lif og nýja náð Guðs.
J.G.