Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 33

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 33
4.'91 FREYR 153 smiður, kanntu að umgangast fólk (viðskiptavini)? Þorirðu líka að telja upp það sem þér lætur ekki? Reyndu. Þú hefur gott af að hafa það á hreinu þegar þú skipuleggur framtíðina. Þú ert kannski ekki fjármálamað- ur, ósýnt um bókhald, lítill véla- maður og ert ekki félagslyndur. Gerðu samsvarandi lista yfir reksturinn. Hverjar eru sterku og veiku hliðar hans? Býrð þú við góð ræktunarskil- yrði, bæði jarðveg og veðurfar, er vélakostur og byggingar í lagi, og samstarfsmenn góðir? Skrifaðu einnig niður hið nei- kvæða. Er landið illa framræst, skortir úrkomu, byggingar og vélar lélegar? Þessar upplýsingar gagnast þér þegar þú stendur andspænis breyt- ingum og þarft að gera nýjar áætl- anir. Fosfórþörf íslenskra túna. Frh. afbls. 151. ha. Á gamalræktuð tún sem lengi hafa fengið búfjáráburð mætti þessi áburður jafnvel vera minni, a.m.k. um stundarsakir. Á nýrækt- ir, tún með óvenju mikla sprettu og mold með sannanlega mjög lágt fosfórinnihald ætti að bera á meiri fosfór. Eins oft og skynsamlegt er ættu bændur að láta athuga fos- fórástand túna sinna og grasa. í búskap á þessum dögum þegar kreppt er að framleiðslu, verði á vörum bænda haldið niðri og fjármagn er dýrt, verður meir en fyrr að sýna hagsýni í búskap. Einn liður í þeirri viðleitni er að fara skynsamlega með áburð og bera ekki meira á en einhver svörun fæst fyrir. HEIMILDIR Fræðslurit Búnaðarfélags fslands 1961, nr. 37. Skýrslur Tilraunastöðvanna. :©\/ ^gúmmímottur eru nauð- synlegar í bósa hjó hestum og kúm, því að þœr eru mjúkar, stamar, einangrandi og auð- veldar í þrifum. Drdttarvélahjólbarðar - hey- vinnuvélahjólbarðar - vöru- bílahjólbarðar - fólksbílahjól- barðar. Hjó ®V fóst hjólbarðar undir allar gerðir ökutœkja. Gúmmfvinnslan hf. Réttarhvammi 1, Akureyri, S. 96-26776 Fjárhúsaristarog svínastíuristar GUNNLAUGUR J. BRIEM Hverfisgötu 4, Pósthólf 1142, 121 Reykjavík. Sími 91-11504. Viðmiðunarverðá reiðhestum árið 1991 Kr. 1. Ótamin og einhæfhross.......... 80.000 2. Töltgeng hross.... 100.000 3. Góðirtöltarar..... 150.000 4. Gæðingar........... 200.000 Jóhannes Sigvaldason er rádunautur hjá Rœktunarfélagi Norðurlands. Erindi þetta varflutt á Ráðunautafundi 1991. Stjórn Félags hrossabænda hefur samþykkt eftirfarandi viðmiðunar- verð á reiðhestum árið 1991: Framangreindar upphæðir er til- laga til markaðsnefndar Félags hrossabænda.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.