Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 27

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 27
9.’91 FREYR 387 Raðhreinsun á gulrófum. úðað er snemma eftir niðursetn- ingu, á raka jörð. Á moldríkan jarðveg er hentugast að bíða þar til illgresið er spírað. Kartöfluplönt- urnar geta skaðast ef 50% gras- anna gægist upp. Ef ræktað er und- ir plastdúk eða yfirbreiðslu, er úð- að á raka jörð fljótlega eftir niður- setningu. Linuron verkar illa á blóðarfa. Eftir að illgresið er kom- ið upp verkar það einnig illa á varpasveifgras, gulbrá og kross- fífil. Magn: Ræktun undir plasti eða dúk .... 100-200 g á 1000 m: Niðursetning að upp- komu .... 150-250 g á 1000 m: Metribuzin. (Sencor) Pað verk- ar bæði sem jarðvegs- og blaðefni. Metribuzin er úðað á raka jörð eftir niðursetningu. Óhætt er að úða allt þar til grös eru 5 cm há en því hærri sem grösin eru því meiri líkur eru á skemmdum. Verkunin er oftast góð en blóðarfi lifir þó oft af. Metribuzin er lengi að brotna niður þannig að eftir að úðað hefur verið með fullum styrk eru ekki möguleikar á að sá eða planta neinu síðar á vaxtartímanum. Einnig er viss hætta á skaða á viðkvæmum tegundum að ári (grasrækt, krossblómaætt). Til að fá alhliða og góða verkun án langrar eftirverkunar, má blanda í úðatankinn 20-40 g Sencor + 100-150 g Afalon á 1000 m:. Metribuzin er ráðlagt í styrkleik- anum 0,7 kg/ha á léttan jarðveg, 1 kg/ha á þungan og moldríkan jarð- veg. Fyrir fljótsprottnar kartöflur er ráðlagt magn 0,52 kg/ha á léttan jarðveg, 0,7 kg/ha á annan stein- efnaríkan jarðveg. Ekki ráðlagt á sandjarðveg. Eftirverkun er minni í jarðvegi sem inniheldur hátt hlut- fall af lífrænum efnum. Húsapuntur getur verið vanda- mál í kartöflugörðum, Roundup (Glyfosat) má nota áður en grösin koma upp en þá verður húsapunt- urinn að vera kominn með 2-4 blöð. í heimilisgörðum má væta blöð húsapuntsins með Roundup blöndu eftir að grösin eru komin upp. Slíkt verður hins vegar full seinlegt í stórræktun. Þar kemur helst til greina að hvíla garðinn í eitt ár og útrýma húsapuntinum með Roundup þegar hann er í ör- um vexti. Gulrœtur. Linuron (Afalon), Chloroxuron (Teneran), Metoxuron (Dosanex) og Arfaolía. Arfaolía (Esso, Shell Weed kill- er) var notuð mest áður fyrr. Olían svíður niður spírað illgresi áður en jurtirnar koma upp. í gulrótum og öðrum jurtum sveipjurtaættar má nota arfaolíu einnig eftir spírun nytjajurtanna. Arfaolíu ætti að nota áður en illgresisplöntur verða stórar því að hún ræður ekki við að svíða niður stærri illgresisplöntur. Venjuleg notkun 5-10 I óþynnt á 100 m:. Mjög eldfim. Aukabragð kom oft af gulrótunum og hafa sumir jafnvel saknað þess. Ekki úða döggvotar plöntur. Afalon tók við af arfaolíu. Það er tekið upp í gegnum blöð og rætur og er því hægt að nota það bæði fyrir og eftir spírun illgresis. Magn á ha er frá 1,5 kg á sendinn jarðveg og upp í 3 kg á moldarríkan jarðveg í 500 - 1000 lítra vatns. Ef úðað er áður en illgresi spírar, verður jarð- vegurinn að vera rakur og vel unn- inn. Afalon brotnar hægt niður (1 ár) og berst tiltölulega hægt um jarðveg. Skaði getur orðið ef lífrænt efni í sandjarðvegi er minna en 1%. í sandjarðvegi ætti að úða innan 4ra daga frá sáningu, æski- legra þó þegar illgresið er að byrja að spíra og ætti jarðvegurinn að vera rakur við úðun. Góð verkun er háð því að rigni nægilega til að viðhalda jarðvegsrakanum að minnsta kosti. í sendnum jarðvegi getur þó orðið skaði ef rignir mikið eftir úðun þannig að efnið berist rótum gulróta. Ekki ætti að úða ef mjög heitt er í veðri. Afalon verkar illa á gulbrá, baldursbrá og krossfífil eftir spírun auk þess sem það verkar ekki á varpasveifgras og blóðarfa. Þessar tegundir geta því orðið hið versta Burstahreinsivél séð að framan og á hlið.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.