Freyr - 01.01.1987, Blaðsíða 45
til að greiða sláturafurðir 15. des-
ember sl. í því sambandi var minnt
á deilu sem kom upp milli bank-
anna annars vegar og ríkisstjómar-
innar hins vegar um útreikning og
ákvörðun afurðalána sl. haust.
Þeirri deilu lauk um miðjan desem-
ber sl. með niðurstöðu um að lánin
yrðu 70,2% af óniðurgreiddu
haustgmndvallarverði.
Jafnframt var skýrt frá því að
búið væri að innheimta öll stað-
greiðslulán frá haustinu 1985,
einnig af birgðum gamla kjötsins,
og bankamir vildu fá gamla kjötið
gert upp þannig að afurðalán yrðu
greidd af birgðum þess. Eins og
áður er getið er ekki komin niður-
staða um það mál hjá Fram-
kvæmdanefnd búvörusamninga.
Staðgreiðslulán út á kjöt frá sl.
hausti var ákveðið 510 millj. kr. og
það fé var greitt 15. desember sl.
Kennsla í slátrun búfjár og
kjötiðnaðL
Lagt var fram bréf frá landbúnað-
arráðuneytinu þar sem óskað var
eftir tilnefningu á manni í nefnd til
að koma á kennslu í slátran og
kjötiðnaði. Ákveðið var að tilnefna
Hermann Sigurjónsson í Raftholti í
nefndina.
Þingsályktun um könnun á
búrekstraraðstöðu.
Atvínnumálanefnd sameinaðs Al-
þingis hefur leitað álits á tillögu að
þingsályktun um könnun á bú-
rekstraraðstöðu, en flutningsmaður
hennar er Hjörleifur Guttormsson.
Samþykkt var að mæla með sam-
þykkt tillögunnar.
DMNWDA
KEÐJUR
Smíöum keöjur samdœgurs eftir óskum hvers
og eins. Eigum einnig keöjur á lager.
Sendum hvert á land sem er.
SiyiÓKEÐIU
markaðurinn
Smiðjuvegi 30 E-götu, Kópavogi. Sími 77066