Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 16

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 16
136 FREYR 4.’91 Ketill A. Hannesson Skattframtal í ár Nauðsynleg gögn: 7. Leiðbeiningar ríkisskattstjóra, sem eiga að fylgja framtalseyðublöðunum. (RSK) 2. Leiðbeiningar við útfyllingu landbúnað- arskýrslu 1991 og greinargerð um að- stöðugjaldsstofn. (RSK) 3. Leiðbeinngar við fyrningarskýrslu á bakhlið hennar. (RSK) 4. Leiðbeiningar um útfyllingu launamiða og launaframtals 1991. (RSK) Inngangur. Landbúnaðarframtal er lítið breytt frá fyrra ári, og sama er að segja um skattframtal. Allar upphæðir færast á framtal án VSK. Nú þarf að fylla út „Samanburðarblað virðisaukaskatts“ (RSK 10.25) sem nánar verður vikið að. Nær allir frádráttarliðir á skattframtali voru felldir burt 1988. Þeir sem eftir standa koma bændum að litlu gagni að undanskildum vaxtabótum til þeirra sem eru að byggja íbúðarhús eða hafa nýlega keypt jörð. Leiðbeiningar ríkisskatt- stjóra með dæmum skýra skattframtal mjög vel og því ástæðulaust að fjalla hér um það. Almennt skal færa inn reiknuð laun sam- kvæmt fyrri áætlun að viðbættri 4-5% hækk- un og síðan kemur fram tap eða hagnaður. Rétt er að benda mönnum á að lesa aðeins þær leiðbeiningar sem tilheyra þeim blöðum, sem verið er að fylla út hverju sinni. Skatthlutfall og fleira vegna tekna 1990. Skatthlutfall 39,72% (Tekjuskattur 32,8%, útsvar frá 3,0% til 7,5% eftir sveitarfélögum) Tekjuskattur félaga 50% Tekjuskattur barna 4% og2% útsvar. (Enginn persónuafsláttur). Persónuafsláttur 257.784 kr. (Ónýttur milli- færist 80% hjá hjónum). Skattleysismörk á tekjur 1990 647.861 kr. Húsnæðissparnarðarreikningur. Viðbótar persónuafsláttur vegna innleggs á slíkan reikn- ing er 1/4 af innleggi: Hámark 90.230 kr., en lágmark 9.023 kr. Inneign á slíkum reikningi er lágmark 36.092 kr. en hámark 360.920. Eignarskattur. Af fyrstu 3.219.000 kr. greiðist enginn skattur. Af næstu 5.798.025 kr. greiðist 1,2%. Af því sem umfram er 9.017.325 kr. greiðist 1,2-1,95%. Það fer eftir tekjum. (Tekjubilið er 920.000 - 1.640.000). Sérstakur eignaskattur, 0,25%, er af eign yfir 4.653.750 kr. ef framteljandi er innan við 67 ára að aldri. Vaxtabætur reiknast þannig: Frá vaxtagjöld- um er dregið h- 6% af tekjum og 6% af nettó eign umfram lágmark. Húsnæðisbætur 58.473 kr. (miðað við grunn 1989). Barnabætur fyrir árið 1991. Með fyrsta barni 27.598 kr. Sú upphæð tvöfaldast ef barnið er yngra en 7 ára. Með öðru barni og fleiri börnum eru barnabætur 41.399 kr. á barn. Staðgreiðsla 1991. Skatthlutfall 39.79% Persónuafsláttur kr. 22.831 á mán. (Skattleysismörk kr. 57.378 á mán.). Nokkur ný eða nýleg atriði. Reikna þarf virðisaukaskatt af heimanotuð- um afurðum og færa á virðisaukaskattskýrslu. Ef útskattur er hærri en innskattur síðasta tímabil ársins færist sú upphæð á landbúnaðar- framtal sem skuld, annars sem viðskiptakrafa.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.