Bræðrabandið - 01.07.1966, Blaðsíða 1
(H xcedxcdandid
33. árg. Reykjavik, júli 1966 7.tbl.
U NGMEN NAMÖT
að Pélagsgarði, Kjós
II.- 17 JÚLÍ
Það hefur verið áhugi fyrir þvi í þetta sinn, að ungmennamótiö
yrði ekki mjög langt burtu. ímislegt hefur verið reynt á liðnum órum.
Sumt hefur gefizt vel. Nú ríkir það sjónarmið, að gera sem flestum
kleift að koma - eitthvað af timanum að minnsta kosti.
Með þvi að líta á tiltæka staði hér í grenndinni, kom þaö i ljós,
að þetta virtist vera eini hugsanlegi staðurinn, sem kostur var á að
fá. Húsið er nýlegt, snyrtilegt og gott til samkomuhalds. Skjólgott
tjaldbúðasvæði er nálægt húsinu, enda verða mótgestir aö búa i tjöldum.
LEmdrými er ekki mjög mikið, en von er um að fá góðan leikvang til
afnota.
Allháa leigu veröur að greiöa fyrir húsiö. Enda fylgir þvi upphitun,
rafmagn og eldhús með öllum búnaði o.s.frv. Nauösynlegt er því að mót-
gjaldið verði kr. 225.oo á mann (kr„4oo.oo fyrir hjón). Hálft gjald
verður fyrir börn 4-12 ára og ókeypis fyxir börn yngri en fjögurra ára.
Áður hefur verið skýrt frá því, að Paul Sundquist verður ræðumaöur
mótsins. Hann er frábær æskulýðsmaður. Ættu því allir, sem áhuga hafa
fyrir þvi aö börn þeirra og unglingar verði fyrir heilbrigöum andlegum
áhrifum,að stuðla að því að þau verði á æskulýðsmótinu.
Timinn er ekki hagstæður andlegu lífi. Börn og unglingar hneigjast
ekki að þeim áhrifum af sjálfu sér. Tilgangur mótanna er aö hjálpa
foreldrum i vandasömu hlutverki þeirra að vekja varanlegt andlegt líf
hjá börnum og unglingumc Þetta markmið næst ekki nema foreldrar komi
til móts við það sem aðrir gera. Vel hefur gefizt að foreldrar fari
sjálfir á mótiö og njóti þess meö börnum sínum.
Sumarleyfi og ferðalög geta orðið ýmsum til tjóns andlega. Hér
er tækifæri til aö sameina ánægjulega upplyftingu og andlegt líf.
Stuðlum að þvi að ungmennamótið skilji eftir varanleg áhrif hjá
æskunni - og veki löngun hennar til þess að velja vegi Guðs og halda
áfram á þeim„ T r
GJÖRIÐ SVO VEL AÐ TIIKYNNA ÞÁTTTÖKU 1 SIMA 13899 PYRIR 4. JNH.