Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 38

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 38
Nautastöö Búnaðarfélags íslands á Hvanneyri. ííilllj Heimaaflað köfnunarefni Diðrik Jóhannsson Framleiðsla fljótandi köfnunarefnis hafin á Nautastöð Búnaðarfélags íslands ínóvember sl. hófst framleiðsla á fljótandi köfnunarefni á Nautastöð Búnaðarfélags íslands á Hvanneyri. Af þessu tilefni bað ritstjóri Freys framkvœmdastjóra Nautastöðvar- innar að gera lesendum blaðsins nokkra grein fyrir þeirri breytingu, sem felst í eigin framleiðslu köfnunarefnis. Notkun fljótandi köfnunarefnis er forsenda fyrir frystingu og geymslu á djúpfrystu sæði. I byrjun starfsemi sinnar, árið 1969, keypti Nautastöðin fljótandi köfnunar- efni hjá Áburðarverksmiðju ríkis- ins í Gufunesi en nú nokkur mörg síðustu árin hjá ísaga hf. Fyrirtæk- in gátu nær undantekningarlaust afgreitt nauðsynlegt magn, sem Nautastöðin þurfti á að halda. Að- staða til afgreiðslu var góð í Gufu- nesi og framan af hjá ísaga, en versnaði síðustu árin. Árið 1989 barst á borð Nauta- stöðvarinnar tilboð frá verksmiðju í Bretlandi um vélasamstæðu, sem framleiðir fljótandi köfnunarefni. Eftir könnun á fjármögnunar- Diðrik Jóhannsson. möguleikum tók Innkaupastofnun ríkisins að sér að panta samstæð- una og semja unt lánafyrirgreiðslu við seljendur, en innlent lán fékkst fyrir einum þriðja hluta verðsins. í októberlok kom sérfræðingur frá bresku verksmiðjunni til að ganga frá uppsetningu samstæðun- ar í húsnæði Nautastöðvarinnar, þar sem nægilegt rúm er fyrir hana, en undir hana þarf aðeins um 10 fermetra gólfflöt. Einangra þurfti húsnæðið að hluta og leiða að Nautastöðinni 380 V 3 fasa raf- magn. Hinn 2. nóvember fór vélin að framleiða þann kalda vökva (-196°C) og dæla í tank, sem geym- ir allt að 500 lítrum. Orkuþörf vél- arinnar er um 17 KW. Aðalhlutar hennar eru loftþjappa, skilja, þar sem leifar vatns og olíu eru hreins- uð frá, og þéttir, þar sem köfnun- arefnið skilst frá súrefni. Rekstur vélarinnar hefur hingað til gengið snurðulaust. Hún er gef- in upp fyrir að framleiða 5 ltr. á

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.