Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 37

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 37
Ostasýning í Herning í Danmörku: íslenskir ostar hlutu frábœra dóma íslensk mjólkurbú tóku þátt í osta- sýningu sem haldin var í Herning á Jótlandi í október sl. Ostarnir frá íslandi reyndust frábærlega vel í dómum á sýningunni og fengu 23 viðurkenningar, 12 gullverðiaun og 11 silfurverðlaun. Alls voru dæmd um 900 osta- sýni; af þeim voru 64 frá íslandi. Reyndir dómarar dæmdu ostana og gáfu einkunn fyrir útlit, lit, byggingu, þéttleika, lykt og bragð ogloksaðaleinkunn. Gullverðlaun hrepptu þeir ostar sem hlutu ein- kunnina 12 og þar yfir, en silfur- verðlaun fengu ostar með 11,5 í einkunn og þar yfir. Þessi árangur íslenskra ostameistara: 12 gull og 11 silfur er frábær og hinn besti sem íslensk ostagerð hefur náð að því er „Mjólkurfréttir" herma. Islenskir verdlaunahafar fyrir osta. F.v. Oddgeir Sigurðsson, Mjólkursamlagi KEA, Helgi Ragnarsson, mætti f. h. Hauks Pálssonar, Ms. Kaupfélags Skagfirðinga, Hermann Jóhannsson, Ms. K.P., Björgvin Guðmundsson, Osta- og smjörsölunni, Elísabet Svansdóttir, Ms. Búðardal og Gestur Trausta- son M.B. Frá ostasýningunni í Herning. lslenskir ostar fengu þar 23 viðurkenningar. Á myndinni t.v. eru Ólafur Arnar Kristjánsson, mjólkurfrœðingur og Henning Clausen, framkvœmdastjóri sýningarinnar.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.