Freyr - 01.10.1987, Blaðsíða 63
greiðslur, eða alls 530—540 millj.
króna. Ljóst er að þessar tölur
munu hækka töluvert, því að ekki
tókst að kaupa eða leigja
fullvirðisrétt til kindakjötsfram-
leiðslu nema að hluta. Ætla má að
nú í haust þurfi sjóðurinn að
greiða útflutningsbætur með um
a.m.k. 200 tonnum af kindakjöti
eða 40—50 millj. kr.
Astæður þess að ekki tókst að
ná 800 tonna rétti eru ýmsar, en
þyngst vegur hve seint var ákveðið
að leggja í þessa aðgerð og tími
bænda til ákvarðanatöku því
skammur og einnig hitt að margir
„leiðandi“ menn misskildu og/eða
mistúlkuðu þennan þátt búvöru-
samningsins. Sama á einnig við
um tilboð um fækkunarsamninga
til að auðvelda aðlögun að full-
virðisrétti. Grunnhugsun þess að
kaupa eða leigja fullvirðisrétt er
tvíþætt:
1. að tryggja framleiðendum
mjólkur 3% og framleiðendum
kindakjöts 7% meiri fullvirðis-
rétt en umsamið afurðamagn
gefur tilefni til,
2. að veita þeim sem hætta fram-
leiðslunni tímabundna afkomu-
tryggingu, sem svaraði þriggja
til fjögurra ára nettótekjum af
búrekstrinum.
Meginþorri þeirra bænda sem
hafa hætt hefðbundinni búvöru-
framleiðslu með samningum við
sjóðinn, hafa búið við aðstæður
sem voru í þann mund að knýja þá
til að hætta búskap.
í desember var ákveðið að veita
framleiðendum kjúklinga aðstoð
við útflutning á 200 tonnum af
kjöti á þessu ári, enda lá fyrir
samstaða framleiðenda.
Leitað var eftir aðstoð af hálfu
hluta eggjaframleiðenda, en ekki
var talið fært að veita hana vegna
þess, að samstöðu skorti. Þá var
ákveðið að veita kanínu- og hrossa-
bændum lán og framlög vegna
verksmiðju Fínullar og Reið-
hallarinnar.
Viðfangsefni 1987
Á þessu ári hefur starf sjóðsins
mótast af skuldbindingum fyrra
árs, en þær hafa Ieitt til þess, að
sjóðurinn þarf á lánsfé að halda.
Jafnframt er sýnt, að á árinu 1988
verður staðan fremur þröng. For-
gangsverkefni eru greiðslur skv.
gerðum samningum og framlög til
búháttabreytinga, ásamt stuðningi
við nýbúgreinar á sviði rannsókna
og leiðbeininga.
Af nýjum verkefnum má nefna,
að sjóðurinn hefur lagt fram fé til
innflutnings á loðdýrum, bygging-
ar sóttkvíarbús á Möðruvöllum og
mun í auknum mæli styðja
leiðbeiningar í loðdýrarækt. Þá
má nefna tilboð til héraðsráðu-
nauta um sérstök endurmennt-
unarnámskeið, en vonbrigði eru,
að engir hafa ennþá sótt um þau.
Til umfjöllunar er sérstakur
stuðningur við refabændur, og er
Greiðsluyfirlit og áætlun um fjárþörf til áramóta.
Tckjur 1/1—15/7 Áætlað til 31/12
Framl. skv. 1. nr. 46/85 .. Kr. 268,0 millj.
Kjarnfóðurgjald skv. 1. nr. 46/85 . Kr. 19,1 millj. 40,0 millj.
Aðrartekjur Kr. 0,3 millj. 20,4 millj.
Frestun á greiðslum 100,8 millj.
Lántaka 200,0 millj.
Alls Kr. 287,4 millj. 361,2 millj.
Viðfangsefni. Gr. 1/1—15/7 Áætl. þörf til 31/12
Almenn viðfangsefni .... Kr. 47,5 millj. 32,2 millj.
Búháttabr. framl Kr. 35,8 millj. 341,2 millj.
Markaðsaðg. nautgr.kjöt Alm. mildun verðsk. Kr. 11,4 millj. 62,4 millj.
v./kindakjöts 1986 Kr. 12,4 millj. 40,0 millj.
Leiga/sala/slátr./förg. bæturo.fl. 1986 Kr. 64,9 millj. 13,7 millj.
Samn. vegna búmarks og fullvirðisréttar Kr. 26,0 millj. 33,4 millj.
Lán frá f. ári Kr. 100,8 millj.
Ýmsir liðir Kr. 4,5 millj. 3,0 millj.
Fjárhagsl. endurskl Kr. 0,5 millj. 25,5 millj.
Rekstur Kr. 3,6 millj. 4,0 millj.
Útflb. v./kjöts 87 40,0 millj.
Förgun og slátrun 87 .... 57,0 millj.
Alls Kr. 307,4 millj. 341,2 millj.
Hlutux Framleiðnisjóðs af útflutningsbótafé.
Ár Upphafleg lög, hlutur Framleiðnisjóðs. Eftir breytingu, hlutur Framleiönisjóðs.
1986 2% 150 millj. 2% 150 millj.
1987 3% 270 millj. 3% 270 millj.
1988 4% ca. 360 millj. 4% ca. 360 millj.
1989 4% ca. 360 millj. 4% ca. 360 millj.
1990 5% ca. 450 millj. 4% ca. 360 millj.
1991 4% ca. 360 millj.
1992 4% ca. 360 millj.
Alls kr. 1.590 millj. kr. 2.220 millj.*
*Miðað við núverandi verðlag.
Freyr 791