Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 21
GOTT FOBUR1991
Fréttabréf frá VÉLUM & ÞJÓNUSTU H.F.
2. TBL. 3. ÁRG. 1991
Met í rúllum - væntanlegt 1991 . . .
Þeir sem ferðast um landið sjá að flestir bændur
eru komnir í gang með rúllubagga. Margir þeirra
búa nú að fyrstu reynslu og munu efla búskapinn
með þessari aðferð.
Nú lítur út fyrir metverkun í rúlluböggum, enda
sýnir reynslan að æ fleiri kostir koma í Ijós, eftir
því sem menn ná betri tökum á rúlluböggunum.
Einnig má minnast þess að ef veðrið í sumar
verður venjulegt koma upp óskir um enn meiri
rúlluböggun. Einnig eru rúllurnar að verða ágætis
verslunarvara.
Allir hagnast á þróuninni
GÓÐAR
Það öryggi sem skapast í gegnum rúllubaggana er viðurkennt. Einn-
ig er allur vélbúnaður á hagkvæmara verði eftir því sem framleiðsla og
framboð hefur aukist og eldri rúlluvélar hafa gott endursölugildi.
Nýjustu pökkunarvélarnar eru sjálfvirkar og rúllunni er stýrt á og af -
ekki látin falla. Einnig sýnir teljari fjölda vafninga og gefur aðvörun þeg-
ar pökkun er lokið.
Rúllubindivélar eru sérlega einföld tæki og auðveld í notkun og end-
ast vel. Einnig eru í boði góð tæki til að flytja baggana pakkaða sem ó-
pakkaða, svo og tæki til að saxa rúllubagga niður, þegar kemur að fóðr-
uninni.
Óttinn - er liðinn hjá
Bændur muna að um tíma í fyrrasumar vantaði filmu og óttinn var
magnaður upp í haust um sérstakt stríðsástand í hráefnisöflun og gífur-
legar verðhækkanir framundan. Eins og við bentum á hefur þetta
reynst ástæðulaust og umbúðakostnaður stefnir í að vera lægri en
nokkru sinni fyrr. Þetta á raunar við um allt er snýr að rúlluböggun -
tækninni og framboðinu fleygir fram og tryggir bændum góðan árang-
ur.
Hygginn bóndi ætti samt að gera ráðstafanir um aðföng í tæka tíð.
Nýtt hjá VÉLUM & ÞJÓNUSTU verður nú að bjóða einnig grænleita
rúllufilmu - „umhverfisvinalega", auk venjulegrar hvítrar - hvort
tveggja gæðafilma sem byggir á áralangri reynslu.
CARRARO pökkunarvélin -
ekkert fall.
Og nú kemur teljari sem
drýgir dagsverkið.
Og nýr rúllusaxari í
fóðrunina.