Bræðrabandið - 01.12.1966, Síða 3
Bls. 3 - BRÆÐRAMNEIÐ - 12.thl. '66
fram undir því yfirskyni aö um sé aö ræöa áhuga fyrir andlegum málum
eöa veriö sé aö verja einhverja tráarkenningu. Enginn mun geta
neitað því, að slíkur söngur sé allútbreiddur, og viö sjálf tökum
undir í hópum, "kvartettum" og "tríoum".
Hvernig væri að reyna aö syngja söng Andans, þegar þessi freisting
verður á vegi okkar? Við ættum að festa okkur í huga og tjá öörum
huggun hiröissálmsins, öryggi og leiðsögn fj allræöunnar, orökyngi og
traust 51. Sálmsins og hina himnesku samhljóma 13. kapítula 1. Korintu-
bréfsins. Auk þess ættum viö að kunna vel eftirfarandi sálma:
A hendur fel þú honum, Yfir krossi Krists ég fagna, Sálar minnar sanni
vin og ö, þá náö aö eiga Jesúm o.fl.
Ákveö nú þegar aö láta hjálpræðissöngva koma í staðinn fyrir
ádeilu-sönginn. Ef þú gerir það, mun samræmi himinsins fylla
hjarta þitt og aörir munu taka að syngja með. Lát þetta stöðugt vera
söng þinn, og brátt raun sá tími koma, að söngur þinn blandast söng
hinna endurleystu frá öllum öldum - en söngur þeirra verður eins og
niöur margra vatna og efni hans þetta:"Mikil og dásamleg eru verkin
þín, Drottinn Guö. þú alvaldi; réttlátir og sannir eru vegir þínir,
þú konungur aldanna. Hver skyldi ekki óttast, Drottinn, og vegsama
nafn þitt? Því að þú einn ert heilagur, því að allar þjóöir munu
koma og tilbiðja frammi fyrir þér, því að ré'tlátir dómar þinir eru
opinberir orðnir." Op.15:3.4.
Þetta er söngur Móse og lambsins. Þeir, sem syngja hann, hafa
sjálfir reynt frelsandi náö Jesú Krists. Það er sigursöngur þeirra,
í hverra munni enga lygi er að finna. Hann túlkar sigur yfir öllum
illum öflum - sigur yfir hinu synduga sjálfi. Hann mun veröa sunginn
um alla eilífð - en verður þó ávallt nýr. "Og þeir syngja sem nýjan
söng frammi fyrir hásætinu." Op.l4:3.
Th.Carcich
varaformaður General Konferensins
NORÐAN
Akureyri, 28. nóv. 1966
Á meðan ég sit viö skrifborðið og hugsa um það, sem ég ætla aö
skrifa í Bræðrabandið, viröi ég fyrir raér ljósadýrðina á Oddeyrinni.
Ljósin tindra í öllum regnbogans litum í náttmyrkrinu. Oft verður
mér hugsað til þess tíma, þegar Guð á svo mörg "lifandi ljós" hér
Norðanlands - í hundraða tali. Eða mun sá tími koma? Munu fyrir-
finnast hér svo margar sálir, sem reiðubúnar eru að taka á móti
síðasta náðarboðslcap Guðs? Guð gefi að svo verði.
Veðrinu hefir slotað. í gær var hér versta veður, iðulaus
stórhríð. Við reiknuðum varla meö því að börnin kæmu á Sögustundina.
En þegar klúkkan nálgaðist hálf tvö hringdi dyrabjallan stöðugt. Um
20 böm vildu ekki missa af Sögustundinni fyrir nokkum mun. Um 25
börn korua hvern sunnudag í Sögustund barnanna.
Á hvíldarúögum koma 11 trúsyskini reglvlega saman í hvíldardags-
skólann heima hjá undirrituðum, að Löngumýri 24. Sumir koma langt að.