Freyr - 15.01.1982, Page 35
tók allan rekstur í sínar hendur
heim í hérað, þá hefur það e. t. v.
verið vegna áhuga á því að kynnast
betur hvaða verðmæti það væru,
sem félagið lét af hendi til leigu-
taka við leigusamning um ána og
forvitni á því, hvernig væri að anna
þessum rekstri heima í héraði. Pað
hafði komið fyrir að Ieigutakar
töldu sig hafa greitt hærra verð fyr-
ir veiðiréttinn heldur en hægt væri
að fá inn fyrir veiðileyfi og hefðu
þeir þannig orðið fyrirfjárhagslegu
tjóni.
Einnig hafði komið fyrir að
veiðiréttareigendur töldu leigu-
takann hafa hagnast óeðlilega eða
selja veiðileyfin á óeðlilega lágu
verði. Þetta kom t. d. fyrir, þegar
samningar voru til margra ára.
Þegar þetta var haft í huga, þótti
eðlilegt að veiðifélagið bæri sjálft
ábyrgð á ölium rekstrinum, og
þegar vel gengi bæri félagið sjálft
hagnað af velgengninni en ef illa
gengi þá væri enginn sem skaðaðist
nema félagið sjálft. En það eru líka
margir fleiri hlutir, sem eru já-
kvæðir og þar má t. d. nefna að það
er jákvætt að þéttbýlisbúar sem
koma til að n jóta útiveru og þeirrar
ánægju að veiða lax, geta komist í
samband við landeigendur beint
og milliliðalaust og skýrt frá því
sem þeir eru ánægðir með og einn-
'g því sem þeim þykir miður fara.
Þetta er ósköp eðlilegt og þarf allt
að taka til vinsamlegrar athugunar
og skoðunar en oft er það svo að
það sem gert er til hagsbóta og
ánægjuauka fyrir viðskiptavininn
skilar sér aftur í auknum verðmæt-
urn fyrir landeigendur. Þegar fé-
lagið tók allan rekstur heim í hér-
að, sölu veiðileyfa og aðra þjón-
ustu við veiðimenn, var ljóst að
það var verið að færa atvinnu inn í
sveitina bæði í formi aukins stjórn-
arstarfs hjá veiðifélaginu, starfs-
fólk í veiðihúsinu, og störf leiðsög-
umanna með erlendu veiðimönn-
unum.
Fremst á myndinni eru héraðsráðunautarnir Jcm Atli Gunnlaugsson á Egilsstöðum,
Sigurður Jarlsson á ísafirði og Jón Sigurðsson á Blönduósi.
Á árinu 1980 greiddi félagið um
22 milljónir gamalla króna í vinnu-
laun til stjórnar og starfsfólks. Þótt
þetta sé kannske ekki stór upphæð
þá hefur greinilega komið í Ijós að
þörf er fyrir atvinnutækifæri í sveit-
inni og hefur sjaldan eða aldrei
verið hægt að verða við öllum at-
vinnuumsóknum. Árið 1980 voru
vergar tekjur félagsins um 150 til
160 milljónir gamalla króna.
Greitt var í arð til félagsmanna
63 500 000 g.krónur eða
6 350 000 g.krónur á stöng. Þegar
bætt er við launagreiðslum til
starfsfólks félagsins 22 milljónum
g.kr., sem má segja að svipi til þess
að greiða út arð inn í sveitina, þá er
útgreiddur arður og vinnulaun
85 500 000 g.kr. eða 8 550 000
g.kr. pr. stöng. Til viðbótar þessu
lagði félagið í kostnað við fram-
kvæmdir, svo sem kaup á hluta-
bréfum í Hólalax h.f., gagngera
breytingu á eldhúsi í húsi félagsins
og greiddar voru niður víxilskuldir
frá þeim tíma sem húsbyggingin
hafði staðið yfir. Landssamband
veiðifélaga tók saman meðaltals-
tölur um brúttótekjur veiðifélaga í
I. flokki fyrir árið 1980. Þessi
brúttótala var um 6 milljónir gam-
alla króna á stöngina. Þetta sýnir
það að Veiðifélag Miðfirðinga
stendur vel að sínum rekstri, getur
greitt út góðan arð, staðið í fram-
kvæmdum og greitt starfsfólki sínu
eðlileg vinnulaun.
FREYR — 75