Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 32

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 32
392 FREYR 9.’91 Fréttir frá Hvanneyri Magnús Hlynur Hreiðarsson, nemandi í 2. bekk skrifar. Eins og lesa mátti í 2. tbl. Freys 1991 þá var félagslífið í Bœndaskólanum á Hvanneyri mjög öflugt á haustönninni, en það hefur ekki verið eins gott á vorönninni. Enda ekki skrýtið, því að mikið hefur verið að gera í náminu, og margir eru að keppast við að temja hross. En það er nokkur atriði, sem eru mjög minnisstœð frá þessari önn, fyrir utan námið, sem mig langar að kynna fyrir lesendum Freys. Magnús Hlynur Hreiðarsson. Marshátíð 17. marshátíð Bændaskólans á Hvanneyri var haldin 8. mars sl. í félagsheimilinu Brú í Bæjarsveit. íbúum sveitarinnar var sérstaklega boðið á þessa skemmtun, sem var skipulögð af nemendum 1. og 2. bekkjar, en allir nemendur lögðu þar sitt af mörkum. Dagskráin var byggð í kringum 1100 ára búsetu í Andakílshreppi, sem er í ár. Magnús Oskarsson, kennari, ásamt Bjarna Stefáns- syni, sömdu annál, sem byggður var upp á upplestri og leikatriðum, sem nemendur lásu og léku nokkur atriði samfara því. 1 tilefni af af- mælinu gaf nemendafélag Bænda- skólans hreppnum borðfána, en fáni þessi kom fram árið 1874 í tilefni 1000 ára búsetu á íslandi. sem er líklega fyrsta tillaga að fána fyrir ísland. Auk þessa atriðis voru mörg mjög skemmtileg atriði á dag- skránni. Má þar nefna Hvanneyr- arpíur, sem sungu um strákana í skólanum, blandaðan kór, stelpnakór, látbragðsleik, einþátt- ung, og fleira og fleira. Bjarni Guðmundsson, kennari, og Eyþór Jónsson, nemandi, sáu um allan undirleik. Eftir tveggja klukkustunda skemmtidagskrá var stiginn dans langt fram eftir nóttu, sem hljóm- sveitin „Stuttur fyrirvari" lék fyrir. Það er mál manna að þetta hafi verið ein besta Marshátíð til þessa, enda lögðu nemendur nótt við dag við æfingar undir röskri stjórn þeirra Jóhönnu Pálmadóttur, fé- lagsmálafulltrúa, og Bjarna Stef- ánssonar, yfirkennara. Nýtt Bókasaf n Nemendur Bændadeildar stóðu í ströngum samningaviðræðum við skólayfirvöld á önninni um leng- ingu á notkunartíma bókasafnsins. í vetur hefur bókasafnið verið opið kl. 13.00 - 17.00 virka daga, en nemendur eru svo til alla daga vikunnar í skólanum til kl. 16.00 eða 18.00, þannig að hver maður ætti að sjá að þessi notkunartími hentaði nemendur afar illa. A fundi með skólayfirvöldum óskuðu nemendur Bændadeildar þess að fá lykil af bókasafninu, líkt og Búvísindadeild hefur, en það var af og frá af þeirra hálfu. Eftir miklar umræður var ákveðið að lengja notkunartíma bókasafnsins, þannig að það yrði opið þrjú kvöld vikunnar frá kl. 19.30 til 22.00, og að nemendur á þriðja ári í Búvís- indadeild sætu yfir. Samfara þessu ákváðu skólayfir- völd að gefa nemendafélagi Bændaskólans bókasafn, sem væri staðsett á heimavistinni, og yrði rekið á ábyrgð nemenda. Skólinn bauðst til að útvega helstu land- búnaðarit síðustu ára, eins og t.d. Frey, Handbók bænda, Árbók landbúnaðarins, Eiðfaxa, Hestinn okkar og sitthvað fleira, sem nem- endur hafa mest not fyrir við rit- gerðasmíð og verkefni. Nemendur Bændadeildar voru sáttir við þessar niðurstöður, og fögnuðu því hve skólayfirvöld brugðust fljótt við. Tamningar Á önninni hafa nemendur í öðr- um bekk, sem eru í hrossarækt II. staðið í ströngu við af frumtemja tryppi undir stjórn Ingimars Sveinssonar kennara og annarra góðra hestamanna. Efni áfangans byggir að mestu á frumtamningu hrossa og reiðmennsku, en einnig fá nemendur þjálfun í járningum og hófliirðingu, og gerð er grein fyrir dómum og sýningu kynbóta- hrossa og gæðinga. Áfangi þessi er framhald af Hrossarækt I, sem kenndur var á

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.