Framsóknarblaðið - 06.03.1946, Page 1

Framsóknarblaðið - 06.03.1946, Page 1
RAHtOKNARBlAOID tJttfefandl: Framsókxuurflokknrixui í VeatntBBatyfin 9- árgangur- Vestmannaeyjum, 6. marz 194(1 4. tölublað Heildsalamálin Nýlega hafa fjórir heildsalar verið dæmdir fyrir brot á gjaldeyris- og verðlagslögunum. Þeir verða að greiða 235 þúsund króna sekt, og endurgreiða 420 þúsund króna ólöglegan gróða. Meginhlud allrar inntlutnings verzlunar íslendinga er í hönd- utn fjölmennrar heildsalastéttar. Á fyrstu árum stríðsins hljóp mik ill ofvöxtur í heildsalastéttina. Enda var ekki til lítils að vinna, því að á fáum mánuðum eða jafnvel vikum, gat heildsaii á lítilli vörusendingu af glysvör- um og gagnslausu drasli — sem ieyfður var útfíutningur á úr ó- friðarlöndunum — grætt tugi og hundruð þúsunda. Voru þá fjöl- margir, sem aldrei hafði dreymt um að verða heildsalar „löggilt- ir“ af því opinbera til þess að annast þessi trúnaðarstörf, sem öll þjóðin á mikið undir, að séu rækt af samvizkusemi og fullum heiðarleik. Ýnlsir, eins og t. d. Jóhann Jósefsson, urðu meðeig- endúr í fieiri en einu heildsölu- fyrirtæki. Var það í sjálfu sér eðli legt með Jóhann, því að hann hefur um fjölda ára stundað kaupsýslu með forsjálni. En þeg- ar landlæknirinn, Vilmundur Jónsson, fór að stofna slíkt fyrir- tæki, urðu margir dálítið undr- andi, sérstaklega af því að þetta fyrirtæki var ekki miðað við inn- kaup til spítala eða lækna. Og meira að segja ekki svo fáir kom- múnistar, sem hafa ofsalega p- beit á allri fjársöfnun og háum tekjum, féllu fyrir freistingunni, sérstaklega þeir, sem voru kornn- h' uppá það, að ná sér t auka- tekjur með því að hala svolitlar pvósentur af vinnulaunum þeirra manna, scm seldu vinnu sína setu liði því, sem í landinu dvaldi. Þó voru þeir ekki fleiri en það, að kommúnistaflokkurinn taldi sig berjast. á móti „heildsalaklík- unni“, og léti það verða siu fyrsta yerk, ef liann kæmist til valda, að ,,skera“ þessa heil<Jsa\a niður. Þráti fyrir þessar yfirfýs- ingar, gat Þjóðviljinn skýrt frá því nýverið, að gróði heildsal- anna árið 1945 af innflutningi þess árs, væri yfir 50 milljónir. Nú hefðu flestir haldið, að svona mikill gróði væri nægilegt lifi- brauð fyrir þessa stétt manna. En svo er nú ekki, heldur hafa þeir notað þessa trúnaðarað- stöðu sína til jress að ná sér í laglegan aukaskilding á kostnað borgara landsins, sem vörurnar kaupa. Og það í gjaldeyri, sem er líklegur til Jjess að verða í fullu gildi, J)ó að íslenzka krón- an verði með aðgerðum — eða aðgerðarleysi — ríkisstjórnarinn- ar gerð verðlaus; sem sagt í doll- urum. Aðferðin er ósköp ein- föld: Þaö, sem þessir herrar jxilt- ust kaupa fyrir 100 dollara greiddu þeir ekki nema 75 eða 50 dollara fyrir, og lögðu svo mis- muniiin inn á sinn reikning í Bandaríkjunum. Þar er þessi fúlga á fríum sjó, og ekki nein ástæða til að óttast, að skattayf- irvöld landsins séu að plokka af þessu t hinn síveltandi ríkissjóð. Fyrir utan þessa fínu aðstöðu með dollaraiia varð gróðinn allt að því tvöfaldur fyrir hina leyfðu álagningu, sem var því meiri, sem varan var dýrari í innkaupi. Þessi verzlunarmáti gekk nú eins og í sögu jrar til s. 1. vor, að tollgæzlan í Reykjavík tók eftir úrum og skrautvörum, sem kaup menn Reykjavíkur skreyttu með glugga sína. Við rannsókn kom í ljós, að vörur þessar höfðu ver- ið fluttar inn án lögboðinna pappíra af einu fyrirtæki Jó- hanns Jósefssonar, sem heitir S. Árnason & Co„ því aldrei er mað urinn fyrir það, að vera að flagga nafni sínu að óþörfu. Hafð’i dótið verið flutt. inn tneð skipi, sem j[óhann ()g fleiri höfðu látið smíða í Halifax á > vegum Nýbyggingarráðs, og hét Haukur, rneðan Jxtð flaut, sem var ekki mjög lengi, því að það sökk í sumarblíðunni i fyæstu för sinni til Englands. Ýmislegt íleira koma í ljós í sambandi við vörur til þessa fyrirtækis, meðal annars fundust í tunnu einni, sem hafði vörur að geyma, fakt- úrur með frumverði varanna, sem eins og áður er lýst, voru allmikið ódýrari í innkaupi en á reikningum þeim, sem sýndir voru tollyfirvöldunum. — Út af þessu kærði verðlagsstjóri S. Árnason &: Co„ og um sama leyti annað Jaekkt fyrirtæki, Ó. John- son Sc Kaaber. Þó hafði aðaleig- andi þess fyrirtækis nýlega sýnt af sér þá rausn, að gefa setustofu húsgögn í nýja Stúdentaheimil- ið í Reykjavík, og fengið maklegt lof í Mogganum. Búazt: hefði mátt við, að hin röggsama nýsköpunarstjórn hefði brugðið fljótt við un,dir kjörorð- inu „upprætum hneykslið hvar sem það finnst“, en svo var ekki. S. Árnason & Co. fekk faktúrur sínar sem óvart lentu hjá toll- inum, lánaðar, og svo voru þær í misgáningi sendar til Ameríku í flugvél. Annar aðaleigandi, Ó. Johnson & Kaaber, Arent Claes- sen, var um þetta leyti valinn af ríkisstjórriinni sem sendimaður heririar í viðskiptaerindum til þess að semja við Svía um vöru- kaup. — Reyndist þetta njesta happaferð fyrir þessa fjölskyldu, J)ví að mannirium tókst að fá einkaumboð handa syni sínum á raftækjum frá einu bezta raf- magnsfirma í Svíjyjóð, enda stofn aði sonurinn strax eftir heim- . komu föðurins, nýja heildsölu með slíkar vörur. Leið nú langur tími, sem ekk- ert gerðist, í sambandi við kærur verðlagsstjóra, en kærurnar til- kynntar í blöðum og útvarpi, svo að aðilar beggja megin hafs gætu vitað á hverju væri von, og lát- ið reikninga, nýja eða gamla, fljúga milli sín. Öðruvísi mér áð- ur brá, þegar Jón ívarsson var kærður fyrir að útvega Hornfirð- ingum kol á Norðfirði, þegar kolalaust var í Hornafirði, og selja j)au undir kostnaðarverði, og selja kaífibætir frá Johnson Siglufjarðarmálið Hæstiréttur staðfestir úrskurð fógetaréttar Siglufjarðar í Kaupfé- lagsmólinu. Þóroddur og félogar dæmdir til greiðslu mólskostnaðar í bóðum réttum. Eins og frá var skýrt í síðasta blaði fengu umboðsmenn kom- múnista málinu frestað, er það átti að koma fyrir í hæstarétti um miðjan janúar, þar til dag- inn eftir kosningarnar 28. jan. Hefur hæstiréttur nýlega kveð ið upp dóm í málinu, og er hann á þá leið, að úrskurður fógeta- réttar Siglufjarðar er staðfestur að öllu leyti, og Þóroddur og félagar hans dæmdir til greiðslu 2 þúsund króna málskostnaðar fyrir hæstarétti. Áður en þessi dómur hæsta- réttar gekk, létu kommúnistar skína í það, að hæstiréttur myndi ógilda fógetaúrskurðinn, enda hefði hann verið kveðinn upp af nazista. Nú hefur orðið ann- að upp á teningnum. Hefur öll uppivöðslusetni og lögleysur kommúnista í sambandi við stjórnarkosninguna í kaupfélag- inu í vor verið ógild dærnd af hæstarétti. En J)ar með er ekki sagan öll, J)ví að þessi úrslit skapa grundvöll undir frekari málsókn- ir i sambandi við störf hinnar ólöglegu stjórnar um margra vikna skeið. Lítur út fyrir, að þær ráðleggingar Áka, að reka trúnaöarmennina úr félaginu, ætli að verða þeim kumpánum dýr áður en líkur. Og lítill sómi er það Vestmannaeyingum, að sá maður, sem xhest hefur verið til skaða og skammar íslenzkum samvinnufélagsskap, Þóroddur Guðmundsson, hefur setið árum saman á Alþingi fyrir atkvæði Vestmannaeyinga. & Kaaber nokkrum aurum hærra en lög, sem þá ekki voru korain til framkvæmda, leyfðu. Þá var nú fljótlega tilkynnt, hvað kæmi Frh. á 3. síðu.

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.