Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 7

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 7
4.’91 FREYR 127 RiTSTJÓRNARGREIN------------ Samdráttur f sauðfjárrœkt Um þessar mundir ber efst í íslenskum landbúnaði áfangaskýrslu um framleiðslu sauðfjárafurða sem svokölluð Sjömanna- nefnd landbúnaðarráðuneytis, Stéttar- sambands bænda og aðila vinnumarkaðar- ins sendi frá sér um miðjan febrúar sl. Meginniðurstöður skýrslunnar eru þær að lagt er til að ríkið kaupi og taki úr umferð fullvirðisrétt til framleiðslu sauð- fjárafurða sem nemur um 3700 tonnum, af um 12000 tonna rétti alls fyrir lok gildis- tíma núverandi búvörusamnings hinn 31. ágúst 1992. Par af verði keyptur um 900 tonna réttur eða 70 þúsund ærgildi af virkum rétti á komandi hausti sem er um 13% fækkun núverandi fjárstofns. Eftir verði þá réttur til framleiðslu á um 8.300 tonnum af kindakjöti og verði heimilað að versla með þann rétt milli manna eftir ákveðnum reglum. Um alllangt skeið hefur legið í loftinu að gripið yrði til róttækra aðgerða í sauðfjár- rækt hér á landi. Neysla innanlands á kindakjöti hefur verið að dragast saman og erlendir markaðir hafa boðið sífellt lægra verð. Vegna samtengingar sauðfjárræktar og byggðar í dreifbýli hafa stjórnvöld lagt áherslu á að styðja sauðfjárrækt og tryggja stöðu þeirra sem stunda þá búgrein. Til- boð til fullvirðisréttarhafa um frjálsa sölu á réttinum hafa litlu skilað en hins vegar hefur óhagstæðri framleiðslu verið haldið niðri með leigu á rétti, jafnframt því sem niðurskurður vegna riðuveiki hefur kippt út nokkurri framleiðslu tímabundið. Ljóst er að ástand eins og það sem hér hefur verið lýst hlýtur að vera tímabundið, en að fleiru er að hyggja. Framleiðsla og sala á kjöti og kjötvörum hefur verið í örri þróun á undanförnum árum og horfur á að viðskipti milli landa með kjöt sem og aðrar búvörur verði gerð frjálsari á næstunni. Samdráttur í sölu kindakjöts stafar að miklu leyti af því að verð annarra kjötteg- unda hefur lækkað í hlutfalli við verð á kindakjöti. Af öðrum ástæðum má nefna að aðrar kjöttegundir gefa kosta á ferskri vöru árið um kring og þar hefur vöruþróun og tilboð á skyndiréttum verið meira. Gegn óhagstæðri markaðsstöðu kinda- kjöts leggur Sjömannanefnd til að raun- verð á kindakjöti lækki um a.m.k. 20% á næstu 5-6 árum. Ljóst er að hér er ekki neinn gleðiboð- skapur á ferð. Áætlað er að sá samdráttur sem hér um ræðir samsvari rúmlega 900 ársverkum í greininni en þar af eru um 220 ársverk bundin í virkum rétti um þessar mundir. Slíkur samdráttur hlýtur að leiða til þess að fjöldi byggðra býla leggst í eyði og fólk yfirgefi æfistarf sitt. Samfelldri búsetu jarða í jafnvel þúsund ár lýkur og verður að sögu til skrásetningar fyrir grúskara og fræðimenn. Verðmæti í eigu ábúenda og samfélagsins nýtast ekki eða takmarkað en kosta verður til þeirra í meira eða minna mæli á nýjan leik á öðrum stöðum. Það á jafnt við um íbúðarhúsnæði sem samgöngumannvirki, heilbrigðis- stofnanir, skóla o.fl. Jafnframt er þetta áfall fyrir nærliggjandi þéttbýli sem þjónað hafa dreifbýlinu í verslun og viðskiptum, þjónustu iðnaðarmanna, tómstundaiðju o.s.frv. Því miður eru þeir kostir sem um er að velja í stöðunni núna ekki þeir hvort fram- leiða skuli 12 þúsund tonn af kindakjöti eða ekki og í framhaldi af því hvort byggð- um býlum fækki eða ekki. Kostirnir eru þeir hversu mikið og hversu hratt skulu skera niður rétt til framleiðslu kindakjöts. Vonlegt er að þeir, sem sjá fótunum

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.