Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 28

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 28
388 FREYR 9.’91 illgresi þar sem Afalon hefur verið notað árum saman. Afalon er notað í lægri styrk undir yfirbreiðslur. Algengast er að úða strax að lokinni sáningu og breiða síðan yfir. Betri verkun fæst þó ef úðun er dregin þar til illgresið byrjar að spíra og gulræturnar eru ekki komnar upp. Pá þarf að taka yfirbreiðslurnar af á meðan úðað er. Gulbrá (Matricaria matricarioides). eftir að þær hafa komið upp. Ekki ætti að úða á döggvotar plöntur. Magn 3 kg/ha, brotnar niður á 1-2 mánuðum, lítt hreyfanlegt. Sá ætti gulrótum a.m.k. á 1,5 cm dýpi og úða þegar þær eru komnar með fleiri en 2 blöð auk kímblaða. Ekki ætti að nota Dosanex ef jarð- vegurinn inniheldur minna en 1% lífrænt efni né meir en 80% sand og ekki ætti að úða við hátt hitastig. tinda- eða fjaðraherfi (grunnt stillt) og herfa tvær umferðir hornrétt á hvor aðra. Ekki má vinna of djúpt, þá þynnist efnið um of og dregur úr virkni þess. Treflan verkar lítið á hjartaarfa, krossfífil og gulbrá. Treflan er hægt að nota ef ræktað er undir dúk en verkunin verður oft ekki sem skyldi. Grasi ætti ekki að sá fyrr en 15 mánuðum eftir úðun með Treflan. Verkunin Teneran (chloroxuron) er á skrá hérlendis og verkar vel á hjartaarfa og krossfífil. Það kemur því vel til greina þar sem krossfífill er vanda- mál. Magn af Teneran er 7 kg á ha í 500 1. Efnið er blað- og jarðvegs- efni og verkar best þegar illgresið er á kímblaðastigi. Má nota bæði áður en gulrætur spíra og eftir að þær hafa myndað 2-3 blöð auk kímblaða. Efnið leysist illa upp í vatni og þarf því að hræra stöðugt í upplausninni. (Á skrá í Svíþjóð 1989 til þessarra nota m.a.) Dosanex (metoxuron) er ekki á skrá en hefur verið flutt inn til tilrauna. Blað- og jarðvegsefni. Dosanex hefur það fram yfir Afa- lon að gulræturnar þola það vel Verkar vel á baldursbrá og gulbrá en illa á krossfífil. Efninu er hættara við að skolast niður að rótum en Afaloni. Ekki ætti að nota annað illgresiseyðingaefni hálfum mánuði fyrir eða eftir Dosanex úðun. Ekki mælt með notkun efnisins undir plastdúk. Gulrófur. Treflan (trifluralin) og Ramrod (propachlor). Treflan er jarðvegsefni og brotn- ar niður á 2-12 mánuðum. Efninu er úðað (200 ml/1000 m:) fyrir sán- ingu og tætt niður strax á eftir. Stilla þarf tætarann grunnt, láta hann snúast hratt og keyra hægt (að 6 km/klst), einnig má nota er lítið háð jarðvegsraka. Bindst fast af lífrænum ögnum jarðvegs og ætti ekki að nota ef lífrænt efni er meira en 8%. Ramrod er jarðvegsefni og drep- ur illgresi sem er að spíra. Verkar lítið á illgresi sem komið er upp. Ramrod er úðað (600-800 g/1000 m2) á rakan jarðveg áður en illgres- ið spírar. Jarðrakinn er oft ekki nægilegur eftir útplöntun eða sán- ingu til að efnið verki vel. Góð regla er, að ef ekki rignir fyrir úðun, er vökvað til að bleyta í efsta lagi jarðvegsins. í hlýju veðri má úða 3-5 dögum eftir sáningu eða útplöntun, ef kalt er 7-10 dögum eftir úðun. Ramrod má nota ef ræktað er undir dúk. Undir plast- dúk er þá úðað með 200-300 g á

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.