Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 26
146 FREYR
4.'91
fyrir þessum mistökum. Það er gert á fram-
haldsblaði (RSK 10.26) og einnig í B hluta, sjá
mynd. Ef VSK hefur verið vanreiknaður skal
senda greiðslu til sýslumanns en aðrar skýrslur
skal senda skattstjóra.
C. Sundurliðun skattskyldrar veltu eftir tegund sölu
og atvinnugrein.
Á árinu var heyhleðsluvagn seldur á 500.000
kr. og sú upphæð færist sem sala á fastafjár-
munum. Afurðir til heimilis nema 30.000 kr.
samkvæmt skattmati. Innlagðar afurðir eru
4.156.103 kr. Þessi sundurliðun gefur til kynna
hvort veltan er vegna sölu afurða eða véla.
D. Sundurliðun annarrar veltu.
Undanþegin velta.
í þessa línu færist útflutningur af t.d. loðdýr-
um, hrossum og fiski, þ.e.a.s. búrekstri sem
fær endurgreiddan innskatt af aðföngum. All-
ur innskattur af loðdýrafóðri er endurgreiddur
svo að dæmi sé tekið. Allur innskattur af
fjárfestingum í fiskeldi er nú endurgreiddur
samkvæmt VSK skýrslu.
Undanþegin starfsemi.
í þessa línu færast allar tekjur af búrekstri
eða öðrum umsvifum sem fellur utan við VSK
kerfið. Innskattur af aðföngum er ekki endur-
greiddur né færður til frádráttar útskatti.
Nefna má veiðileigu, skólaakstur og ferða-
þjónustu, önnur en fæðissala.
E. Sundurliðun innskatts.
Með þessari skýrslu er verið að aðgreina
innskatt vegna fjárfestinga frá öðrum inn-
skatti. Innskattur vegna kaupa á vélum færist
undir liðinn kaup á fastafjármunum. í þessu
dæmi eru vélakaup fyrir 500.000 kr. Innskattur
nam 147.000 kr. Allur annar innskattur er
vegna búrekstrar. Byggingaframkvæmdir voru
engar á þessu ári en innskattur vegna viðhalds
útihúsa nam 12.600 kr.
Þannig er innskatturinn sundurliðaður í þrjá
hluta. í þessu dæmi er ekkert fært undir liðinn:
Kaup á vöru og þjónustu til endursölu, enda
stunda bændur sjaldan umboðssölu heldur eru
þeir fyrst og fremst framleiðendur.
Samanlagður innskattur er í þessu dæmi
489.2238 kr. og á að vera sama upphæð og
kemur í B lið, sjá mynd. Sjá ennfremur leið-
beiningar aftan á þessu eyðublaði.
Salaá bújörðum.
Undanfarin ár hafa margir þurft að greiða
mikla skatta af söluhagnaði vegna jarðasölu.
Undantekningarlítið reiknast bændum sölu-
hagnaður af sölu jarða. Skattlagning slíks sölu-
hagnaðar getur orðið stór biti að kyngja.
☆ Öll lán skulu vera með hæstu leyfilega
vexti eða að fullu verðtryggð.
☆ Áríðandi er að reikna fulla vexti á allar
greiðslur, sem nefndar eru útborgun,
nema þá upphæð sem greidd er við undir-
skrift kaupsamnings.
☆ Verðtrygging á lánum er miklu eðlilegri
viðskiptamáti heldur en t.d. 20% vextir.
☆ Kynnið ykkur reglur um söluhagnað af
jarðarsölu áður en skrifað er undir kaup-
samning.
Þessar leiðbeiningar eru engan veginn tæm-
andi, en ég vona að þær komi aðgagni. Eg vil
ráðleggja bændum að loka framtali sínu,
þ.e.a.s. að reikna sér laun. Að öðrum kosti eru
reiknuð lámarkslaun og hagnaður. Lesið að-
eins þær leiðbeiningar, sem fjalla um þann þátt
sem verið er að vinna í í hvert sinn, en ekki að
lesa allar leiðbeiningar í einu.
Að lokum má benda á að sækja má um
lækkun á skatti vegna menntunarkostnaðar
barns eldra en 16 ára. Aðalreglna er sú að
ívilnun er veitt ef tekjur barns eru undir
360.000 kr. á árinu 1990.
Áríðandi er að fá staðfestingu skóla á námi.
Læt þetta nægja.