Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 32

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 32
152 FREYR 4.'91 Ferns konar stjórnendur Eftirfarandi grein birtist í sœnska búnaðarblaðinu Lantmannen, nr. 1 -2/1991. Á bújörð, þar sem unnt er að framleiða að vild á föstu verði er hagstœtt að bóndinn temji sér stjórnunaraðferðir „ráðs- manns“, („förvaltare"). Stjórnunin er íþvífólgin að náð er árangri með því að gera betur og vera afkastameiri við það sem maður fœst þegar við og þekkir vel til. Þar ber hvað etst að draga úr kostnaði. í fyrirtæki sem þarf að laga sig að markaðnum, þ.e. því hvað við- skiptavinurinn biður um og mark- aðurinn er reiðubúinn að greiða fyrir þjónustuna, er stjórnunarað- ferð „uppbyggjandans,“ „entre- penören", árangursríkari. Upp- byggjandinn er maður sem leggur gjarnan út í breytngar og finnur upp nýjar vörur eða þjónustu til að selja og byggir upp þá starfsemi. A Búnaðarháskólanum á Ult- una var gerð könnun á síðasta ára- tug á ýmsum stjórnunaraðferðum og hversu árangursríkar þær væru. (Företagsledning och framgáng, en studie av lantbruksföretag. Rapport nr. 264). í niðurstöðum skýrslunnar skiptu höfundarnir stjórnunaraðferðum í fjóra flokka: 1. Varkári stjórnandinn. Hann lítur á starf sitt sem lífsform og hættir sér ekki út á svið sem hann ræður ekki við, heldur kýs öryggi fremur en óöryggi. Þess vegna rekur hann bú með góða eiginfjárstöðu. Varkára stjórnand- anum vegnar oft vel, (a.m.k. í bú- greinum sem lúta stjórn). Hann er hinn dæmigerði „ráðsmaður“ og bætir árangur sinn með því að draga úr útgjöldum. 2.Stjórnandi ívörn. Hann setur sig gjarnan í varnar- stöðu þegar taka þarf mikilvægar ákvarðanir. Nauðsynlegar endur- nýjanir dragast á langinn, þannig að það hallar jafnt og þétt undan fæti fyrir rekstrinum. 3. Uppbyggjandinn. Hann á sér hugsjónir um framtíð- ina og vill helst breyta til. Hann hefur vakandi auga fyrir viðskipt- um sem skila hagnaði og getur gripið tækifæri. Rekstur hans er viðbúinn slíkum viðskiptum og er skipulagður með tilliti til þess. Uppbyggjandinn hefur oft kom- ið sér upp samböndum við menn sem hann getur ráðfært sig við og sótt hugmyndir til. Uppbyggjandinn er markviss og raunsær og oft mjög árangursríkur. 4. Spilamaðurinn. Hann er bjartsýnismaður og órag- ur að taka áhættu án þess að tryggja sig fyrir skakkaföllum. Hann aflar sér upplýsinga skipu- lagslaust, tekur skyndiákvarðanir og hefur trú á sjálfum sér sem stjórnanda. Oft leiða ákvarðanir hans út í ófæru og fjárhagsvand- ræði. Flestir eru samsettir stjórnendur. Að sjálfsögðu eru flestir stjórnend- ur blanda af þessum ólíku gerðum stjórnenda. Hins vegar getur hver og einn notað þessa skiptingu til að meta hvar hann sjálfur á heima og brugðist við í samræmi við það. Setjið upp lista yfir það sem þið eruð góðir í. Par á að telja upp margt fleira en stjórnunaraðferðir. Ertu t.d. góður vélamaður, ertu hagsýnn, ertu góður að fást við búfé, ertu ræktunarmaður, ertu Varkári stjórnandinn 'r- Framfarir Stjórnandi í vörn Uppbyggjandinn

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.