Freyr - 15.01.1982, Síða 12
Sigurður St. Helgason
Strandkviaeldi
1. Inngangur.
Hvers vegna er Búnaðarfélag íslands að efna til ráðstefnu um fisk? Hvað á fiskur, í þessu
tilfelli lax, sameiginlegt með öðrum þeim lífverum, sem bændur annast? Einn þáttur er
sameiginlegur öllu því, sem okkur er tamt að flokka undir búskap. Maðurinn stjórnar og
hefur áhrif á umhverfisþætti dýra, sem áður hafa verið villt i náttúrunni. Petta er árþúsunda
þróun, sem hægt og bítandi hefur fært manninn af stigi veiðimannaþjóðfélágsins, þar sem
afrakstur fór eftir afkomu dýranna við óbreytanleg ytri veðurfarsskilyrði og tæknikunnáttu
mannsins til veiða.
Æ fleiri tegundir hafa þannig í
tímans rás fallið undir stjórnandi
hönd mannsins, og nú eru laxfiskar
komnir í hóp annars búfénaðar
okkar og því rökrétt og sjálfsagt,
að bændur láti þá sig varða. Það er
'einnig eðlilegt, að á íslandi, þar
sem sauðkindin hefur lengst af
verið okkar heilaga dýr, veljist
búskap með sporðfénað nafngiftir,
sem tengjast aldagömlum hefðum
sauðfjárræktarinnar, og raunar má
segja, að málvitund okkar hafi nú
þegar skipað laxinum á bekk með
sauðkindinni frekar en þorskinum.
Við tölum um hafbeit, þegar lax-
inum er beitt á mið hafsins og hví
ekki árbeit fyrir ungseiðin í
heimahögum í ám og vötnum? Það
kallast eldi, þegar fiski er haldið
innan afmarkaðra svæða og hann
fóðraður eða alinn til frálags. Flot-
kvíaeldi: Svæði afmarkað með
flotnót í sjónum. Strandkvíaeldi:
Ker eða kvíar á sjávarbakka.
2. Frá veiðimennsku til búskapar.
Það er kunnara en frá þurfi að
greina, að afskipti mannsins af
eðlilegum lífsferli þessarar dýra-
tegundar, þ. e. fyrstu sporin í þá átt
að gera laxinn að húsdýri, ,,dom-
estikera" hann, hafa nú þegar
borið mjög ríkulegan ávöxt. I
flestum ám hérlendis þurfa seiðin
að dveljast 3—4 ár frá klaki, áður
en þau geta hafið sjávargöngu,
20—40 g að þyngd. Með nýtingu
jarðvarma til að skapa bestu vaxt-
arskilyröi hafa eldisstöðvar í reynd
stytt þennan tíma niður í 1 ár, og
geta nú í dag enn stytt hann um
helming. Meiri hluti laxins hefur
náð 2,5 kgþyngd eftir ársdvöl í sjó,
er hann snýr aftur á uppeldis-
stöðvar. Þá eru liðin um 2 1/2 ár
frá klaki seiða í eldisstöð. Endur-
heimtur teljast allgóðar, ef þær ná
8—10%. Þetta er hafbeitin. Fyrsti
þáttur lífsferil laxins er hér kominn
undir stjórn mannsins, en náttúran
sjálf annast meginvaxtarþáttinn,
sem fram fer í sjó. Hversu miðar
hjá okkur að ná einnig stjórn á
sjávarþættinum?
Tilraunir með flotkvíaeldi hér
við land undanfarinn áratug hafa
sýnt mun lakari vöxt en fæst í flot-
kvíum við Noregsstrendur, en þar
vex lax að jafnaði úr 35 g í 1 kg á
einu ári. Hér er meðalhiti sjávar á
nokkrum stöðum við suðvestur-
ströndina 7—8° sem er nokkru
lægra en í flotkvíaeldi Norðmanna.
Þó er verra að brimnót hamlar víða
flotkvíaeldi hér á vetrum. Einnig
er þá hætta á undirkælingu sjávar,
sem valdið getur dauða fisksins.
Þarna eru ytri skilyrði, sem við
höfunt sáralitla möguleika til að
hafa áhrif á , en ákvarðast fyrst og
fremst af veðráttu og haf-
straumum. Þess er því ekki að
vænta, að árangur sambærilegur
við seiðaeldið, þarsem ytri þáttum
er glöggt stjórnað, náist í að hraða
þorskaferli.
Strandkvíaeldi miðar að því að
búa kjörskilyrði umhverfisþátta til
vaxtar laxfiska, sem aldir eru i af-
mörkuðum kvíum á ströndinni.
Unnt er að stjórna helstu um-
hverfisþáttum þannig, að best
henti þroskastigi fisksins á hverj-
um tíma. Tilraunir með
strandkvíaeldi hófust fyrst hér við
land fyrir þremur árum að Húsa-
tóftum við Grindavík. Síðustu
niðurstöður benda til þess, að unnt
sé að ná fiski í 2,0—2,5 kg. þyngd á
8— 10 mánuðum, ef upphafsþyngd
sjóeldisseiða er 100—200 g. Með
ítrustu beitingu hita— og seltu-
stigsstjórnunar í seiðaeldi benda
líkur til, að unnt sé að ná sjóeldis-
seiðum í 100—200 g þyngd á 12
mánuðum frá klaki. Þannig opnast
leiðir til að ná laxi í sláturstærð
(2—2,5 kg) á tæpum tveimur árum
52 — FREYR