Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 26
386 FREYR
9.'91
Hreyking í kartöflum. Fingurnir á vélinni hreinsa illgresið ofan á hryggnum.
lega leiðbeiningum á pakkningun-
um. í öllum tilfellum skal útiloka
börn og búfénað frá tækjum og
landi á meðan á úðun stendur og
fyrst á eftir (sjá leiðbeiningar á
pakkningu).
Illgresi í kartöflugörðum.
Illgresi getur orðið mikið vanda-
mál í kartöflugörðum. Á meðan
kartöflugrösin vaxa upp hefur ill-
gresið forskot og getur, ef ekkert
er að gert, kæft grösin. I tilraunum
á Jótlandi fékkst 85% meiri upp-
skera á vel hreinu landi en óhreins-
uðu.
Illgresið tekur vatn, birtu, rými
og næringu frá kartöflunum. Með
niðurfellingu áburðar hafa þó kart-
öfluplönturnar fengið forskot.
Raðhreinsun og hreyking voru
mikið notaðar aðferðir og ásamt
sáðskiptum eru þær einu „lífrænu
illgresiseyðingar aðferðirnar“.
Helstu ókostir eru hvað verkið
ræðst af tíðarfari, grös og rætur
skemmast af völdum vélanna og
jarðvegurinn þjappast.
Þau illgresiseyðingalyf sem not-
uð eru helst í dag eru linuron (Afa-
lon) og metribuzin (Sencor).
Linuron hefur verið notað svo til
eingöngu mörg undanfarin ár.
Efnið verkar bæði sem blað- og
jarðvegsefni og er tekið upp um
blöð, stöngla og rætur. Linuron
binst lífrænum efnum í jarðvegi,
jarðvegsverkunin verður því lítil í
jarðvegi með hátt hlutfall lífrænna
efna. Árangur er oftast bestur ef
Tafla 1. Yfirlit yfir helstu illgresistegundir, fjölgun þelrra og áhrif jarðvinnslu og eiturefna á vöxt
þeirra. (+ dregur úrvexti, xeykur vöxt)
Fjölgun Ending *Jarðvinnsla Eiturefni (verslunarheiti)
Blóðarfi fræ mörg ár + Sencor. Treflan
Haugarfi fræ mörg ár + Afalon.Trefianofl.
Hjartaarfi fræ mörgár + Sencor. Ramrod. Afalon, ofl. (ekki Treflan)
Gulbrá fræ + Afalon. Ramrod. ofl. (ekki Treflan)
Krossfífill fræ + Sencor. Ramrod (ekki Dosanex og Treflan)
Varpasveifgras fræ.skipting 2ár + (þurrv.) Sencor, Dosanex. Treflan (ekki Afalon og Ramrod).
Klóefling gró.jarðrenglur framræsla Casoron
Húsapuntur fræ. jarðrenglur grunntæta og plægja við 2-4 blöð Roundup. Casoron. Nabu-S
Njóli fræ, rótarbútar mörg ár X Roundup. Ugræs kverk D
Túnsúra fræ. rótarbútar mörg ár kölkun. framræsla Ugræs kverk D
Hundasúra fræ. skriðularrætur mörg ár kölkun. framræsla Herbatox MP 500
Vegarfi fræ.jarðrenglur mörg ár + Herbatox MP 500. Afalon
Brennisóley fræ kölkun. framræsla UgræskverkD.
Skriðsóley fræ.ofanjarðarrenglur mörgár + framræsla Preglone, Ugræs kverk D
Baldursbrá fræ reita Afalon, Ramrod. GesatopSO
Hóffífill fræ. jarðrenglur 4mán reita Casoron, UgræskverkD. Roundup
Túnfífill Mosi fræ. rótarbútar gró.plöntuhlutar mörg ár X Ugræs kverk D. Roundup Teneran, járn-ammoníumsulfat
* Tími, sem frœid er spírunarhœft.