Framsóknarblaðið - 25.10.1950, Síða 4
4
FRAMSÓKNA RBLAÐIÐ
Hallur Hálendingur
Bœjarfréttir
Páll Jónasson kom til Eyja
11. þ. m. á vélbátnum Heima-
kletti sem hann hefur tekið á
leigu og ætlar að gera út frá Eyj
um.
Torfi Jóhannsson bæjarfógeti
hefur látið skrá bifreið sína í
Vestmannaeyjum og ber bíllinn
númerið V. 1. Fyrrverandi bæj-
arfógeti Gunnar Þorsteinsson
hafði sinn bíl alltaf með Reykja-
víkurnúmerinu.
Pólstjarnan tók hér saltfisk
til útflutnings 14. þ. m.
,,Þorsteinn" kom með vörur
frá Reykjavík 16. þ. m.
Dýpkunarskipið Grettir lauk
verkefnum sínum í Vestmanna-
eyjahöfn að þessu sinni 12. þ.
m. Skipið fór héðan 15. þ. m. í
fylgd með vitaskipinu Hermóði.
ur.
Óskar Gíslason kvikmynda-
tökumaður sýndi hér í Eyjum
kvikmyndina ,,Síðasti bærinn í
dalnum" 14, 15. og 16. þ. m.
við mikla aðsókn. Sýningar fóru
fram í samkomusalnum í skrif
stofubyggingu Helga Benedikts-
sonar við Strandveg.
Vatnajökull tók hér hraðfryst-
an fisk til útflutnings 17. þ.
m.
Endurskoðendur bæjarreikn-
inganna hafa með bréfi dagsettu
16. þ. m. skuldbundið sig til þess
að Ijúka endurskoðun og upp-
gjöri reikninga bæjarsjóðs og
stofnana hans fyrir 15. marz ár-
lega.
Katla kom með salt til
Vinnslustöðvarinnar 18. þ. m.
,,Þorsteinn" kom með vörur
frá Reykjavík 19. þ. m.
Esja kom hingað að austan
og norðan 22. þ. m. Skipið kom
inn í innrihöfn og lagðist þar
að bryggju um háfjöru.
Félagssamtök útgerðarmanna
hafa stöðvað crfskipun á fiski þar
til lagfæring fæst á greiðslu og
verðlagi. Munu ýmsirtelja slíkar
ráðstafanir vonum seinna.
Baldur Pálmason hefir dvalið
hér undanfarna daga til þess að
annast upptöku fyrir fyrirhugað
Vestmannaeyjakvöld útvarpsins.
Vélbáturinn Von kom hingað
frá Danrnörku 24. þ. m., en þar
var ný vél sett í bátinn. Báturinn
flutti hingað ýmsan varning.
Röksemdafærsla þeirra sálu-
félaganna Guðlaugs og Páls er
nokkuð sérkennileg, en báðir
eiga þeir sem kunnugt er sæti
í hafnarnefnd. Annan daginn
telja þeir að bæjarstjórnin, sem
er óumdeilanlega húsbóndi hafn
arnefndar, taki af sér öll ráð, en
hinn daginn telja þeir sig aftur á
móti stjórna bæjarstjórninni með
hafnarnefndarsamþykktum. Þess
um frásögnum svipar til frá-
sagnar þeirra félaga um að flug-
vélin Geysir sé lítið skemmd á
Vatnajökli.
Gunnar gamli Ólafsson er nú
aftur orðinn helzti rithöfundur
Sjálfstæðisflokksins, eftir að
hafa verið saltaður í ritbanni
Ársæls um alllangt árabil, sann-
ast þar vísuorðin: „svo var mikill
Satans kraftur, að saltaðir
þorskar gengu aftur."
Bæjarbúum er nokkur forvitni
á því að vita um það eftir hvaða
reglum Stefán Árnason yfirlög-
regluþjónn fær frí, þar sem frí
hans á yfirstandandi ári skipta
orðið mánuðum.
Margir reknetabátar hafa nú
hætt veiðum vegna aflatregðu,
on mjög lítil reknetasíld hefir
veiðst það sem af er þessum
mánuði.
Elliheimilið Skálholt er nú full
búið. Starfræksla mun fyrirhug-
uð um næstu mánaðamót.
Búið er að slá upp steypumót-
um fyrir efstu hæð Gagnfræða-
skólabyggingarinnar og er verið
að steypa hæðina.
„Þorsteinn" er væntanlegur
með vörur frá Reykjavík á morg-
un.
Tónlistarfélag Vestmannaevja
er í undirbúningi með að koma
hér upp kennslu í hljóðfæraleik.
Framsóknarfélögin í Vest-
mannaeyjum héldu fundi á
Hótel H. B. 23. þ. m., þar voru
kosnir fulltrúar á flokksþing
Framsóknarflokksins sem hefst í
Reykjavík 17. nóvember n.k.
Vélsmiðjan Magni hélt árs-
fagnað fyrir starfslið sitt á Hótel
H. B. 21. þ. m.
Rangæingafélagið heldur
skemmtifund á Hótel H. B. í
kvöld.
Framsóknarvist verður spiluð
n.k. föstudag kl. 8V2 síðdegis að
Hótel H. B.
Morgunblaðið birti nýlega
langt samtal við þingmann Vest-
mannaeyja, Jóhann Þ. Jósefsso.n
Kemur þar glöggt fram, hve Jó-
hann er ókunnugur málum Eyj-
anna. Meðal annars er þarna
haft eftir Jóhanni að dýpkunar-
skip Vestmannaeyja heiti Heima
ey. Skipið heitir og hefir frá upp-
hafi heitið Vestmannaey. Þá tel-
ur Jóhann að í ár sé síld söltuð
í Eyjum fyrsta sinni. Síld var
söltuð í Eyjum í all stórum stíl
1935 auk þess sem Helgi heit-
inn Jónatansson, Þorvaldur Guð-
jónsson og fleiri hafa saltað hér
síld af og til.
Ingimundur hefir óskað þeirri
leiðréttingu komið á framfæri að
Jóhann hafi ekki drukkið öl hjá
honum, heldur á móti honum,
því þeir hafi staðið sinn hvorum
megin við borðið.
Pálsbraut hefir marg talið eft
ir að innheimtulögfræðingur
bæjarsjóðs skuli búa á hótel H.
B. þegar hann dvelst í Eyjum.
Almennt er talið, að hér sé um
yfirdrepsskap Páls Þorbjörns-
sonar að ræða, en vilji menn
láta Pál njóta sannmælis, þá má
ekki gleyma þvi að komið mun
hafa fyrir að hann hafi fengið
ókeypis kjallaragistingu á ferð-
um sínum í Reykjavík á útgerð-
arstjórnarárunum.
Blaðalesendur fýsir að sjá á
prenti lýsingar þeirra fóstbræðr-
anna Stefáns Árnasonar og Páls
Þorbjörnssonar á mannkostum
manna þeirra, sem sóttu hér um
bæjarfógetaembættis á s.l.
sumri, ekki færi illa á því að
Stefán kæmi þessu að sem sér-
stöku númeri á málevrkasýning-
unni fyrirhuguðu.
ÍSLAND
ísland, yndislega
eyjan góða mín,
ég ann þér alla vega,
oft vil minnast þín,
og þig þlessi öll þín þjóð,
fram þig leiði föður hönd,
fóstra og móðir góð.
Flestum fegri í heimi,
fjalla drottning kær,
eld og ís þú geymir,
allmörg vötnin tær,
fagurt er þitt fossaskraut
blessi drottinn landsins lýð,
lækni hverja þraut.
Una Jónsdóttir
Dónamenni
Einn af kunnustu blaðamönn-
um landsins skrifar í blað sitt
11. þ. m. um skrif Gunnars Ól-
afssonar kaupmanns á Tangan-
um og segir þar:
„ . . . Bar hann (þ. e. Gunn-
ar Ólafsson) þeim á brýn hvers-
konar mannskemmdir og hafði í
grein þessari þá tegund af orð-
bragði, sem menntalítil dóna-
menni beita, þegar þeir eru viti
sínu fjær af reiði. . "
,, . . . Hinn aldurhnigni lög-
leysingi í Vestmannaeyjum virð
ist hafa talið rétt að hefja til
viðbótar upplognum hrakyrðum í
blöðum um saklausa menn,
beina sókn á hendur gæzlu-
manna landhelginnar," . . .
. . . „Þessi kaupmaður hefir
lengi verið starfsfélagi Jóhanns
Jósefssonar þingmanns Vest-
mannaeyinga ..."
í þessum dúr skrifar blaða-
maðurinn um hið „mannskemm-
andi dónamenni" á Tanganum,
sem jafnan hefir reynt eftir
getu að spilla skólastarfi í þess-
um bæ, þó að áhrifa hans gæti
nú ekki orðið að neinu, sem bet-
ur fer. Það markaði tímamót í
skóla og menningarsögu Eyjanna,
þegar áhrifa þessa „dóna-
mennis" og starfsfélaga hans
hætti að gæta hér í bæ.
Þ. Þ. V.
Gúmmíst-implar
Tek á móti pöntunum næstu
daga frá kl. 12—1 og 6—7.
Ragnar Magnússon
Lágafelli
Sími 159
Útvatnaður saltfiskur
og skata.
ÍSHÚSIÐ
Hvítkál, Gulrætur og
guirófur pr. 3,00 kg.
ÍSHÚSIÐ