Freyr - 01.07.1987, Blaðsíða 18
FRAMLEIÐNISJOÐUR
Upplýsingar um stuðning
1.
Framleiðnisjóði landbúnaðarins er samkvæmt lögum nr. 46/1985 meðal annars ætlað að
efla búgreinar og atvinnustarfsemi í sveitum.
Eftirfarandi meginreglur gilda um þennan stuðning:
1.
Framlög eru veitt til atvinnureksturs, sem tekinn er upp á lögbýlum eða í nágrenni
þeirra, í stað mjólkur- eða kjötframleiðslu, eða kemur í stað aukningar í þeim
greinum.
2.
a) Þeir skulu að öðru jöfnu sitja fyrir framlögum þessum, sem selja eða leigja
fullvirðisrétt, hafa innan við 400 ærgilda fullvirðisrétt eða eru frumbýlingar.
Heimilt er að veita allt að 75% af hámarksframlagi fyrir hvern viðbótaraðila að
félagsbúi (fyrsti aðili nýtur óskerts framlags).
Einnig er heimilt að takmarka framlög vegna tekna af vinnu utan búsins.
b) Framlögin eru 30% af kostnaði við framkvæmd, þó að hámarki kr. 500 000 miðað við
byggingarvísitölu 293, og breytast eftir henni.
Njóti framkvæmdin opinberra framlaga, skal draga þau frá stofnverði, áður en
hlutdeild sjóðsins er metin.
c) Til að framkvæmd geti notið framlags, þarf að fylgja umsókn áætlun um stofnkostnað
og rekstur, og færa þarf að því rök, að fyrirhuguð framkvæmd veiti þær tekjur sem að
er stefnt.
d) Vegna loðdýraræktar miðast framlögin þó við Iífdýrafjöldi. Þannig geta 75 refalæður
eða 300 minkalæður veitt rétt til hámarksframlags.
II.
Vegna búháttabreytinga á lögbýlum og með hliðsjón af markaðsstöðu kindakjöts, gefst
kostur á að selja/leigja Framleiðnisjóði fullvirðisrétt til kindakjötsframleiðslu verðlagsárið
1988/1989.
Framleiðnisjóður mun almennt ekki kaupa/leigja fullvirðisrétt til mjólkurframleiðslu á
verðlagsárinu 1988/1989.
Ef sérstakar ástæður mæla með, t.d. svæðaskipulag, landfriðun eða landnýting, lélegar
framleiðsluaðstæður, heilsubrestur, aldur o.fl., kemur til greina að kaupa eða leigja fullvirðis-
rétt, án þess að um búháttabreytingu sé að ræða á viðkomandi býli.