Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 31

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 31
9.'91 FREYR 391 Samninganefndarfundur um búvörusamningana. Frá vinstri: Gunnlaugur Júlíusson, aðst.m. landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, ráðherra, Helgi Jóhannesson, lögfr. frá landbúnaðarráðuneytinu, Kjartan Gunnarsson, deildarstj., viðskiptaráðuneytinu, Finnur Sveinbjörnsson, hagfr., iðnaðarráðuneytinu, Þórhallur Arason, skrifstofu- stj., fjármálarn., Guðmundur Sigþórsson, skrifstofustj., landbúnaðarrn., Guðmundur Lárusson, form. Lsb. kúa- bænda, Jóhannes Kristjánsson, form. Landssamt. sauðfjárbœnda, Þórarinn Þorvaldsson, stjórnarm. íStéttarsambandi bcenda, Þórólfur Sveinsson, varaform. Stéttarsambandsins, Hákon Sigurgrímsson, framkvstj. S.B., Haukur Halldórs- son, formaður S. B. Freysmyndir, J.J. D. ingar. Á fulltrúafundi Stéttarsam- bandsins 13 og 14. mars sl. var samningurinn samþykktur með 45 atkvæðum gegn 2, að viðhöfðu nafnakalli, 15 sátu hjá en 2 voru fjarverandi. Annars segir nánar af þessu mikilsverða máli í fundar- gerð fulltrúafundarins í 7. tbl. Freys. Af þætti ríkisins í þessu máli er þess að geta að lánsfjárlög 1991 heimila að fé verði varið til þess að ríkið kaupi upp fullvirðisrétt sam- kvæmt viðauka I með samningn- um. Þá samþykkti Alþingi breyt- ingu á skattalögum um að bændur greiði ekki tekjuskatt af fé sem ríkið greiðir þeim fyrir fullvirðis- rétt sem það kaupir af þeim. Fyrirvari landbúnaðarráðherra nær einkum til lagabreytinga sem áformað er að gera á næsta þingi. J.J.D. Lesið úr leiðara DV í fundarhléi. F.v.: Ásmundur Stefánsson. Þórólfur Sveinsson, Hákon Sigurgrímsson, Haukur Halldórsson, Steingr. J. Sigfússon og Þórarinn V. Þórarinsson.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.