Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 3

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 3
Atvinnumála- fulltrúi Arnaldur Mar Bjarnason hefur verið ráðinn atvinnumálafulltrúi á vegum Framleiðnisjóðs landbún- aðarins, landbúnaðarráðuneytis og Stéttarsambands bænda. Arnaldur er fæddur árið 1942. Hann lauk landsprófi í Reykjavík árið 1960 og iðnskólaprófi frá Iðn- skóla Akureyrar tveimur árum síð- ar. A áttunda áratugnum settist Arnaldur á skólabekk á nýjan leik og tók Samvinnuskólapróf árið 1980. Arnaldur var framkvæmdastjóri Héraðssambands Suður-Þingeyj- arsýslu 1972 til 1977, erindreki íþróttasambands íslands 1977 til 1980, sveitarstjóri í Mývatnssveit 1980 til 1986 og bæjarstjóri í Vest- mannaeyjum frá 1986 til 1990. Jafnframt rak Arnaldur eigið fyrir- tæki nær óslitið á árunum 1965 til 1980. Af fjölmörgum trúnaðarstörfum sem Arnaldur hefur gegnt má fyrst nefna setu í stjórn Ungmennafé- lags fslands. Pá hefur hann verið formaður Ferðamálafélags Mý- vatnssveitar, setið í stjórn og nefndum Fjórðungssambands Norðlendinga, átt sæti í samstarfs- hópi um ferðamál í Vestmannaeyj- um, nefnd á vegum Menntamála- ráðuneytis um æskulýðsmál og skólanefnd Stóru-Tjarnarskóla. Helstu verkefni atvinnumála- fulltrúans verða: Að vinna að eflingu fjölbreyttrar atvinnu í sveitum, einkum kvenna, sem byggir sem mest d frumkvœði og framtaki heima fyrir. Koma ú úkveðnu skipulagi og yfirsýn yfir múlin ún ofmikillar miðstýringar. Skapa skilyrði fyrir raunhcefa úkvarðanatöku úður en rúðist er í framkvæmdir með því að aðstoða við gerð rekstrarúœtlana og mark- aðsathugana svo að dœmi séu nefnd. Að hjúlpa fólki í sveitum til þess að koma auga ú og hrinda í fram- kvœmd hugmyndum um nýja at- vinnustarfsemi með frœðslu- og kynningarstarfi ú breiðum grund- velli. (Fréttatilkynning frá Uþl.). TRAKTORSKNÚNAR RAFSTÖÐVAR Hagkvæmustu rafstöðvarnar á markaðnum, til í öllum stærðum 6,7 kVA 12,5 kVA 17,0 kVA Rafstöðin tengd með drifskafti við traktorinn. Traustar og vandaðar rafstöðvar. G.Á. Pétursson hf Nútíðinni Faxafeni 14, sími 68 55 80 CAP

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.