Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 14

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 14
374 FREYR 9.’91 Ull og band Hinn 18. apríl sl. fór fram formleg opnun á fyrirtœkinu Ull og bandi á Hvammstanga, sem er ullarvinnsla er tekur ámóti úrvalsull, þvœr hana og framleiðir úr henni kembur, lopa og band til handiðnaðar, aukþess sem hún hefur á boðstólum þvegna ull. Fyrirtækið Ull og band er komið á laggirnar fyrir tilstuðlan Átaks- verkefnis Vestur-Húnvetninga. Aðdragandi þess var sá að hjá Átaksverkefninu tók til starfa verkefnishópur bænda haustið 1989. Var þá safnað úrvals ull, hvítri og mislitri, og var ullin þveg- in hjá Saumastofunni Drífu hf. á Hvammstanga. Nokkurt magn var selt til Kanada og einnig var seld ull innanlands. Haustið 1990 fór af stað mun markvissari söfnun á ull, einkum lambsull. Stofnaður var samstarfshópur um þróunarverk- efni í ullarvinnslu og tóku þátt í því, auk sauðfjárbænda, Búnaðar- samband V.-Hún., Kaupfélag V,- Hún., Ferskar afurðir hf. og Drífa hf., en verkefnið er rekið undir nafni þess síðasttalda. Útveguð var vélasamstæða sem Álafoss hf. og Rannsóknaráð ríkis- ins áttu og hugmyndin útfærð. Náðust samningar um að Fram- kvæmdasjóður Islands keypti hlut Álafoss hf. og vélarnar síðan lán- aðar án endurgjalds til verkefnisins í tvö ár. Nokkur leiga verður þó greidd. ef verkefnið skilar hagn- aði. Framkvœmdir í byrjun febrúar 1991 var búnaður- inn fluttur norður. Kaupfélag V.- Hún. hafði lánað hentugt húsnæði án endurgjalds til tveggja ára og hafist var handa við uppsetningu. Komu 3-4 menn frá Álafossi til þess starfa undir umsjón Guðjóns Hjartarsonar. Guðjón lagði til stöðvarinnar þvottavél og vindu- þurrkara og settur var upp þurrk- kassi. Helgi S. Ólafsson rafvirki á Hvammstanga lagði rafmagn og útbjó fullkominn stýribúnað á þvottavélina, sem þannig er alsjálf- virk. Ýmsir iðnaðarmenn unnu nauðsynlegar eru til starfseminn- einnig við uppsetningu og frágang. ar. Pá fékk stöðin frá Álafossi hf. Framleiðsla og markaður gamla spunavél og hesputré, sem Hjá Ull og bandi verður framleidd Helgi S. Ólafsson rafvirki útbjó fullkominn stýribúnað á þvottavélina. (Freys- myndir). Bandið er á boðstólum einspunnið, tvinnað og þrinnað.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.