Alþýðublaðið - 27.12.1923, Side 1

Alþýðublaðið - 27.12.1923, Side 1
:.lss»ac«ama.i«aKn 1923 Fimtudagion 27. dezember. 305. tðiublað. Lelkfélag Keyklavíkur. borgeisaflokksins. Heidelberg verður leikið í kvöld og annað bvöld (3. og 4. í jólum) kl. 8 síðd. í Iðnó. — Aðgöngumiðar verða seldir báða dagana frá kl. 10—1 og eftir kl. 2. í aðalblaði afturhaldsmanna í Noregi, >Tidens Tegn« 14. þ. m., er birt viðtal fiéttaritara biaðsins hér við >e!zta stjórn- málaritstjóra íslands«, hr. Þor- stein Gfslason, ritstjóra >Morg- unblaðsinst, sem þess er getið um, að hann hafi í mörg ár verið >ypparsti< ritstjóri Heimastjórn- armanna. í viðtali þessu er skýrt frá fyiirætlunum burgeisanna ítar- legara og opinskárrá en frá þeim hefir verið sagt hér heima, og ekki þarf að hugsa, að viljandi sé afvegafært fyrir þeim, því að fréttaritarinn er hr. Vilhjálmur Finsen, áður ritstjóri >Morgun- biaðsins«. Af því að, viðtal þetta lýsir vel og sprugilega ófeilni bur- geisanna í sinn hób, þegar is- lenzk álþýða heyrir ekki né sér til þeirra, skulu hér tekin tipp orðrétt í þýðingu ummæli hr. Þorsteins Gíslasonar vlð frétta- ritarann: >Fyrsta beiná afleiðingin af : kosningasigrinum, segir hr. (Þor- steinn) Gíslason, er sú, aðflokk- ur vor myndar nýja stjórn — og stjórnar landinu næstu fjögur ár. Fyrsta verk nýju stjórnarinn- ar er fyrst og fremst (svo!) að bæta úr því tjóni, sem fjármál vor og atvionuvegir hafa orðið fyrir síðustu árin. Vér ætlum að koma á rækilegum sparnaði í ríkisbúskapnum, takmörkun á tjölda embættis- og sýsiunar- manna, gætni um alla meðterð fjár og reyna á hvern hugsan- legan hátt að koma fjármáium landsins í reglu aftur. Deilan í þessari kosntngabar- áttu hefir snúist um hlnar æ há- værari kröfur jafnaðarmanna um ríkisrekstur á framieiðslutækjun- um, lögleiðslu á ríkiseinkasöium og aðrar ráðstafanir, er hafa munu lamandi áhrif á einstak- lings-frumkvæðið, Deilan hefir . líka staðið um málefni, sem mikið er farið að gæta úti um sveit- irnar, þar sem samvinnuhreyfing- in blómgast, og bændablaðið >Tíminn< berst fyrir. Það er að- állega fólgið í því að beita sam- ábyrgðar-hugsuninni út f æsar í fjármálaráðstöfunum samviunu- félaga-sambandsins, iíka f lán- tökumálnm, þar sem allir ábyrgj- ast fyrir einn, einn tyrir alla. Vér teljum, að slíkt ákvæði sé stórkostlega hættulegt. Að lok • um má nefna þatj óiéttlæti, sem löggjöfin hefir sýnt hinni frjáisu(l) kaupmannastétt með því að und- anþiggja samvinnufélögin skatti. Nýi alþingis-meirihlutinn ætlar að afnema Landsverzlunina, sem upprunalega átti að eins að vera eins konar stríðsráðstöfun til tryggingar vöruaðflutningum í stríðinu, en haldið hefir verið áfram tyrir atkvæðastyrk sam- vinnumanna. Flokkurinn ætlar að afnema ríkiseinkasöluna á tóbaksvörum og gefa verziunina iausa. Sömu öriög biða hinuar illræmdu steinolíueinkasölu, sem því miður getur ekki orðið af- numin fyrr en eítir þrjú ár, þeg- ar út rennúr verzlunarsamning- urinn, sem núverandi stjórn gerði við enskt félag um að birgja ísland að steinolíu. Enn fremur mun sjálfsagt fara fram endur- skoðun á lögunum um skattfrelsi neytenda-kaupfélaganna.r >Er nokkur hætta á kíofningi í borgaraflokknum ?« >Það held ég fráleitt. Skoð- anamunurinn milli gömlu heima- stjórnarmannanna og sjáifstæðis manna er gersamlega úr sög- unnl í kosningunum rikti hin fegursta eindrægni milli flokks- brotanna. Það er fjarska mikil þörf á nýjum, sterkum flokki í þinginu. Nú mun hann myndast, og aðal- verkefni þessa flokks verður að halda uppi borgaralegu írelsl í landinu og efla tjárhagslegt sjálfstæði þess.< Svo mörg eru þau orð. Gleð þig, íslenzk alþýða! Spámaður hins >borgaralega< frelsis hefir upp iokið munni sínum og talað. Næstu fjögur ár getur þú kval- ist frjáls af frjálsu atvinnuleysi og frjálsu hungri og orðið féflett af frjálsum borgurum í fijálsri samkeppni eftir nótum hins frjáisa einstaklÍDgs-frumkvæðis. Það er ekki amalegt fram undan. Sjðmennirnir. (Eintaloftskeyti til Alþbl.) S.s. >Leifur heppui« 24. dez. Óskum öllum vinum og vanda- mönnum okkar gleðilegra jóla. Vellíöan. SJdpverjar á >Leifi heppna«,

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.