Freyr

Árgangur

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 33

Freyr - 01.05.1991, Blaðsíða 33
9.’91 FREYR 393 Nemendur annars bekkjar á Hvanneyri ásamt Sveini Hallgrímssyni skólastjóra og Magnúsi Óskarssyni, kennara, eftir að nýja bókasafnið var afhent. haustönninni, en þar var farið yfir undirstöðuatriði hrossaræktar, svo sem fóðrun og hirðing hrossa, frjó- semi, kynbótaskipulag, félagsmál hrossaræktarinnar o.fl. Hinn 21. apríl sýna nemendur hross sín í Skeifukeppni, og metinn verður árangur tæplega þriggja mánaða vinnu. Um áramótin tóku félagar í hestamannafélaginu Grana, sem er hestamannafélag nemenda, sig til og máluðu hesthúsið, og nýtt loftræstikerfi var einnig sett í húsið í vetur, þannig að aðstaðan er orð- in viðunandi. Núna eru 39 hestar í hesthúsinu á vegum nemenda í Bændaskólan- um á Hvanneyri. Rekstrarsvið Á vorönninni var hafin kennsla á nýju sviði við skólann, rekstrar- sviði, en hlutverk þess er að út- skrifa búfræðinga með sérstöku námi í rekstri lítilla fyrirtækja, hvort sem um er að ræða fyrirtæki eins og eitt bú, eða önnur fyrirtæki til sveita. Á rekstrarsviði stunda 11 nem- endur nám, þar af 4 búfræðingar, einn frá því í fyrra. einn sem út- skrifaðist fyrir 10 árum, en hinir eru í utanskólanámi. Með þessu nýja sviði er nemendum skólans (gömlum, sem nýjum) boðið að taka 5. önnina, þ.e. annað hvort rekstrar- eða búfjárræktarsvið. f>að má geta þess að í undirbúningi er þriðja sviðið við skólann, land- nýtingarsvið, sem boðið verður upp á næsta vetur, þ.e. á vorönn 1992. Lokaorð Hinn 11. maí 1991 mun Bænda- skólinn á Hvanneyri útskrifa 29 réttindalausa búfræðinga. Það verður gaman að sjá hvað þetta fólk mun taka sér fyrir hefur. Fer það heim í sveitina sína, eða ætlar það að afla sér meiri menntunar á öðrum sviðum, eða gera bara eitt- hvað annað? Það hefur verið gaman í Bænda- skólanum á Hvanneyri í vetur, námið er mjög athyglisvert og menn þroskast mikið í þessum skóla, félagslega og andlega. Ef þú ert að hugsa um að fara í bænda- skóla, láttu þá verða af því. t>ú munt aldrei sjá eftir því. þó að þú ætlir þér ekki að verða bóndi eða að starfa við landbúnað. Góður hagnaður af rekstri Mjólkursamlags KEA Mjólkursamlag Kaupfélags Ey- firðinga skilaði um 86 milljón króna hagnaði af rekstri síðasta árs, en 14 milljónum árið 1989. Velta mjólkursamlagsins var tæpir tveir milljarðar árið 1990. Það ár lögðu bændur inn um 21 619 000, lítra af mjólk sem er 5,73% meira en 1989. Um 220 bændur lögðu inn mjólk hjá samlaginu í fyrra. Eignir þess eru metnar á um 1,5 milljarða króna.

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.