Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 15

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 15
4.’91 FREYR 135 Mynd 8. Ýmsar milligerðir ífjós voru sýndar. Brynningarskálin og ventillinn er nýjung frá fyrirtœkinu JYDEN. Skálin er úr ryðfríiLstáli og tekur 3,5 lítra. Mynd 9. Nýju geldgyltubásarnir („moor comfort system") frá Fœnö-Lang- kjœr vöktu mikla athygli. Gylturnar eru mjög frjálsar í þessum básum og geta snúið sér við íþeim. Peir taka þó ekki meira pláss í húsi en eldri gerð bása. Mynd 10. Danskur svínagotbás með hefðbundnu sniði. Baulurnar innan á básgrindunum geta sveiflast upp og gefa gyltunni aukið svigrúm þegar hún stendur upp í básnum en hindra að hún geti lagst niður fast við bás- grindina og kramið grísina. Mynd 11. Ýmsir aðilar sýndu tölvu- stýrða kraftfóðurbása og margvíslega tölvutcekni við mjaldr og fóðrun nautgripa. Pað var þó samdóma álit sölumannanna að slík tœkni kœmi einungis til greina í mjög stórum fjósum. „Venjulegir kúabœndur" œttu að velja einfalda tœkni og halda kostnaðinum í skefjum.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.