Freyr - 01.10.1987, Blaðsíða 42
aðalfundarins og nemur nú sam-
tals hálfri milljón króna.
Framkvæmdir við byggingu
hússins hafa gengið samkvæmt
áætlun og er fyrsta stóra verkefnið
í húsinu sýningin BÚ’87.
Fulltrúi Stéttarsambandsins í
stjórn Reiðhallarinnar er Gunn-
laugur Júlíusson búnaðarhagfræð-
ingur.
1.5. Styrkur til rannsókna á
heymæði.
Rannsóknum þessum er nú að
mestu lokið og verða helstu niður-
stöður kynntar á læknafundi sem
haldinn verður hér á landi í ágúst.
Ætlunin er að gefa út bók þar sem
niðurstöðurnar verða birtar í heild
og til tals hefur komið að þetta
efni verði meðal dagskráratriða á
ráðunautafundi í byrjun næsta árs.
1.6. Ályktun um að minnst
skuli 150 ára afmælis búnaðar-
samtaka.
Ákveðið var að minnast þessara
tímamóta með þátttöku í landbún-
aðarsýningunni BÚ’87 sem haldin
var í Reiðhöllinni 14.—23. ágúst.
Aðrir sem að sýningunni stóðu
voru: Búnaðarfélag Islands,
Framleiðsluráð landbúnaðarins,
Landbúnaðarráðuneytið og Mark-
aðsnefnd landbúnaðarins. For-
maður og framkvæmdastjóri eru
fulltrúar Stéttarsambandsins í sýn-
ingarstjórn.
1.7. Aldar afmæli Bændaskól-
ans á Hvanneyri.
Stjórninni er með ályktuninni fal-
ið að eiga þátt í því að minnast
aldarafmælis skólans árið 1990.
Stjórnin hefur beitt áhrifum sínum
til þess að veitt verði fé til áfram-
haldandi framkvæmda við skóla-
húsið á Hvanneyri. Að öðru leyti
eru umræður um þetta mál
skammt á veg komnar.
1.8. Ályktun þar sem mótmælt
er hugmyndum um að leggja
aðstöðugjald á afurðastöðvar.
Ályktunin var send fjármálaráðu-
neytinu. Ekki hefur orðið af
álagningu slíks gjalds.
1.9. Ályktun um átak í sölumál-
um dilkakjöts.
Unnið hefur verið að þessu máli
eftir ýmsum leiðum, m.a. í Mark-
aðsnefnd, framkvæmdanefnd bú-
vörusamninga og með ótal við-
tölum við ráðamenn og fulltrúa
afurðastöðva.
Framleiðnisjóður veitti kr. 10
milljóna framlag til Markaðs-
nefndar og verður nánar greint frá
störfum hennar í sérstökum kafla.
1.10. Ályktun um að vekja at-
hygli ASÍ á mikilvægi niður-
greiðslna.
í september héldu fulltrúar úr
stjórn Stéttarsambandsins fund
með nokkrum helstu forystu-
mönnum verkalýðshreyfingarinn-
ar. Þar fóru fram hreinskilnar og
gagnlegar umræður um þessi mál.
1.11. Nefnd um tryggingamál
bænda.
Síðasti aðalfundur kaus þá Sigurð
Þórólfsson í Fagradal, Guðmund
Stefánsson í Hraungerði og Jón
Gíslason á Hálsi til þess að kanna
tryggingamál bænda með það í
huga að þau verði landbúnaðinum
hagstæðari. M.a. er nefndinni ætl-
að að athuga framtíðarverkefni
Bjargráðasjóðs, hugsanlegar
breytingar á starfsemi Viðlaga-
sjóðs og möguleika á hagstæðri
svæðabundinni tryggingu á bú-
stofni og uppskeru Hér er um
mjög viðamikið verkefni að ræða
sem Iengi hefur verið til umræðu.
Eitt af því sem knúið hefur á um
aðgerðir er bágur fjárhagur Bjarg-
ráðasjóðs á undanförnum árum.
Hagur sjóðsins er nú mun betri en
áður.
Hópur á vegum landbúnaðar-
ráðuneytisins hefur rætt valkosti í
tryggingamálum landbúnaðarins.
Sá hópur hefur ekki lokið störf-
um. Þessi mál voru til umfjöllunar
á síðasta Búnaðarþingi.
Nefnd Stéttarsambandsins hef-
ur kynnt sér mikinn fjölda gagna
og álitsgerða frá aðilum sem um
þetta efni hafa fjallað á undan-
förnum árum og rætt vfð stjórn
Bjargráðasjóðs og fulltrúa trygg-
ingafélaganna.
Vonast er til að hægt verði að
leggja fyrir aðalfundinn greinar-
gerðir frá tveimur stærstu trygg-
ingafélögunum um valkosti í
tryggingamálum landbúnaðarins.
1.12. Ályktun um uppsafnaðan
söluskatt í landbúnaði.
Samkvæmt athugun Gunnlaugs
Júlíussonar búnaðarhagfræðings
vó uppsafnaður söluskattur 3,6% í
reksturskostnaði búsins í ársbyrj-
un 1981.
Síðan hefur þetta hlutfall lækk-
að vegna þess að söluskattur af
búvélum var felldur niður.
Vegna ráðgerðra breytinga á
söluskattskerfinu á næstu árum
hefur frekari umræða um þetta
mál legið í láginni. Komi til þess
að virðisaukaskattur verði tekinn
upp hér á landi hverfa áhrif upp-
safnaðs söluskatts úr verðlaginu.
1.13. Ályktun mn að Stéttarsam-
bandið leiti eftir samstarfi við
landbúnaðarskólana um aukna
fræðslu um málefni stéttarinnar
og endurmenntun í landbúnaði.
Málið hefur verið rætt við skóla-
stjóra búnaðarskólanna.
Það er skoðun þeirra sem um
þetta hafa fjallað að tengja beri
slíkt átak til endurmenntunar
þeirri búháttabreytingu sem að er
stefnt á gildistíma búvörusamning-
anna.
Þess er vænst að hægt verði að
leggja fyrir aðalfundinn áætlun
bændaskólanna um námskeiða-
hald næstu ár.
í því sambandi vaknar spurning-
in um það hvernig stuðla megi að
almennri þátttöku bænda í slíku
námi.
Eins og er virðist vanta hvatn-
ingu í því efni, og margir bændur,
einkum þeir yngri, eiga erfitt með
að komast að heiman, jafnvel þótt
um fáa daga sé að ræða.
í því sambandi vaknar spurning
um það hvort að einhverju leyti
eigi að gera þá kröfu til þeirra sem
njóta fyrirgreiðslu vegna búhátta-
770 Freyr