Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 12
132 FREYR
4.’91
leita lausna á tæknivandamálum
sínum, leita til fyrirtækisins og þá
er þeim kynnt þessi nýjung. Þá
kemur í ljós hvort þessi nýja tækni
höfðar til manna. M.ö.o. þá má
segja að þetta gerist í samráði véla-
innflytjendans og bóndans. Þegar
það hefur leitt til jákvæðrar niður-
stöðu þá fer tækið ef til vill til
prófunar hjá Bútæknideild Rala ef
einhverjar efasemdir eru um gæði
þess.
Hvaða skilaboðum viljiðþið
koma á framfœri við bœndur að
lokum?
Magnús: Mér er þar efst í huga að
ráðleggja bændum að láta ekki
skattauppgjör ráða að öllu leyti
vélakaupum sínum. Vélakaup eru
miklar fjárfestingar og þær á að
undirbúa vel. Menn fá betri þjón-
ustu ef þeir hafa tímann fyrir sér og
hlutirnir ganga þá líka betur fyrir
sig.
Og almennt um varahluti. Huga
tímanlega að pöntun á þeim og
eiga þá hluti sem vitað er að alltaf
þarf á að halda.
Agúst: Þetta er eins og að eiga
sjúkrakassa á heimilinu. Það er
gott að eiga líka „sjúkrakassa" fyr-
ir vélarnar.
M.E.
Sérhverbóndi œttiað eiga tilreiðu algengustu varahluti íbúvélarsínar, svo sem
tinda og hjöruliðskrossa.
Frétt frá „Bœndaferðum"
Bœndaferð til Þýskalands og Austurríkis
Brottför hefur verið ákveðin
14. júní og komið aftur heim 28.
júní. Gist verður 4 nætur í Vín-
arborg, 4 nætur í litlu þorpi
styðst í Þýskalandi sem heitir
Rettenberg og 6 nætur í íbúðar-
hóteli í Bæjaralandi á stað sem
heitir St. Englmar.
Nær alla daga verða farnar
skoðunarferðir. M.a. hefur ver-
ið ákveðið að fara til Búdapest.
Þá verður komið til Salzburg,
Passau, Regensburg, Boden-
mais og fleiri staða.
í Rettenberg verður gist hjá
ferðaþjónustubændum. Á
hverju heimili geta 8 til 10
manns gist í mjög góðum her-
bergjum með baði. Morgun-
verð fá þátttakendur á gisti-
stöðum en kvöldverður verður
sameiginlegur í veitingahúsi í
þorpinu. Rettenberg er í 700 m.
hæð í einu fallegasta héraði
Evrópu í þýsku ölpunum.
Áætlaður kostnaður á mann
miðað við að gistingu í 2ja
manna herbergjum. er kr.
64.500.
Innifalið í þessu verði er: flug,
allar skoðunarferðir, gisting,
morgunverður 8 sinnum og
kvöldverður 4 sinnum.
Hafið samband sem allra fyrst
við Agnar í síma 91-19200 ef
áhugi er fyrir þátttöku.