Freyr

Árgangur

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 39

Freyr - 15.02.1991, Blaðsíða 39
Vélakostur við köfnunarefnisframleiðslu hjá Nautastöð BÍ á Hvanneyri. Lengst til vinstri er loftþjappa, í miðju er tankur og til hœgri er þéttirinn, en skiljan er þar bak við. Freysmynd. klukkustund en framleiðir nærri 6 ltr. Þörf Nautastöðvarinnar fyrir köfnunarefni eru um 400 ltr. á viku til viðhalds á 8 geymslutönkum stöðvarinnar og 44 brúsum frjó- tækna á landinu. Á Nautastöðinni er líka staðsettur geymslutankur með djúpfrystum laxasviljum og til viðhalds á þeim þarf um 100 ltr. á mánuði. Þessi breyting á öflun köfnunar- efnis hefur í för með sér að sendi- bifreið Nautastöðvarinnar þarf nú aðeins að fara til Reykjavíkur aðra hverja viku í stað hverrar hingað til. Þar dreifir hún köfnunarefninu og djúpfrystu sæði, ef það hefur verið pantað, á afgreiðslur flugs og vörubifreiða. Sparnaður við fækk- un á ferðum til Reykjavíkur stend- ur að mestu undir rekstrarkostnaði vélarinnar. í upphafi starfseminn- ar árið 1969 þurftu brúsarnir hjá frjótæknum áfyllingu þriðju hverja viku en bestu brúsarnir nú eyða um 1 ltr. á viku í stað 5 ltr. áður og geyma allt að 20 vikum milli áfyll- inga. Með því að nota svipað fjármagn til afskriftar á vélinni næstu 4 til 5 árin og nam köfnunarefniskaupum síðastliðin ár, ætti að vera unnt að lækka rekstrarkostnað Nauta- stöðvarinnar um 10 til 15% eftir það. Ég vona að heimaframleiðsla köfnunarefnis verði Nautastöðinni til hagræðis og hagsbóta. Diðrik Jóhannsson er framkvœmdastjóri Nautastöðvar Búnaðarfétags íslands á Hvanneyri. Aðalfundur Félags ferðaþjónustubœnda Félag Ferðaþjónustubœnda hélt aðal- fund sinn ínóvember sl. Myndin er af stjórnarborðinu. Talið frá vinstri: Ingibjörg Bergþórsdóttir, Fljótstungu; Valgeir Porvaldsson, Vatni; Ingi Tryggvason, Narfastöð- um, nýkjörinn formaður félagsins; Ágúst Sigurðsson, Geitaskarði; Paul Richardson, fráfarandi formaður, Eystra-Skaganesi og Jón Kr. Jónsson, fundarstjóri frá Árbœ á Mýrum. - Freysmynd.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.