Freyr - 15.01.1982, Page 32
Böðvar Sigvaldsson, Barði
Veiðifélag Miðfirðinga
Rekstur veiðifélaga.
Þegar ég var beðinn að tala um rekstur veiðifélaga þá lá beinast við fyrir mig að tala um
rekstur á því félagi þar sem ég er formaður. Þess vegna rœði ég um rekstur Veiðifélags
Miðfirðinga. Veiðifélag Miðfirðinga var stofnað í nóvember 1938, eftir lögum frá 1932 um
lax og silungsveiði. Tilgangur félagsins var að vinna að fiskirækt og að leggja niður netaveiði
sem sumir töldufastsótta og aflítillifyrirhyggju jafnvelsvo aðfiskistofnar vœru íhœttu vegna
ofveiði, en taka þess í stað upp veiðar á félagslegum grundvelli og þá helst stangaveiði.
Veiðifélagið gerði í fyrstu leigu-
samning við útlending sem ætlaði
ána til stangaveiði. Þessi samning-
ur féll að hluta til úr gildi vegna
stríðsins sem þá braust út. Þá tók
félagið það til bragðs að veiða á
félagslegum grundvelli í svokall-
aða kistu og seldi síðan laxinn
ferskan til Reykjavíkur. Þessi að-
ferð mun hafa verið notuð í um það
bil tvö ár.
Síðan hefur félagið nytjað
vatnasvæðið undantekningarlaust
til stangaveiði. Fyrstu árin var
engin aðstaða við ána til þjónustu
við veiðimennina. Þá var málið
leyst þannig að veiðimennirnir
dvöldu á sveitaheimilum og ferð-
uðust oft með ánni fótgangandi
eða á hestum.
Fyrsta veiðihúsið við ána var
byggt árið 1945. Þetta hús var að
öllu leyti í eigu leigutaka og allur
búnaður sem þurfti til reksturs
þess. Þetta hús gekk eitthvað
kaupum og sölu milli leigutaka.
Árið 1964 byggja leigutakar nýtt
180 m2hús við ána. Þarna másegja
að verði þáttaskil hjá félaginu, en í
samningum þá eignast Veiðifélag
Miðfirðinga þetta hús á næstu 5
árum og varð það á ýmsan hátt til
mikils hægðarauka fyrir félagið, t.
d. við útleigu árinnar. Þetta þótti á
sínum tíma gott og vandað hús og á
allan hátt til fyrirmyndar á þeim
tíma. En tímarnir breytast og kröf-
urnar aukast. í kringum 1970 var
farið að ræða um viðbótarbygg-
ingu sem þjónaði betur nútíma-
kröfum um vandað og fullkomið
veiðihótel.
Á fundi sem haldinn var í félag-
inu 20. nóvember 1973 var sam-
þykkt að ráðast í byggingu til
stækkunar og fullkomnunar á hús-
eign félagsins. Þessi stækkun var
rúmlega 300 m2 til viðbótar því
sem áður hafði verið byggt.
Á þessum fundi kom fram mikill
áhugi á að gera nýbygginguna sem
best úr garði og m. a. segir í
fundargjörð frá þessum fundi, þar
sem rætt var um nýbyggingu, að
miklar umræður urðu um þessi mál
og komu fram ábendingar um að
hafa snyrtingu við flest eða öll her-
bergin, hafa möguleika til að koma
upp gufubaði, stækka dagstofu,
bæta aðstöðu við síma, eldhús
þyrfti að vera gott og anddyri veg-
legt. Hafist var handa við bygg-
ingarframkvæmdir þá strax um
veturinn og grunnurinn steyptur
mars í einmuna góðu veðurfari.
Húsið var síðan tekið í notkun 1.
júlí þá um sumarið. Ekki átti félag-
ið peninga í sjóði til að fjármagna
nýbygginguna. Helstu lánamögu-
leikar voru víxillán hjá þeirri lána-
stofnun sem félagið skiptir við og
síðan lánaði Stofnlánadeild land-
búnaðarinsum 17% afkostnaðar-
verði. Þessi skortur á langtíma
lánsfé eykur mjög á fjármögn-
unarerfiðleika og t. d. varð félagið
að fella niður greiðslu á arði til fé-
lagsmanna í tvö ár eftir þessar
byggingarframkvæmdir.
Áhugi á fiskeldisaðstöðu á veg-
um Veiðifélags Miðfirðinga hefur
verið mikill. Fyrsta tilraun til að
klekja út hrognum og sleppa seið-
unum í ána var gerð við frumstæð-
ar aðstæður í litlu klakhúsi sem
byggt var við ána. Sumir félags-
menn töldu sig merkja árangur af
þessu starfi. Árið 1964 tók Veiði-
félag Miðfirðinga þátt í undirbún-
ingsviðræðum af hálfu veiðifélaga í
Húnavatnssýslu um stofnun félags
um byggingu og rekstur fiskeídis-
stöðvar fyrir Húnavatnssýslur. í
þessu sambandi voru skoðaðir álit-
legir staðir í Húnavatnssýslu og
Skagafjarðarsýslu. Þetta mál var
þá komið á nokkurn rekspöl en
þótti af ýmsum ástæðum ekki
framkvæmanlegt að leggja út í
byggingu laxeldisstöðvar á þeim
tíma og var því þá slegið á frest.
Síðan var það að árið 1977 að
þessar hugmyndir eru endurvaktar
og þá í samvinnu við veiðifélög í
Skagafjarðarsýslu. Þá er aftur leit-
að eftir aðstöðu fyrir laxeldisstöð í
Norðurlandskjördæmi vestra.
Þetta mál hefur nú þróast þannig
að nú er risin og tekin til starfa
laxeldisstöð að Hólum í Hjaltadal,
Hólalax h. f., í eigu veiðifélaga í
72 — FREYR