Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 29

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 29
9.’91 FREYR 389 1000 m:. Ramrod brotnar hratt niður (1-2 mán.) Ef ekki hefur verið úðað eftir sáningu og plönt- urnar eru komnar upp ætti ekki að úða fyrr en nytjaplönturnar eru komnar með eitt blað auk kím- blaða en þá er arfinn oft illviðráð- anlegur. Hvítkál. Ramrod og Treflan, sjá hér á undan. Semeron (desmethrin) er blað- efni og úðað 100-150 g/1000 m:, 2-3 vikum eftir útplöntun. Verkar vel á arfa og krossfífil. Efninu er úðað fínt við háan þrýsting þegar útlit er fyrir að haldist þurrt næstu 24 tíma. Uðað er þegar illgresið er komið upp en kálið er komið í góðan vöxt. Semeron getur leitt til guln- unar kálblaðanna sérstaklega ef rakt hefur verið í veðri eða ræktað er undir dúk. Pað stafar af því að vaxhúðin á blöðunum er of þunn. Því skyldi minnka styrkleika efnis- ins við þau skilyrði. Semeron ætti ekki að nota af þeim sökum á fljótsprottið hvítkál (kál sem er fljótar en Minicole). Ef skilyrði eru hagstæð getur úðun, þegar illgresi er á kím- plöntustigi, með vægari skammt af Semeron (50-80 ml/1000 nr) verk- að vel. Það minnkar líkur á skaða í kálinu. Blómkál.spergilkál, blöðrukál, rauðkál og kínakál. Treflan; sjá gulrófur hér á und- an. Ramrod; notkun þess getur leitt til vaxtarstöðvunar eftir sáningu eða útplöntun. Það getur orðið alvarlegt í snemmsprottnu blóm- káli og í kínakáli er Ramrod það hættulegt að margir láta það eiga sig. Ef á að nota það í kínakáli skal minnka magnið í 300-500 g/1000 m: og úða 4-5 dögum eftir útplöntun. Sjá að öðru leyti gulrófur hér á undan. Trjábeð. Efnin mega ekki fara á blöð trjánna. I. Lauftré. a. Til að hindra spírun á einæru illgres. Úða með Gesatop 50 (triazin, simazin) 200-300 g/ 1000 m: strax að vori. b. Til útrýmingar á einæru og fjölæru illgresi; Roundup 300 ml/1000 m2 þegar illgresi er í góðum vexti. c. Þar sem trjáplöntur hafa stað- Hóffífill (Tussilago farfara). ið í a.m.k. 2 ár. Til útrýmingar á einæru og fjölæru illgresi. Casoron G 10-15 kg/1000 m: að vori, sumar tegundir geta verið viðkvæmar. Ath. leið- beiningar. II. Barrtré. a. Fjölært illgresi. Úða Roundup (glyfosat) 300 ml/1000 m: þeg- ar illgresið er næst því að verða fullþroskað. b. Ein og tvíkímblaða illgresi, botngróður; úðað með Roundup 75-150 ml/1000 m: eftir miðjan júlí. Grasflatir. Mosi; Teneran 70 g á 100 m: í 10 lítra vatns vökvað með garðkönnu drepur mosa. Einnig blanda af: 3 kg ammoniumsulfat, 1 kg járn- súlfat og 10 kg svartur sandur. Raka dauðan mosa upp, hálfum mánuði síðar. Túnfífill og fleiri breiðblaða ill- gresistegundir. Ugræskværk (2,4 D) 400 ml/1000 m:. Úðað þegar illgresið er í góðum vexti frá maí til ágúst. Það verða að líða nokkrir dagar frá slætti að úðun og frá úðun að slætti. Grasið veröur að vera þurrt við úðun. Verkar lítið á arfa og varpasveifgras. Á nýsáða flöt notist helmingur af uppgefnum styrk þegar grasið er komið upp. Sœnskur sperðill varð fyrir járnbarautarlest Sænskt félag, Scan að nafni, er komið í Heimsmetabók Guinnes, að því er blaðið Norsk Landbruk hermir. Scan bjó til 100 m sperðil eða bjúga en fékk bara viður- kennda 93,7 m. Skýringin er einföld. Bekksögn í skóla einum fékk það hlutverk að bera bjúgað fram fyrir fulltrúa Guinnes. Allt var klappað og klárt til þess að Svíarnir settu met með 100 metra sperðli, en þá kom lestin og það utan áætlunartíma og stakk af með 6,3 metra. Til allrar lukku sluppu allir ómeiddir, og gamla skoska metið, sem var 60 metrar, var slegið með miklum mun. Ný atvinnutœkifœri. Frh. afbls. 367. Bandaríkjunum. Kynning á starfsemi sem þessari tekur eðlilega sinn tíma en ljóst er að þeir sem eru að leita að nýjum atvinnu- tækifærum hafa margt að sækja til Upplýs- ingaþjónustu Háskólans sem Jón Erlends- son veitir forstöðu. M.E.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.