Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 8
368 FREYR
9.’91
Graskögglaverksmiðjur
fá
10 milljóna framlag
Ríkisstjórnin samþykkti í aprílbyrjun að veita
Graskögglaverksmiðjum 10 milljón króna framlag
vegna þess hve þeim hefur gengið illa að selja
framleiðslu frá í fyrra. Sala á graskögglum hefur
minnkað eftir að fóðurbætisgjald var lækkað um
helming. Fjórar graskögglaverksmiðjur eru nú í
landinu og verður framlaginu deilt á milli þeirra.
Afkastageta mjólkurbúa
umfram þarfir
Með því að fækka mjólkurbúm á landinu um allt að
fimm ætti að vera hægt að spara allt að 220 milljón
króna á ári eða um 6% af vinnslu- og flutnings-
kostnaði mjólkur. Þetta er álit nefndar sem hefur
starfað á vegum landbúnaðarráðuneytisins að því
að gera tillögur um að hagræða og breyta skipulagi
í mjólkuriðnaði. Nefndin telur líka að enn frekar
megi spara í greininni með meiri hagsýni og verka-
skiptingu, t.d. með því að mjólkurbúin sameinist í
eitt félag.
Af fiskeldi
í byrjun árs 1990 voru skráðar 105 eldisstöðvar hér
á landi, þar af voru 54 með seiðaeldi, 24 með
strand- eða landeldi, 28 með kvía- eða fareldi og 23
með hafbeit. Um 15 stöðvar urðu gjaldþrota á
árinu eða hættu rekstri. Óskar ísfeld fiskeldisráðu-
nautur B.í. fjallaði í skýrslu til Búnaðarþings 1991
meðal annars um athuganir sem farið hafa fram á
þeim möguleika að auka bleikjueldi, eins og mikill
áhugi virðist á. Hann hvetur menn til að fara sér
hægt í því en segir að nokkrir hafi byrjað slíkt eldi,
jafnvel gegn ráðleggingum ráðunauta. Að sínu
mati eigi menn að hinkra við og sjá hver árangur
verði af því eldi sem er þegar byrjað. Megináherslu
eigi að leggja á að finna góðan eldisstofn og
kynbæta hann, bæta eldisaðferðir og síðast en ekki
síst að vinna meira að markaðs- og sölumálum.
Norrœnir ungbœndur
þinguðu á Laugarvatni
Offramleiðsla og umhverfismál voru til umfjöllun-
ar á norrænu ungbændaþingi sem haldið var í
íþróttamiðstöðinni á Laugarvatni í mars í vetur.
Til þingsins komu fulltrúar ungliða bændastéttar-
innar á hinum Norðurlöndunum, fulltrúar 4H-
hópa og fulltrúar ungmennafélaga. Tveir ungir
íslendingar úr bændastétt, þau Hafdís Sturlaugs-
dóttir, Húsavík á Ströndum og Atli Vigfússon á
Laxamýri í Aðaldal sátu þingið á vegum UMFÍ.
Nokkrir fyrirlestrar voru fluttir á þingunu um
málefni landbúnaðar og um náttúruvernd. Bjarni
Guðmundsson, Magnús Óskarsson og Aðalsteinn
Geirsson frá Bændaskólanum á Hvanneyri, Auður
Sveinsdóttir frá Landvernd og Helga Guðrún
Jónasdóttir fluttu þarna erindi.
Evrópusamtök œtla að
funda í Ölfusi
Forvígismenn Evrópusamtaka um ferðaþjónustu á
bændabýlum ætla að koma saman til ráðstefnu á
íslandi í byrjun september nk.
í þessum samtökum eru bæði aðilar sem eru í EB
og aðrir sem standa utan þess þ.á.m. Félag ferða-
þjónustubænda hér á landi.
Island er enn sem komið er hið eina Norðurland-
anna sem er í þessum samtökum en þreifingar eru
um það að Finnar, Norðmenn og Svíar komi í þau,
að því er Paul Richardson skýrði Frey frá. Sagði
hann að hugmyndin væri að funda í hlöðunni á
Efstalandi í Ölfusi, en þar hefur hlöðu og fjósi
verið breytt í funda- og veitingastofur.