Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 17
9.’91
FREYR 377
Ný upplýsingamiðstöð
um atvinnumál
Jón Erlendsson
- Upplýsingaþjónusta Háskólans stofnar þjónustu um atvinnumál og
sköpun atvinnutœkifœra fyrir innlenda aðila
Upplýsingaþjónusta Háskólans (UH) hefur um tveggja til þriggja ára skeið unnið að
viðamiklu verketni varðandi upplýsingaöflun um hvers kyns nýja kosti í atvinnulífi og
atvinnumál almennt. „ ,. .
atvinnumál og viðskipti sem nytt er
til að aðstoða við ritaöflunina.
Að auki veitir UH upplýsinga-
þjónustu vegna einstakra sér-
hæfðra verkefna sem vinna þarf á
einstaklingsgrundvelli. Slíkt þarf
þegar menn vinna að því að skoða
sérstök tækifæri ,t.d. nýjan rekstur
eða framleiðslu af einhverju tagi.
Meginreglan með því skipulagi
eða þjónustu sem hér er lýst er
„ódýr aðstoð til sjálfsbjargar“.
Þetta kemur að verulegu leyti í
stað t.d. dýrrar sérfræðiaðstoðar
þar sem neytandinn er óvirkur og
fávís.
Byggð hafa verið upp sambönd við
mörg hundruð erlenda aðila er
vinna að eflingu atvinnulífs með
ýmsum hætti og aflað frá þeim
hvers kyns gagna. Unnið er að því
að byggja upp gagnasafn um ein-
stök atvinnutækifæri. í þessu sam-
bandi hefur megináherslan verið á
því að skrá tilboð erlendra aðila
um sk. „sérleyfi” (e. franchises)
(sjá útskýringu i ramma).
Atvinnuþróun og fjölgun at-
vinnutækifæra verður yfirleitt ekki
til á grundvelli sérstakra „pakka-
lausna" nema i fáum tilvikum.
Ekki er mikið um það að sér-
stakir „pakkar" séu í boði hvað
varðar atvinnutækifæri ef undan
eru skilin þau fyrirtæki sem eru til
sölu. Oftast skapa menn atvinnu
með langvarandi og oft hægfara
þróun einhverra hugmynda eða
markaða. Pakkalausnir eru því
ekki það sem skapar atvinnu í
slíkum tilvikum heldur nýsköpun
og þróun sem gengur skref af
skrefi.
Undantekning frá þessu er það
fyrirkomulag sem hér er lýst, þ.e.
sérleyfin.
Hluti af starfsemi upplýsinga-
miðstöðvar UH er sérstakt
„sjálfsnám um atvinnumál og tæki-
færasköpun“ sem unnið er að því
að skipuleggja. I þessu felst að
skipulagðir eru litlir sjálfsnáms-
hópar/leshringir manna sem vilja
Jón Erlendsson.
verja frítíma sínum í að efla þekk-
ingarlegan og upplýsingalegan
grunn lífsbjargar sinnar með lestri
og skoðanaskiptunm um atvinnu-
mál, viðskipti o.fl.
Hugmyndin er m.a. sú að hver
þátttakandi vinni að því að kanna
eitt eða fleiri tækifæri fyrir sjálfan
sig. Þessu heldur hann fyrir sig ef
það á við (t.d. af samkeppnisá-
stæðum). Ella nýtir hann samvist-
irnar við aðra í hópnum til að ræða
hugmynd (-ir) sína.
UH mun annast sérstaka pönt-
unar- og bókaþjónustu fyrir þátt-
takendur. í þessu felst að UH
byggir upp gagnasafn og pöntunar-
kerfi fyrir innlend og erlend rit um
Alþýðumenntun á háu stigi.
Enginn vafi er á að sá sterki grunn-
ur alþýðumenningar og alþýðu-
menntunar sem finna má í sveitum
er öflug stoð í sjálfsmenntaátaki af
þessu tagi. Þessu hefur undirritað-
ur fundið fyrir við vinnslu fjöl-
margra verkefna fyrir landsbyggð-
arfólk á undanförnum tólf árum.
Margir bændur hafa náð langt þótt
aðstæður til öflunar upplýsinga
hafi verið vægast sagt frumstæðar.
Árangur sinn hafa þeir byggt á
miklum vilja og atorku við að afla
sér þekkingar. En frumstæðar að-
stæður og þekkingarskortur á
möguleikum valda því að útsýni
manna er lítið og þekkingaröflunin
verður óheyrilega seinvirk. Vilji
manna og geta til sjálfsnáms nýtist
því langtum verr en skyldi.