Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 20

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 20
•TTt>T “ frettapunktar V—X JL -Æ_J '91 • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • UÞL • SKR IÐURAÐ FJARVÍN KO n: 'MAST Á 9 ./\.ðminnsta kosti fjórarfjarvinnustofurerustarfandi á landsbyggðinni og fleiri eru í undirbúningi. Athugun á vegum Byggðastofnunar bendir til þess að ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu geti veitt verkefnum til I jarvinnustofa sem jafngilda 19 ársverkum. Könnunin var gerð í framhaldi af samþykkt ríkisstjómarinnnar í nóvember í fyrra um að ráðuneyti og stofnanir flytji gagnaskráningu og ritvinnslu til fjarvinnustofa í dreifbýli. i\thugun Byggðastofnunar fólst í því að senda út fyrirspumir til 75 stjómenda ráðuney ta og ríkisstofnana á höfuðborgarsvæðinu. Alls bámst 60 svör og í 26 þeirra var talið að fjarvinnsla af einhverju tagi kæmi til greina. Af þessum 26 jákvæðu s vömm má ráða að um 19 ársverk megi þegar flytja út á land með fjarvinnslu. Af heildamiðurstöðu athugunarinnar verður ekki annað ráðið en að ríkisstofnanir telji sig misvel í stakk búnar til að flytja verkefni með þessum hætti út fyrir höfuðborgarsvæðið. I fréttabréfi Félagsmálaráðuneytisins frá því í mars sl. er fjallað um þessa athugun Byggðastofnunar. Þar segir enn fremur frá áliti nefndar sem fjallað hefur sérstaklega um framkvæmd fjarvinnslunnar. Nefndin hefur m.a. lagt til að ríkisstofnunum verði veitt fé til að greiða þann aukakostnað sem kunni að hljótast af því að flytja verkefni til fjarvinnustofa og að Byggðastofnun verði falið að gera tillögur til forsætisráðuneytisins um fjárveitingar til ríkisstofnana vegna þessa. GRAMMIÐ AF GALLSTEINUM Á 1350 KRÓNURi Fjórir ástralskir kjötmatsmenn vom nýlega kærðir fyrir stuld á gallsteinum úr nautgripum. Mennimir, sem vinna við sláturhús í borginni Maryborough í Norður - Ástralíu, neita sakargiftum. Úr steinunum em unnin svokölluð ástarlyf sem em geysivinsæl víða í Asíu og meðal innflytjendaaf asískum upprunaí Bandaríkjunum. Yfirheyrslur í málinu leiddu m.a. annars í ljós að það er eftir miklu að slægjast á gallsteinamarkaðnum. í Asíu má t.d. selja unsuna (28 grömm) af þessum “ástarsteinum” á 630 bandaríkjadali eða 37.800 íslenskar krónur. Talið er að hinir ákærðu hafi komið töluverðum verðmætum undan með því að vefja pappírsþurrkum utan um gallsteina og bera þá út af vinnustað innan klæða. Mál fjórmenninganna verður tekið fyrir í undirrétti 27. maí nk. OSTASKERAR AU FRAMLEIÐ K | AEKKI — I Noregi er um þessar mundir mikil umræða um stöðu mjólkuriðnaðarins þar í landi. Norske Meierier héldu aðalfund sinn fyrir skemmstu. Jens Frogner, formaður NM, lagði í ræðu sinni áherslu á að umframleiðslugetu iðnaðarins yrði að mæta með hagræðingu og aukinni samvinnu afurðastöðva á milli. Hann undirstrikaði jafnframt að það mætti ekki einblína á fjölda afurðastöðva heldur yrði að meta fjöldann með hliðsjón af staðsetningu hverrar stöðvar. Frogner benti jafnframt á að með aukinni framleiðslu á sérvörum ýmiss konar yrði þörfm meiri fyrir afurðastöðvar af mismunandi stærð og gerð. Þá varaði hann eindregið við að flötum niðurskurði yrði beitt til að laga framleiðslugetu mjólkuriðnaðins að innanlandsþörfum og líkti slíkum niðurskurði við ostaskera. Ostaskerareglan mun að hans mati skapa fleiri vandamál innan iðnaðarins en hún leysir. .A.lmennt um stöðu norska mjólkuriðnaðins hafði Jens Frogner eftirfarandi að segja: “í þjóðfélaginu er krafist aukinnar framleiðni. Norsku mjólkursamlögin eru af þeim sökum reiðubúin að grandskoðakostnaðarhlið mjólkuriðnaðarins gagnrýnum augum. Það verður með öðrum orðum að leitast við að gemýta framleiðslugetu iðnaðarins. Lykilatriði er hagræðing bæði í framleiðslu og dreifingu. Þetta er nauðsynlegt til að styrkja innviði atvinugreinarinnar, auka tekjur bænda og bæta samkeppnisstöðu mjólkurafurða með lægra verði til neytenda. Mikilvægasta verkefni okkar er að gæta hagsmuna allra hlutaðeigandi aðila. Það felur í sér ábyrgð gagnvart byggðum landsins og þjóðfélaginu í heild sinni.” Upplýsingaþjónusta landbúnaðarins • Bændahöllinni við Hagatorg • 107 RVK • sími 20025/620025 • Fax 628290

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.