Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 31

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 31
4.’91 FREYR 151 2. mynd. Fosfórinnihald í heyi úr tilraunum Búnaðarfélags íslands með fosfóráburð gerðar 1956-1959 (tölurfrá 1959) og úr tilraunum Tilraunastöðv- anna með fosfór. 3. mynd. Hlutfallsleg nýting á fosfóráburði við mismunandi áborið magn. Aðeins er gert ráð fyrir að sá fosfór nýtist sem gefur uppskeruauka. reynt út frá þeim niðurstöðum að meta hve mikið væri nauðsyn að bera á af þessu efni. Á 1. mynd eru sýndar niðurstöður tilrauna með vaxandi fosfóráburð. Eru þetta bæði niðurstöður tilrauna sem Búnaðarfélag íslands lét gera á sjötta áratugnum og frá tilraunum gerðum af tilraunastöðvunum. Eins og myndin sýnir er verulegur uppskeruauki fyrir fyrstu 10 kg af fosfór. Þegar meira er borið á minnkar uppskeruaukinn og er orðinn svo sem ekki neinn þegar náð er 20 kg. Ef horft er til þeirrar uppskeru sem fæst af túnum (50-60 hkg heys á hektara, sjá 1. mynd) og fosfórmagn heysins skoðað (sjá 2. mynd) sést með einföldum reikn- ingi að með uppskeru hverfur að jafnaði 12-18 kg af fosfór á hektara á ári. Sést af þessu að áburðargjöf af fosfór umfram það sem jurtirnar fjarlægja gefur ekki uppskeruauka - kannski varla þess að vænta. Á 2. mynd er sýnt hvernig fos- fórmagn í heyi breytist með vax- andi ábornum fosfór. Sést af myndinni að fosfórinnihald heys- ins vex mest við minnstu skammta af fosfór og það eykst enn, þó í minna mæli sé, allt að stærstu skömmtum. Þar sem borinn er á viðhaldsfosfór (15 kg P/ha) er fosfór í töðunni samkvæmt þessum tilraunaniðurstöðum sem næst 0,27%. Hvort það er nægilegt til fóðrunar fer eftir því hvaða búfé á að fóðra með heyinu og hver fosfór er í öðru fóðri sem skepnan fær. Nauðsynlegt er fyrir hvern þann sem fóðrar með heyi að þekkja efnainnihald þess og haga fóðrun í samræmi við það. Á 3. mynd er sýnd nýting á áburðarfosfór til sprettu. Við út- reikning á línuriti í 3. mynd er aðeins gert ráð fyrir að til nytja komi sá fosfór sem gefur upp- skeruauka (ca. 15 kg P/ha). Áf þessum tölum er ljóst að nýting á fosfór, eins og hann hefur verið borinn á undarfarið, er frá 40-80% sem sýnir að alltof mikið af því fé sem greitt er fyrir fosfóráburð skil- ar ekki arði. Hugmyndirum fosfóráburðarnotkun - lokaorð Á tún í þokkalegri rækt - u.þ.b. öll tún á íslandi eldri en fimm ára - á ekki aðbera meira á af fosfór en það sem uppskeran fjarlægir, en það er í grasrækt sem næst 15 kg P/ Frh. á bls. 153.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.