Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 9

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 9
4.’91 FREYR 129 íslenskir bœndur bera gott skyn á vélar Viðtal viðÁgústSchram og Magnúslngþórsson, sölumenn í búvéladeild hjá Glóbus hf. Vélakostur íslenskra bœnda ermikill og tilhans eru gerðar miklar kröfur. Nokkur fyrirtœki starfa við innflutning á búvélum og varahlutum í þœr. Mikils er um vert að góður og gagnkvœmur skilningur ríki milli bœnda og búvélainn- flytjenda. Öðru hvoru heyrist um atvik þar sem bœndur hafa orðið fyrir vonbrigðum með viðskipti sín við vélaum- boð. Ágúst Schram. Augljóst er að þar er ekki um viljaverk að ræða, því að sérhvert fyrirtæki á allt undir að eiga ánægða viðskiptavini. Stundum er misskilningur á ferðinni og stund- um gerast slys, illviðráðanleg eða óviðráðanleg. Gamalt máltæki segir: Að skilja er að fyrirgefa. Á sl. ári bárust þessi mál í tal milli blaðamanns Freys og Magnúsar Ingþórssonar, sölumanns hjá Glóbusi hf. Blaða- manni Freys fannst áhugavert að heyra af ýmsum þeim vandamálum sem sölumenn búvéla þurfa að takast á við og það varð að sam- Magnús Ingþórsson. komulagi að blaðið ætti viðtal við þá Glóbusarmenn um þessi inál „þegar um hægðist". Að sjálfsögðu hægðist aldrei um en snemma á þessu ári boðaði fulltrúi Freys komu sína í Glóbus og settist niður með þeim Magnúsi og Ágúst Schram og lagði fyrst fyrir þá eftir- farandi spurningu: Þegarviðskiptavinur kaupir búvél þarf ýmisleg undirbúningsvinna að hafa átt sérstað. Hverjireru helstu þœttir hennar? Magnús: Já, þegar vélakaup eru ákveðin er löngum aðdraganda lokið. Það hafa oft verið gerðar pantanir nokkrum mánuðum áð- ur, eftir að náðst hafa samningar um verð og útbúnað vélanna. Síð- an er farið að framleiða upp í pant- anir, ef vélar eru ekki til á lager, og koma þeim í flutning. Öllu því fylgir mikil pappírsvinna; við kaupin, flutninga, tryggingar, toll- afgreiðslu, verðútreikninga o.s.frv. Nú, á öllum þessum ferli geta gerst slys og óhöpp, þannig að pöntunum getur seinkað. Allt þetta tekur tímann sinn. Áður fóru viðskipti með búvélar einkum fram síðla vetrar og framan af sumri en eftir að virðisaukaskattur var tekinn upp, frá áramótum 1989/’90, hefur það aukist að bændur kaupi dýr tæki rétt fyrir áramótin. Það er því orðið þannig að stór hluti viðskipta með búvélar fer fram annars vegar í júní og hins vegar í desember. Hvernig snýr það við vélainnf lytjendum að fá svona toppa íviðskiptin? Ágúst: Þetta nýja skattafyrir- komulag hefur nú staðið yfir í eitt ár, þ.e. virðisaukaskattstímabilin standafrá 1. jan. - 30. júníog 1. júlí - 31. des. Þetta er slæmt fyrir véla- innflytjendur vegna þess að það kemur svo mikill álagskúfur og þá einkum í júní. Það gildir bæði varð- andi standsetningu á nýjum tækj- um sem og afgreiðslu á varahlut- um. Við þessu getum við lítið gert annað en að búa okkur undir þetta. Magnús: Það má bæta því hér

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.